Morgunblaðið - 10.05.2019, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2019
Íslenska U17-landsliðið í knatt-
spyrnu karla leikur óeiginlegan úrslita-
leik við Portúgal í dag um að komast
upp úr C-riðli og í 8-liða úrslitin á EM á
Írlandi. Íslandi dugar jafntefli til að
enda í 2. sæti og komast áfram, en liðið
getur ekki náð efsta sætinu af Ung-
verjalandi hvernig sem fer. Komist Ís-
land áfram mætir liðið sigurliðinu úr
leik Spánar og Ítalíu sem þegar hafa
tryggt sér efstu tvö sætin í D-riðli.
Baldur Sigurðsson og Guðjón Bald-
vinsson eru klárir í slaginn með Stjörn-
unni í kvöld þegar liðið mætir HK í
Garðabæ í 3. umferð úrvalsdeildarinnar
í fótbolta. Báðir hafa þeir farið meiddir
af velli eftir slæm högg á háls nú í upp-
hafi leiktíðar, Baldur í 1. umferð og Guð-
jón eftir fyrri hálfleik gegn Grindavík í 2.
umferð. Guðjón staðfesti við Morg-
unblaðið í gær að hann væri orðinn heill
heilsu og Baldur hafði sömu sögu að
segja við Fótbolta.net. Stjarnan hefur
fengið tvö stig úr fyrstu tveimur um-
ferðunum.
Framherjinn Viktor Jónsson mun
ekki spila með ÍA næstu vik-
urnar vegna kinnbeinsbrots-
ins undir lok leiks gegn Fylki
í síðustu umferð í úr-
valsdeildinni í fót-
bolta. Viktor fer í að-
gerð vegna
brotsins í dag.
Hann segir við Fót-
bolta.net að hann
vonist til þess að
hægt verði að
útbúa sérstaka
grímu fyrir sig,
og að hann geti
aftur byrjað að spila
fótbolta eftir 3-4 vikur.
Eitt
ogannað
Hin 17 ára gamla Linda Líf Boama
hóf tímabilið í 1. deildinni í knatt-
spyrnu með hvelli þegar hún skor-
aði þrennu í 10:0-sigri Þróttar R. á
ÍR. Linda Líf, sem kom til Þróttar
frá HK/Víkingi í vetur, opnaði
markareikning sinn strax á 5. mín-
útu og bætti svo við tveimur mörk-
um í seinni hálfleik, en Þróttarar
náðu 4:0-forystu fyrir leikhlé.
Lauren Wade og Álfhildur Rósa
Kjartansdóttir skoruðu tvö mörk
hvor fyrir Þróttara sem urðu í 4.
sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.
Afturelding og Fjölnir gerðu
markalaust jafntefli í hinum leik
gærkvöldsins. Liðin voru á svip-
uðum slóðum og ÍR á síðustu leiktíð
en þessi þrjú lið enduðu í 6.-8. sæti í
fyrra.
Fyrstu umferð lýkur með þremur
leikjum í kvöld. sindris@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Sterk Linda Líf Boama berst um boltann en hún skoraði þrennu gegn ÍR.
Sautján ára með þrennu
í risasigri í fyrsta leik
Eftir hálfgerða drottnun spænskra
liða í Evrópukeppnum karla í knatt-
spyrnu síðustu ár, þar sem þau hafa
unnið Meistaradeildina og Evrópu-
deildina í níu af tíu tilvikum frá og
með árinu 2014, hafa þau ensku nú
tekið við. Það er nefnilega svo að öll
fjögur liðin sem komin eru í úrslita-
leikina tvo í keppnunum eru ensk, og
er það algjört einsdæmi að eitt land
eigi alla fjóra fulltrúana í úrslita-
leikjum keppnanna eða fyrirrennara
hennar.
Chelsea slapp með skrekkinn í
einvígi sínu við Frankfurt sem end-
aði í vítaspyrnukeppni í London í
gærkvöld, þar sem Kepa Arrizaba-
laga reyndist hetja Chelsea með því
að verja tvær vítaspyrnur. Arsenal
vann af öllu meira öryggi einvígi sitt
við Valencia en með 4:2-sigri á Spáni
í gær, þar sem Pierre-Emerick
Aubameyang skoraði þrennu, vann
Arsenal einvígið samtals 7:3.
Úrslitaleikur Evrópudeildarinnar
fer fram í Baku í Aserbaídsjan mið-
vikudagskvöldið 29. maí. Sigur þar
væri Arsenal enn dýrmætari en
Chelsea, þar sem liðið á ekki lengur
raunhæfa möguleika á að enda í einu
af fjórum efstu sætum ensku úrvals-
deildarinnar og fá þar með sæti í
Meistaradeildinni á næstu leiktíð.
Aðeins sigur í Evrópudeildinni
myndi duga Arsenal til að fá sæti í
Meistaradeildinni, en þá myndu
ensk lið fá fimm sæti í keppninni í
stað fjögurra.
Unai Emery, stjóri Arsenal, vann
Evrópudeildina þrjú ár í röð með
Sevilla: „Það sem er liðið getur nýst
sem reynsla í nútíð. Það er mjög erf-
itt að spila úrslitaleiki en við nýttum
tækifærið vel í kvöld [gærkvöld] og
erum mjög ánægðir með það. Ég er
gríðarlega stoltur af leikmönnunum
og stuðningsmönnum okkar,“ sagði
Emery í gær. sindris@mbl.is
Enskt hlaðborð í úrslitaleikjum
Einstakt afrek
ensku liðanna í
Evrópukeppnum
AFP
Hetjan Chelsea-menn fagna Kepa Arrizabalaga sem reyndist hetja liðsins í vítaspyrnukeppninni í gærkvöld.
Með góðri vörn og markvörslu
Ágústs Elís Björgvinssonar tókst
Sävehof að vinna Skövde 28:23 í
gær og tryggja sér sæti í úrslita-
einvíginu um sænska meistara-
titilinn í handbolta. Sävehof vann
einvígið 3:1 og mætir Alingsås sem
óvænt sló meistara síðustu ára,
Kristianstad, út 3:0.
Ágúst er skráður með 28% varin
skot í leiknum á vef sænsku deild-
arinnar en í umfjöllun Expressen
segir að hann hafi oft staðið í veg-
inum framan af leik. Sävehof komst
í 19:10 snemma í seinni hálfleik.
Ágúst kominn í
úrslitaeinvígið
Ljósmynd/IK Sävehof
Góður Ágúst Elí Björgvinsson hefur
verið góður á seinni hluta leiktíðar.
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í
Kiel eiga enn von um að landa
þýska meistaratitlinum í handbolta
eftir 27:23-sigur á Wetzlar í gær.
Kiel er tveimur stigum á eftir topp-
liði Flensburg en liðin mætast í
sannkölluðum stórleik á sunnudag-
inn í Kiel. Kiel er með betri marka-
tölu og kæmist með sigri á toppinn.
Flensburg á reyndar eftir fimm
leiki en Kiel fjóra, en Flensburg á
til að mynda eftir að mæta liðunum
þremur sem sitja í 5.-7. sæti.
Sigurinn í gær var torsóttur en
Kiel skoraði fjögur síðustu mörkin.
Alfreð þrýstir
á Flensburg
Ljósmynd/thw-handball.de
Vinsæll Kiel heldur kveðjuveislu
fyrir Alfreð Gíslason í sumar.