Morgunblaðið - 10.05.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2019
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 20. maí.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105, kata@mbl.is
Blaðið verður með góðum
upplýsingum um garðinn,
pallinn, heita potta,
sumarblómin, sumar-
húsgögn og grill ásamt
girnilegum uppskriftum.
Garðar &grill
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 24. maí
SÉRBLAÐ
Inkasso-deild kvenna
Þróttur R. – ÍR ....................................... 10:0
Linda Líf Boama 5., 56., 71., Álfhildur Rósa
Kjartansdóttir 26., 76., Lauren Wade 39.,
51., Elísabet Freyja Þorvaldsd. 28., Gabrí-
ela Jónsdóttir 63., Olivia Bergau 79. (víti)
Afturelding – Fjölnir .............................. 0:0
3. deild karla
Skallagrímur – Álftanes .......................... 1:5
KV – Reynir S........................................... 2:1
Staðan:
KV 2 2 0 0 4:2 6
Álftanes 2 1 1 0 6:2 4
Reynir S. 2 1 0 1 4:3 3
Kórdrengir 1 1 0 0 2:1 3
Skallagrímur 2 1 0 1 3:6 3
Augnablik 1 0 1 0 3:3 1
KH 1 0 1 0 3:3 1
KF 1 0 1 0 1:1 1
Einherji 1 0 0 1 1:2 0
Höttur/Huginn 1 0 0 1 1:2 0
Vængir Júpiters 1 0 0 1 1:2 0
Sindri 1 0 0 1 1:3 0
Evrópudeild UEFA
Undanúrslit, seinni leikir:
Chelsea – Eintracht Frankfurt.............. 1:1
Ruben Loftus-Cheek 28. – Luka Jovic 49.
Chelsea áfram eftir vítaspyrnukeppni.
Valencia – Arsenal .................................. 2:4
Kevin Gameiro 11., 58., Pierre-Emerick
Aubameyang 17., 69., 88., Alexandre Laca-
zette 50.
Arsenal áfram, 7:3 samanlagt.
Danmörk
B-deild:
Viborg – Fredericia ................................ 2:1
Ingvar Jónsson varði mark Viborg.
Efstu lið: Silkeborg 54, Viborg 53, Næst-
ved 48, Fremad Amager 47. Þrjár umferðir
eftir, sigurlið beint upp, næstu tvö í umspil.
Þróunarmót UEFA U16 kvenna
Leikið í Króatíu:
Ísland – Norður-Makedónía................. 15:0
Amanda Jacobsen Andradóttir 2., 14., 26.,
40., Snædís María Jörundsdóttir 10., 44.,
46., Hildur Lilja Ágústsdóttir 20., 29., Erla
Sól Vigfúsdóttir 41., Aníta Ýr Þorvalds-
dóttir 48., 59., Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
55., Andrea Marý Sigurjónsdóttir 80.,
Emma Steinsen Jónsdóttir 80.
KNATTSPYRNA
2. UMFERÐ
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Valur og Breiðablik hreiðruðu betur
um sig í tveimur efstu sætum úrvals-
deildar kvenna í fótbolta í annarri
umferð deildarinnar í vikunni. Það
kom ekkert á óvart og liðin, sem
væntanlega berjast um meistaratit-
ilinn í ár, unnu tiltölulega þægilega
útisigra á KR og Selfossi.
Stjarnan getur þó líklega best við
unað eftir tvær fyrstu umferðirnar.
Garðabæjarliðið var nánast óskrifað
blað fyrir tímabilið vegna gríðar-
legra breytinga á leikmannahópnum
og Kristján Guðmundsson mætir
þar til leiks með mun yngra og
óreyndara lið en þar hefur verið teflt
fram um árabil.
Stjarnan hefur hinsvegar unnið
báða sína leiki, báða á heimavelli.
Reyndar báða gegn liðum sem spáð
er fallbaráttu, 1:0 gegn Selfossi og
1:0 gegn HK/Víkingi, en Stjörnu-
stúlkur eru komnar með sex dýrmæt
stig sem gefa þeim ákveðið svigrúm
áður en þær takast á við næsta verk-
efni sem er útileikur gegn hinu leik-
reynda Valsliði á þriðjudagskvöldið
kemur.
Selfoss, KR og Keflavík eru án
stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar
og nýliðarnir í Keflavík fá næst það
erfiða verkefni að taka á móti
Breiðabliki á meðan Selfoss og KR
eiga meiri vonir um stig gegn HK/
Víkingi og Fylki.
Cloé afgreiddi Keflvíkinga
Kanadíski framherjinn Cloé La-
casse úr ÍBV var besti leikmaður 2.
umferðar að mati Morgunblaðsins.
Cloé var í aðalhlutverki í sigri Eyja-
kvenna í Keflavík þar sem hún ógn-
aði marki heimaliðsins hvað eftir
annað, skoraði síðan fyrra markið í
2:0 sigrinum og lagði það seinna upp
fyrir Clöru Sigurðardóttur.
Cloé er 25 ára gömul og leikur sitt
fimmta tímabil með ÍBV. Hún er
orðin fimmta markahæst í sögu fé-
lagsins í efstu deild með 44 mörk í 69
leikjum. Cloé hefur oft lýst yfir
áhuga sínum á því að gerast íslensk-
ur ríkisborgari og leika fyrir Íslands
hönd.
Sextán ára með sigurmarkið
Jana Sól Valdimarsdóttir úr
Stjörnunni var sá ungi leikmaður
sem sló í gegn í 2. umferð. Jana, sem
varð 16 ára í janúar, kom inn á sem
varamaður eftir rúmlega klukku-
tíma leik gegn HK/Víkingi og skor-
aði sigurmarkið með glæsilegum til-
þrifum tíu mínútum síðar.
Þetta var hennar fyrsta mark í
efstu deild og aðeins hennar þriðji
leikur í deildinni en Jana lék tvo leiki
með Stjörnunni í fyrra, þá 15 ára.
Þess má geta að faðir hennar,
Valdimar Kristófersson, var í stóru
hlutverki hjá Stjörnunni á árum áð-
ur. Hann var í fyrsta karlaliði Garða-
bæjarfélagsins sem lék í efstu deild
á árunum 1990 og 1991, gerði 9 mörk
í 33 leikjum í deildinni þau tvö ár og
lék síðast með Stjörnunni 2006.
Einn annar leikmaður skoraði
sitt fyrsta mark í deildinni í 2. um-
ferð. Það var hin bandaríska Darian
Powell sem gerði mark Selfoss í 1:4
ósigrinum gegn Breiðabliki.
Arna Sif setti félagsmet
Miðvörðurinn og fyrirliðinn
Arna Sif Ásgrímsdóttir varð í fyrra-
kvöld leikjahæsti leikmaðurinn í
sögu Þórs/KA í efstu deild þegar
hún lék með liðinu í 2:0 sigrinum á
Fylki. Arna Sif lék þar sinn 152. leik
fyrir liðið í deildinni og sló met Kar-
enar Nóadóttur sem lék 151 leik. Sú
þriðja hæsta hjá Akureyrarliðinu,
Lára Einarsdóttir, var einnig með í
þessum leik og lék sinn 137. leik.
Andrea Mist Pálsdóttir skoraði
600. mark Þórs/KA í efstu deild þeg-
ar hún gerði seinna markið í sigr-
inum á Fylki í fyrrakvöld.
ÍBV lék sinn 300. leik í efstu
deild kvenna þegar liðið vann Kefla-
vík 2:0 á þriðjudagskvöldið.
Edda María Birgisdóttir lék
sinn fyrsta deildaleik frá árinu 2014
þegar hún spilaði með Stjörnunni í
1:0 sigrinum á HK/Víkingi. Edda lék
bæði með Stjörnunni og Aftureld-
ingu það tímabil og spilaði síðan með
Anderlecht í Belgíu um haustið. Hún
spilaði jafnframt sinn 100. leik í
efstu deild gegn HK/Víkingi.
Margrét Lára Viðarsdóttir
fagnaði sínum fyrstu mörkum í
deildinni í tvö ár þegar hún skoraði
tvisvar í 3:0 sigri Vals á KR. Mar-
grét skoraði gegn Grindavík 25. maí
2017 en slasaðist illa á hné í næsta
leik á eftir og missti úr meira en
hálft annað tímabil. Margrét hefur
nú skorað 194 mörk í deildinni frá
upphafi og samtals 246 mörk í efstu
deildum Íslands, Svíþjóðar og
Þýskalands á ferlinum.
Hildur í annað sinn
Hildur Antonsdóttir miðjumað-
ur úr Breiðabliki er eini leikmað-
urinn sem er í annað skipti í liði um-
ferðarinnar hjá Morgunblaðinu á
þessu keppnistímabili en hún var
líka í úrvalsliðinu hjá okkur eftir
fyrstu umferðina. Samtals hefur því
21 leikmaður verið valinn í liðið til
þessa.
Vegna skorts á varnarmönnum er
Sigríði Láru Garðarsdóttur, miðju-
manni ÍBV og landsliðskonu, stillt
upp sem miðverði í úrvalsliðinu að
þessu sinni og það er skipað mörg-
um sókndjörfum leikmönnum.
Þriðja umferð deildarinnar
hefst á sunnudag þegar ÍBV mætir
Þór/KA í Vestmannaeyjum. Á
mánudagskvöld mætast Fylkir –
KR, Keflavík – Breiðablik og HK/
Víkingur – Selfoss og umferðinni
lýkur með leik Vals og Stjörnunnar
á þriðjudagskvöld.
Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019
Þessar eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir
góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik.
Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 3
Cloé Lacasse, ÍBV 3
Elín Metta Jensen, Val 3
Natasha Moraa Anasi, Keflavík 3
Alexandra Jóhannsdóttir, Breiðabliki 2
Andrea Mist Pálsdóttir, Þór/KA 2
Berglind Rós Ágústsdóttir, Fylki 2
Birta Guðlaugsdóttir, Stjörnunni 2
Clara Sigurðardóttir, ÍBV 2
Emma Kelly, ÍBV 2
Halla M. Hinriksdóttir, HK/Víkingi 2
Hildur Antonsdóttir, Breiðabliki 2
Hlín Eiríksdóttir, Val 2
Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 2
Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 3
Hlín Eiríksdóttir, Val 3
Andrea Mist Pálsdóttir, Þór/KA 2
Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 2
Markahæstar
Valur 11
Breiðablik 11
Stjarnan 10
ÍBV 10
HK/Víkingur 8
Fylkir 7
Þór/KA 6
Keflavík 6
Selfoss 4
KR 3
Lið:
Leikmenn:
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
23-4-3
Cecilía Rán Rúnarsdóttir
Fylki
Cloé Lacasse
ÍBV
Jana Sól Valdimarsdóttir
Stjörnunni
Hildur
Antonsdóttir
Breiðabliki
Andrea Mist
Pálsdóttir
Þór/KA
Margrét Lára
Viðarsdóttir
Val
Berglind Björg
Þorvaldsdóttir
Breiðabliki
Edda María
Birgisdóttir
Stjörnunni
Sigríður Lára
Garðarsdóttir
ÍBV
Elín Metta Jensen
Val
Viktoría Valdís
Guðrúnardóttir
Stjörnunni
2. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2019
2
Sóley Guðmundsdóttir, Stjörnunni 2
Sveindís Jane Jónsdóttir, Keflavík 2
Þórhildur Þórhallsdóttir, HK/Víkingi 2
Góð byrjun í Garðabæ
Stjarnan fylgir Val og Breiðabliki eftir með fullt hús eftir tvær umferðir
Cloé Lacasse best í annarri umferð Jana Sól Valdimarsdóttir sló í gegn
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Mikilvæg Cloé Lacasse var allt í
öllu hjá ÍBV í sigrinum í Keflavík.
Hannes Jón Jónsson stýrði Bietig-
heim til afar dýrmæts sigurs á
Hannover-Burgdorf, 29:27, í þýsku
1. deildinni í handbolta í gær. Biet-
igheim er enn í fallsæti en nú jafnt
næsta liði, Gummersbach, að stig-
um. Bietigheim á fjóra leiki eftir en
Gummersbach fimm, en liðin mæt-
ast í Bietigheim í lokaumferðinni.
Mikilvæg stig
hjá Hannesi