Morgunblaðið - 10.05.2019, Side 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2019
HANDBOLTI
Þýskaland
Wetzlar – Kiel ...................................... 23:27
Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá Kiel er frá
keppni vegna meiðsla. Alfreð Gíslason
þjálfar liðið.
Bietigheim – Hannover-Burgdorf .... 29:27
Hannes Jón Jónsson þjálfar Bietigheim.
Göppingen – Erlangen........................ 25:23
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen.
Staðan: Flensburg 56, Kiel 54, RN Lö-
wen 46, Magdeburg 44, Melsungen 36,
Bergischer 35, Füchse Berlín 34, Göpp-
ingen 34, Lemgo 26, Erlangen 26, Minden
25, Wetzlar 23, Hannover-Burgdorf 22,
Stuttgart 22, Leipzig 20, Gummersbach 11,
Bietigheim 11, Ludwigshafen 7.
Svíþjóð
Undanúrslit, fjórði leikur:
Sävehof – Skövde .................................28:23
Ágúst Elí Björgvinsson varði 7 af 25
skotum fengnum á sig í marki Sävehof.
Sävehof vann einvígið, 3:1, og mætir Al-
ingsås í úrslitaeinvígi sem hefst 18. maí.
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Guðnýju Jennyju Ásmundsdóttur,
landsliðsmarkverði í handknattleik,
var á dögunum sagt upp samningi
sínum við ÍBV á þeim forsendum að
félagið hefði ekkert við meiddan
markvörð að gera. Samningnum var
sagt upp munnlega af formanni
handknattleiksdeildar ÍBV á fundi í
búningsklefa karlaliðsins í hand-
knattleik í íþróttahúsinu í Vest-
mannaeyjum.
Jenny sleit krossband í hné í upp-
hitun fyrir landsleik í Póllandi í síð-
ari hluta mars og gekkst undir að-
gerð á mánudaginn. Komið hefur í
ljós að Jenny var ekki tryggð hjá
ÍBV.
„Sextánda apríl var ég kölluð á
fund formanns handknattleiks-
deildar ÍBV í íþróttahúsinu í Vest-
mannaeyjum. Þegar ég kom þangað
var ekkert fundarherbergi laust svo
hann fékk mig til þess að koma með
sér inn í karlaklefa handboltaliðsins.
Þar settist formaðurinn niður á
bekkinn og tilkynnti mér að félagið
ætlaði að nýta sér riftunarákvæði í
samningi við mig. Forsendur væru
að ÍBV hefði ekkert við meiddan
markvörð að gera,“ sagði Jenny í
samtali við Morgunblaðið.
Uppsögnin kom sem þruma úr
heiðskíru lofti. Jenny talaði við for-
manninn þegar hún kom heim eftir
að hafa meiðst í fyrrgreindri lands-
liðsferð og sagði honum að hún
stefndi ótrauð á að halda áfram og
mæta til leiks á næsta keppnis-
tímabili. Raunhæft er að Jenny geti
verið klár í að leika aftur snemma á
næsta ári.
„Formaðurinn sagði mér á fund-
inum að illa gengi að fjármagna
rekstur deildarinnar. Leitað væri
allra leiða til sparnaðar og rætt hefði
verið í því skyni við einhverja aðila
sem ég veit ekki hverjir eru. Þeir
höfðu að minnsta kosti ekki rætt við
mig áður en að fyrrgreindum fundi
kom 16. apríl. Mér hefði ekki þótt
óeðlilegt að kalla mig til fundar og
ræða um hvort hægt væri að endur-
semja. Ég tel að minnsta kosti að
hægt hefði verið að leysa málið á
ýmsan annan hátt en gert var,“ sagði
Jenny ennfremur.
„Formaðurinn sagði að nú yrði fé-
lagið að leita að markverði fyrir
kvennaliðið. Andrea Gunnlaugs-
dóttir, sem var með mér í markinu í
vetur, væri á leið upp á land og ég
meidd. Liðið væri markvarðarlaust
og þess vegna yrði að kaupa mark-
vörð í okkar stað,“ sagði Jenny, sem
er skiljanlega afar vonsvikin yfir að
vera skilin eftir í þessari stöðu.
Siðlaus aðgerð
Ekki er dregið í efa að ÍBV hafi
haft rétt á að segja samningnum
upp. Samkvæmt ákvæði í honum var
hægt að segja honum upp frá 1. til
20. apríl. „Ég sagði formanninum að
mér þætti aðgerðin siðlaus,“ sagði
Jenny.
Þar með var ekki öll sagan sögð.
Ekki aðeins var Jenny sagt upp
samningi sínum við þessar aðstæður
heldur kom í ljós á fyrrgreindum
fundi í karlaklefanum að hún væri
ekki tryggð af hálfu ÍBV. Íslenskum
félagsliðum hefur til þessa ekki verið
skylt að tryggja landsliðsfólk sitt en
HSÍ hefur mælst til þess að félögin
tryggi landsliðsmenn sína. Sam-
kvæmt alþjóðlegum reglum hand-
knattleikshreyfingarinnar eru fé-
lagslið skyldug til að tryggja
landsliðmenn. HSÍ hefur ekki tekið
þær reglur upp en það stendur til
fyrir næsta keppnistímabil, eftir því
sem næst verður komist.
Kaldar kveðjur
HSÍ greiðir fyrir aðgerð og endur-
hæfingu. ÍBV vildi að HSÍ stæði
einnig straum af launakostnaði
Meidd og
sagt upp
hjá ÍBV
Landsliðsmarkverði kvenna sagt
upp fyrirvaralaust í klefa karlaliðs ÍBV
Öflug Guðný Jenny Ásmunds-
dóttir hefur lengi verið í allra
fremstu röð markvarða á Íslandi.
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Kaplakriki: FH – KA ................................ 18
Samsung-völlur: Stjarnan – HK ......... 19.15
Würth-völlur: Breiðablik – Víkingur R... 20
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Varmárv.: Afturelding – Leiknir R..... 19.15
Framvöllur: Fram – Fjölnir ................ 19.15
Vivaldi-völlur: Grótta – Þróttur R ...... 19.15
2. deild karla:
Vogaídýfuvöllur: Þróttur V. – Kári..... 19.15
3. deild karla:
Valsvöllur: KH – Kórdrengir ................... 20
1. deild kvenna, Inkasso-deildin:
Ásvellir: Haukar – Tindastóll................... 18
Norðurálsvöllur: ÍA – FH.................... 19.15
Fífan: Augnablik – Grindavík.............. 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Umspil karla, oddaleikur:
Víkin: Víkingur – HK (2:2)........................ 18
Í KVÖLD!
Spánn
Obradoiro – Gran Canaria ................. 82:96
Tryggvi Snær Hlinason lék 2 mínútur
fyrir Obradoiro og gaf 1 stoðsendingu á
þeim tíma.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, undanúrslit:
Milwaukee – Boston ........................... 116:91
Milwaukee vann 4:1 og mætir Phila-
delphia eða Toronto í úrslitum.
Vesturdeild, undanúrslit:
Golden State – Houston..................... 104:99
Staðan er 3:2 fyrir Golden State.
KÖRFUBOLTI
Atli Barkarson, átján ára gamall Húsvíkingur, var á
dögunum heiðraður fyrir frammistöðu sína í vetur með
unglingaliði enska knattspyrnufélagsins Norwich City.
Atli hefur verið í röðum Norwich í tæplega tvö ár, eft-
ir að hafa leikið 15 ára gamall með meistaraflokki Völs-
ungs, og hann á samtals 24 leiki að baki með yngri lands-
liðum Íslands. Hann var annar tveggja leikmanna í
akademíu Norwich sem voru heiðraðir sérstaklega fyrir
frammistöðu sína á lokahófi akademíunnar.
Auk Atla er annar Íslendingur, Mosfellingurinn Ísak
Snær Þorvaldsson, í akademíu Norwich. Þar var einnig
Ágúst Hlynsson áður en hann fór til Bröndby í Dan-
mörku og svo til Víkings R. nú í vor.
Aðallið Norwich vann sér sæti í úrvalsdeild á dögunum. Þeir Max Aarons
og Todd Cantwell, tveir af leikmönnum liðsins sem vann ensku B-deildina,
voru einmitt á meðal gesta á lokahófi akademíunnar en þeir komu báðir
upp úr unglingastarfi Norwich.
Norwich sýndi Atla heiður
Atli
Barkarson
Agnes Brynjarsdóttir, Íslands-
meistari í borðtennis, verður eftir
því sem Morgunblaðið kemst næst
yngst Íslendinga frá upphafi til
þess að keppa á Smáþjóðaleikum
þegar leikarnir fara fram í Svart-
fjallalandi í lok mánaðarins.
Agnes er aðeins 12 ára en er ein
sex keppenda sem Aleksey Yefre-
mov landsliðsþjálfari valdi. Annar
borðtenniskappi, Guðmundur
Stephensen, keppti 12 ára á sínum
fyrstu Smáþjóðaleikum en átti þá
stutt í 13 ára afmæli sitt.
Verður yngsti
keppandinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Meistari Agnes Brynjarsdóttir er
ríkjandi Íslandsmeistari, 12 ára.
NÝ ÞJÓNUSTA
FYRIR ÁSKRIFENDUR
HLJÓÐMOGGI FYRIR
FÓLK Á FERÐ