Morgunblaðið - 10.05.2019, Síða 22
Foreldrar hans voru hjónin Vil-
hjálmur Jónsson, f. 31.5. 1901, d.
10.7. 1972, húsasmíðameistari í
Reykjavík, og Marta Ólafsdóttir, f.
3.6. 1894, d. 12.11. 1983, húsfreyja.
Barnahópur Erlu og Manfreðs er
mjög blómlegur og eru afkomendur
alls 29; 5 börn, 12 barnabörn, 8
barnabarnabörn og 4 barnabarna-
barnabörn.
Börn Erlu og Manfreðs eru 1)
Sólveig, f. 26.8. 1954, tækniteiknari,
búsett í Hafnarfirði, og á hún tvö
börn; 2) Vilhjálmur Már, f. 10.10.
1957, véltæknifræðingur, búsettur á
Álftanesi en kona hans er Jóhanna
Diðriksdóttir upplýsingafræðingur
og eiga þau tvö börn; 3) Gunn-
hildur, f. 4.7. 1961, upplýsingafræð-
ingur og framkvæmdastjóri, búsett
E
rla Sigurjónsdóttir
fæddist 10. maí 1929 í
Reykjavík. Hún bjó í
Reykjavík í æsku og
fluttist síðan með eig-
inmanni, Manfreð Vilhjálmssyni, til
Gautaborgar í Svíþjóð, en hann var
þar við nám í arkitektúr. Meðan á
dvöl þeirra stóð stundaði hún nám í
sænsku. Árið 1956 sneri þau aftur
til Íslands, bjuggu fyrst í Reykjavík
og settust síðan að á Álftanesi.
Manfreð teiknaði hús þeirra, Smiðs-
hús, og hafa þau þar unað hag sín-
um mjög vel og halda þar enn heim-
ili, nú bæði komin á tíræðisaldur.
„Við erum þakklát fyrir að geta
enn búið á okkar heimili með börnin
í nágrenninu,“ segir Erla en hún
hefur alla tíð haft jákvæðni og
æðruleysi að leiðarljósi.
Erla útskrifaðist sem stúdent frá
Verslunarskóla Íslands árið 1950.
Hún hélt sænskunámi áfram eftir
heimkomu við Háskóla Íslands.
Hún kenndi við Bjarnastaðaskóla
á Álftanesi í nokkur ár.
Erla starfaði ötullega fyrir Sjálf-
stæðisfélag Bessastaðahrepps. Hún
sat í hreppsnefnd á áttunda og ní-
unda áratugnum ásamt því að sitja í
ýmsum nefndum tengdum sveitar-
stjórnarmálum. Erla var kosin odd-
viti Bessastaðahrepps árið 1982 og
gegndi því embætti í tvö kjörtíma-
bil. „Þessi tími í lífi mínu var
skemmtilegur og eftirminnilegur,
ég starfaði með mörgu góðu fólki og
vann að ýmsum velferðarmálum.“
Ásamt þessum störfum var hún
húsmóðir á mannmörgu heimili á
Álftanesi og mjög virk í félags-
málum. Hún var meðal annars for-
maður Kvenfélags Bessastaða-
hrepps í mörg ár og er heiðursfélagi
í því félagi í dag.
Erla var einn af hvatamönnum að
stofnun Tónlistarskóla Álftaness
sem starfaði með miklum blóma í
nokkra áratugi en tilheyrir nú Tón-
listarskóla Garðabæjar.
Hún mun fagna þessum merku
tímamótum í faðmi fjölskyldunnar.
Hún verður að heiman í dag.
Fjölskylda
Erla giftist 6.9. 1952 Manfreð Vil-
hjálmssyni f. 21.5. 1928, arkitekt.
á Álftanesi, en maður hennar er
Einar Rúnar Axelsson læknir og
eiga þau samtals sex börn; 4) Sigur-
jón Már, f. 27.10. 1963, flugumferð-
arstjóri, búsettur á Álftanesi en
kona hans er Svandís Tryggvadótt-
ir, sjúkraliði og upplýsingafræð-
ingur, og eiga þau þrjú börn; 5) Val-
dís Fríða, f. 17.2. 1968, læknir,
búsett á Álftanesi, en maður hennar
er Lárus Jónasson læknir og eiga
þau tvö börn.
Bróðir Erlu var Örn sem fæddist
15. júní 1945 og lést 11. maí 1949 af
slysförum.
Foreldrar Erlu voru hjónin Sig-
urjón Danivalsson, f. 29.10. 1900, d.
15.8. 1958 og Sólveig Lúðvíksdóttir,
f. 1.7. 1905, d. 9.11. 1991. Sigurjón
var ættaður úr Skagafirði, búfræð-
Erla Sigurjónsdóttir, fyrrverandi oddviti Bessastaðahrepps – 90 ára
Nýtrúlofuð Erla og Manfreð í Reykjahlíð 1951.
„Lífið er fagurt,“ segir Erla
Hjónin Erla og Manfreð 67 árum síðar, 2018.
Erla í Mývatnssveit Myndin birtist
í National Geographic 1951.
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2019
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
• Mjög auðvelt og fljótlegt í notkun
• Tilbúið til matreiðslu á 3-4 mínútum
• Afkastamikið og öflugt
• Mjög góð hitastýring á kolum
• Ytra byrði hitnar ekki
• Færanlegt á meðan það er í notkun
• Auðvelt að þrífa
• Má fara í uppþvottavél
• Taska fylgir
• Mikið úrval aukahluta
STÓRSNIÐUGT GRILL
Í GARÐINN, Á PALLINN EÐA Í FERÐALAGIÐ
70 ára Kristján ólst
upp á Valbrekku í
Hrafnkelsdal, N-Múl.,
en býr í Reykjavík.
Hann er rithöfundur og
dósent í íslenskum
bókmenntum við Há-
skóla Íslands.
Maki: Dagný Kristjánsdóttir, f. 1949, pró-
fessor í nútímabókmenntum við HÍ.
Börn: Snorri Hergill Kristjánsson, f.
1974, og Árni Kristjánsson, f. 1983.
Barnabarn: Ylfingur Kristján Árnason, f.
2017.
Foreldrar: Jón Hnefill Aðalsteinsson, f.
1927, d. 2010, prófessor í þjóðfræði, og
Sigurbjörg Jóhannsdóttir, f. 1925, d.
2004, hjúkrunarkona, síðast bús. í Rvík.
Kristján Jóhann Jónsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er mikil spenna í kringum
þig. Ekki láta streituna ná tökum á þér,
það tekur tíma að vinna úr henni. Ættingi
biður um ráð.
20. apríl - 20. maí
Naut Sitthvað bendir til þess að þú sért í
verslunarham. Allir gera mistök og líka
þú. Einhver mun slá þér gullhamra sem
þú átti ekki von á.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Láttu það ekki draga úr þér
kjarkinn, þótt vinir og vandamenn geri lít-
ið með skoðanir þínar þessa dagana. Vilji
er allt sem þarf.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ást við fyrstu sýn er möguleiki og
þú nýtur þess að daðra eins og enginn sé
morgundagurinn. Atvik úr fortíðinni leitar
á þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefðir gott af svolítilli einveru í
dag. Vinir leita til þín, þú ert jú svo frá-
bær. Haltu fast í barnið í þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft að vinna í því að ná tök-
um á tilfinningum þínum. Bíddu með
mikilvægar ákvarðanir fram í næstu viku.
Ekki hamast of mikið í ræktinni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú gerir engum greiða með því að
afneita staðreyndum. Farðu í gegnum
þær hugmyndir, sem þú hefur, og veldu
þær nýtilegustu til framkvæmda.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú verður að hafa augun op-
in fyrir þeim möguleikum, sem felast í líf-
inu. Drífðu í því að kynna ástvin fyrir fjöl-
skyldunni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ef þú leggur þig alla/n fram,
er ekki vafi á því að störf þín verða metin
á réttum stöðum. Afstaða þín til mála-
flokks mun valda deilum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Spennandi atburðir í einkalíf-
inu hressa upp á daginn. Ekki biðjast af-
sökunar á þínum gjörðum. Þú ert stjórn-
andinn í þínu lífi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Aukin ábyrgð hefur hvílt þungt
á þér undanfarið. Þú sérð fram á betri
tíma og auðveldari. Njóttu dagsins í dag,
í kvöld færðu heimsókn sem breytir
ýmsu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Farðu ekki of geyst í hlutina þótt
þér finnist þú fær í flestan sjó. Fólk er já-
kvætt gagnvart þér.
Erla Sæunn Guðmundsdóttir og Guðmundur
Þorkelsson fagna í dag demantsbrúðkaupi.
Þau gengu í hjónaband 10. maí 1959 í Laugar-
neskirkju og var það sr. Árelíus Níelsson sem
gaf þau saman.
Árnað heilla
Demantsbrúðkaup
50 ára Íris er Reykvík-
ingur og er eigandi og
framkvæmdastjóri
verslunarinnar Inn-
réttingar & tæki.
Maki: Grétar Þór
Grétarsson, f. 1971,
kerfisfræðingur hjá
Advania og eigandi Innréttinga & tækja.
Börn: Daníel Weidemann, f. 1988, Philip
Grétarsson, f. 1993, og Embla Mist Grét-
arsdóttir, f. 2000.
Foreldrar: Þórir Jensen, f. 1944, og
Helga Valsdóttir, f. 1946. Þau ráku versl-
unina Innréttingar & tæki sem föður-
amma Írisar, Svava Jensen, stofnaði árið
1945 og hét þá Jensen & Bjarnason.
Þórir og Helga eru bús. í Reykjavík.
Íris Jensen
Til hamingju með daginn