Morgunblaðið - 10.05.2019, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2019
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Eden er þriðja kvikmynd leikstjór-
ans, handritshöfundarins og Bolvík-
ingsins Snævars Sölvasonar í fullri
lengd en sú fyrsta, Slay Masters,
var frumsýnd árið 2012 og þremur
árum seinna Albatross sem hlaut
á́gætisviðtökur.
„Eden fjallar um par, Lóu og Óli-
ver, sem lifa á jaðrinum. Þau kynn-
ast strax í upphafi, hann er á flótta
undan réttvísinni og hún er partí-
stelpa sem er komin í klandur. Þau
eru heimilislaus, fella fljótlega hugi
saman og komast að því að þau eiga
sér sameiginlega drauma sem þau
vilja að rætist.
Þau ákveða að færa björg í bú
með því að fara í smásölu á götunni,
selja gras og annað þvíumlíkt og
ætla sér að kýla á draumana. En á
þeirri leið komast þau í klandur og
upp á kant við vafasama menn,“
segir Snævar um umfjöllunarefni
kvikmyndarinnar. Með hlutverk
Lóu og Ólivers fara Telma Huld Jó-
hannesdóttir og Hansel Eagle sem
er listamannsnafn Ævars Arnar Jó-
hannssonar.
Adam og Eva í Reykjavík
– Titillinn er væntanlega vísun í
Biblíuna?
„Jú, algjörlega og í raun og veru
kviknaði hugmyndin út frá því að
ég var að grúska í Biblíunni út af
öðru verkefni. Ég var að lesa kafl-
ann um Adam og Evu og þá bara
kviknar þessi hugmynd. Adam og
Eva brutu nú ekki mikið af sér en
voru þó gerð útlæg og þurftu að lifa
á jaðrinum eftir það“ svarar Snæv-
ar.
– Þú skrifaðir handritið og þá
varla út frá eigin reynslu, eða hvað?
„Nei, nei en einn vinur minn var
að selja svona á götunni og ég fékk
að hanga með honum, vera með
honum á rúntinum,“ segir Snævar.
Sú upplifun hafi að hluta skilað sér í
handritið en hann hafi þó ekki viljað
hafa kvikmyndina algjört raunsæis-
verk. „Ég vildi að sjálfsögðu fá að-
eins andrúmsloftið og aðeins kynn-
ast þessu en mig langaði samt að
gera alvöru bíó,“ segir Snævar.
Eden sé með kunnuglegu þema úr
kvikmyndasögunni, elskendum á
flótta, eins og sjá megi í sígildum
kvikmyndum á borð við Bonnie og
Clyde og True Romance.
Trainspotting innblástur
„Mig langaði að gera True Rom-
ance á Íslandi,“ útskýrir Snævar.
Aðalpersónur myndarinnar séu
bara krakkar að selja gras eða pill-
ur, ekki skuggalegt fólk í dimmum
húsasundum. „Það er kannski bara
að hlusta á létta jólatónlist í útvarp-
inu á meðan það er að setja í poka
og vigta og tala um nýja heimildar-
mynd á Netflix,“ segir Snævar
sposkur. Það sé enginn dauði og
drungi í Eden heldur þvert á móti
slegið á létta strengi inn á milli al-
varlegri atriða. Myndin sé fyrir vik-
ið blanda raunsæis, spennu og
gríns.
Snævar segist einnig hafa litið
þónokkuð til kvikmyndarinnar
Trainspotting því persónur hennar
séu litríkar og oft spaugilegar.
„Þetta eru allt stórfurðulegir kar-
akterar og þú hlærð mikið að því
sem þeir lenda í en öðru hverju
lenda þeir í alveg hrikalegum að-
stæðum,“ útskýrir Snævar og nefn-
ir skelfilegt atriði úr Trainspotting
þar sem barn finnst látið í vöggu
sökum vanrækslu og annað þar sem
ein aðalpersónanna hefur óafvitandi
misst saur í rúmi unnustu sinnar. Í
Eden, líkt og í Trainspotting, megi
sjá litríkar persónur í krefjandi að-
stæðum.
Snúningur á þekkta grein
Snævar segist spenntur að sjá
hvaða viðbrögð myndin fái þar sem
hún sé ákveðinn snúningur á
þekkta tegund kvikmynda. „Í þess-
um myndum er gaurinn alltaf smá-
krimmi og stelpan er saklausari,
stekkur á vagninn og verður síðan
„bad girl“ en í þessari mynd er
gaurinn síðhærður nýaldarnáungi
sem er smeykur við þetta en hún er
grjóthörð og veður áfram. Þannig
að ég sneri upp á venjuna og síðan
er dálítill vottur af „sci-fi“ sem ég
veit ekki hvernig fólk mun taka í,“
segir Snævar og forðast að fara
lengra út í þá sálma.
„Þetta er svolítið nýtt, að ég held,
og ótrúlega sterkir litir. Við erum
vanari minni litanotkun á Íslandi,“
bætir hann við. Litirnir hafi bæði
verið magnaðir upp í tökum og
eftirvinnslu.
Finna má stiklu fyrir kvikmynd-
ina á YouTube.
Sölumenn Telma Huld Jóhannesdóttir og Hansel Eagle í hlutverkum Lóu og Ólivers í kvikmyndinni Eden.
Einbeittur Snævar undirbýr næstu töku á kvikmyndinni Eden.
Glæpamenn Kærustuparið Lóa og Óliver grátt fyrir járnum.
Litríkar persónur í
krefjandi aðstæðum
Snævar Sölvason frumsýnir kvikmyndina Eden
Verk lokaársnema við sviðshöf-
undabraut Listaháskóla Íslands
verða sýnd fram til 17. maí í hús-
næði skólans í Laugarnesi, Tungl-
inu í Austurstræti 2a, Tjarnarbíói,
Laugardalslauginni, Iðnó og í einka-
bíl. Eitt útskriftarverkanna,
Krakkaveldi eftir Salvöru Gullbrá
Þórarinsdóttur, var sýnt í Iðnó 1.
maí.
Í dag hefjast sýningar á lokaverki
Brynhildar Karlsdóttur, Viltu koma
á rúntinn?, sem fram fara í einkabíl
og verða fjórir rúntar farnir yfir
daginn. Í Tjarnarbíói kl. 18 frum-
sýnir Adolf Smári Unnarsson verkið
Kæri vinur og kl. 19.30 frumsýnir
Birnir Jón Sigurðsson verkið Inni í
húsi skólans í Laugarnesi. Kl. 21
verður svo frumsýning í Tjarnarbíói
á Ólgu eftir Aron Martin Ásgerð-
arson.
Á morgun, laugardag, verða tvær
frumsýningar, annars vegar á
Sviðsverki: leikverki í fimm þáttum
eftir Tómas Helga Baldursson í
Laugarnesi og á sama stað kl. 21.30
á verki Tatjönu Dísar Aldísar Ra-
zoumeenko, Það er maður allsstaðar
yfir þér, sem kennir skóm sínum um
kvilla fóta sinna.
Á sunnudag verða einnig tvær
frumsýningar, í Laugarnesi kl.
17.30 á verki Anítu Íseyjar Jóns-
dóttur, Í heimi þar sem stunda-
glasið stendur kyrrt og í Tunglinu
kl. 20.30 á verki Helga Gríms Her-
mannssonar, Næsta skref – blað
brotið í þróunarsögunni.
Mánudaginn 13. maí verður ein
frumsýning kl. 20 í Laugardalslaug
á verki Snæfríðar Sólar Gunnars-
dóttur, Sýnist lífs bara um því sem
það snýist.
Sýningartíma útskriftarverkanna
má finna á vef Listaháskóla Íslands
á slóðinni lhi.is/event/utskriftaverk-
svidshofunda-2019.
Í húsum, bíl og sundlaug
Útskrift Nemendurnir sem lokið hafa námi við sviðshöfundabraut LHÍ.