Morgunblaðið - 10.05.2019, Qupperneq 32
Serbneskt boð verður haldið í kvöld
kl. 20 í Hönnunarsafni Íslands, inn-
blásið af Belgrad í tengslum við sýn-
ingu Paolos Gianfrancescos arki-
tekts sem nú stendur yfir í safninu
og nefnist Borgarlandslag. Tónlistar-
konan Jelena Ciric mun leiða gesti
um sögu Belgrad og Serbíu með
söng og tónlistarflutningi ásamt
Margréti Árnadóttur sem leikur á
harmóniku. Þá mun Paolo Gian-
francesco veita leiðsögn um sýning-
una. Aðgangseyrir er 3.500 kr. og
hámarksfjöldi gesta 40.
Serbneskt boð
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 130. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Það kemur ekkert á óvart að Valur
og Breiðablik skuli þegar hafa
hreiðrað um sig í efstu tveimur
sætum úrvalsdeildar kvenna í fót-
bolta. Þessi lið koma til með að
berjast um meistaratitilinn í ár.
Gjörbreytt lið Stjörnunnar er þó
með sama stigafjölda. Önnur um-
ferð deildarinnar er gerð upp í
Morgunblaðinu í dag. »26
Góð byrjun í Garðabæ
hjá gjörbreyttu liði
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Verður og fer sem fer? / Que Sera
Sera? nefnist sýning Þuríðar Sig-
urðardóttur myndlistarmanns sem
opnuð verður í Hannesarholti í dag
kl. 16. Þuríður segir hugmyndina að
verkunum hafa kviknað hjá sér eftir
að Parísarsamkomulagið var undir-
ritað. Í málverkum hennar má sjá
bráðnandi jökla og eru þau öll mál-
uð á notaðan striga í anda þess að
minnka sóun.
Þuríður fæst
fyrst og
fremst við
olíumálverk
og viðfangs-
efnið er gjarn-
an náttúran.
Bráðnandi jöklar í
málverkum Þuríðar
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Martin Hauksson, starfsmaður
heildverslunarinnar Garra undan-
farin 19 ár, fagnaði tíunda Íslands-
meistaratitlinum sem liðsstjóri
körfuboltaliðs KR í meistaraflokki
karla um nýliðna helgi. „Ég minnti
Teit Örlygsson, fyrrverandi stjörnu-
leikmann Njarðvíkinga, á það eftir
úrslitaleikinn að nú værum við efstir
og jafnir,“ segir hann. „Ég hef samt
aldrei æft körfubolta.“
Ingi Þór Steinþórsson tók fyrst
við þjálfun KR-liðsins 1999 og það
varð Íslandsmeistari vorið eftir.
„Það var fyrsti titill minn og þá var
Martin, sonur Hemma bróður, að-
stoðarmaður minn, sex ára gamall á
árinu!“ segir Martin.
Næsti titill kom 2007 undir stjórn
Benedikts Guðmundssonar, svo
2009, þegar Benedikt var aðalþjálf-
ari og Ingi Þór aðstoðarþjálfari, þá
2011 undir stjórn Hrafns Kristjáns-
sonar og síðan sex ár í röð frá 2014,
fyrstu fimm skiptin með Finn Frey
Stefánsson sem þjálfara og Inga Þór
í ár.
„Goðsögnin Axel Nikulásson tók
við þjálfun KR-liðsins 1994, ég tók
að mér liðsstjórnina og hef verið í
þessu starfi síðan,“ segir Martin.
„Áður en bikaraflóðið kom hafði ég
oft upplifað með liðinu að leika í úr-
slitum, en þá unnu Suðurnesjaliðin
allt sem hægt er að vinna.“
Með Hemma á æfingar
Afskipti Martins af körfubolta
hófust þegar bróðir hans, Hermann
Hauksson, byrjaði að æfa hjá KR.
„Ég fór oft með honum á æfingar,
horfði bara á, og eftir að ég fékk bíl-
próf keyrði ég hann gjarnan fram og
til baka. Ég þekkti alla strákana í
körfunni og þegar ég var beðinn að
taka að mér liðsstjórnina í nokkrum
leikjum var það sjálfsagt mál. Leik-
irnir eru orðnir ansi margir á þess-
um 25 árum en tíminn hefur liðið
hratt.“
KR var varla nefnt þegar spáð var
um meistara í upphafi móts. „Það er
alltaf jafngaman að verða meistari
en ég held að þessi titill sé sérstakari
en hinir vegna þess að okkur var
ekki spáð neinu gengi í kjölfar mik-
illa breytinga á liðinu,“ segir Martin.
„Skemmtilegustu augnablikin eru
þegar maður á ekki von á neinu og
landar svo þeim stóra.“
Martin áréttar að alltaf sé gaman
að vinna titla en hápunkturinn hafi
verið 2014. „Þá var Martin kosinn
besti leikmaður úrslitakeppninnar,
besti leikmaður deildarinnar og sá
efnilegasti auk þess sem hann var
útnefndur Íþróttamaður Reykjavík-
ur. Arnór, bróðir hans, var Íslands-
meistari með mér 2016, 2017 og 2018
og það var ekki leiðinlegt. Anna
Margrét, systir þeirra, var svo Ís-
landsmeistari með 7. flokki KR í ár.
Fyrsti titillinn, árið 2000, er líka eft-
irminnilegur, ekki síst fyrir þær sak-
ir að þá vorum við Ingi saman eins
og nú og liðið hafnaði í 5. sæti fyrir
úrslitakeppnina, rétt eins og í ár.“
KR hefur haft 12 þjálfara síðan
1994 en aðeins einn liðsstjóra.
„Strákarnir vilja hafa gamla karlinn
áfram og ekki er hægt að bregðast
þeim,“ segir Martin. Segist samt oft
hafa hugsað með sjálfum sér að nú
væri komið nóg. „Þetta er bara svo
gaman og þegar undirbúningur
hefst fyrir nýtt tímabil er fiðringur-
inn gjarnan öðru yfirsterkari.“
Morgunblaðið/Hari
Fögnuður KR-ingar fagna Íslandsmeistaratitlinum um liðna helgi. Martin Hauksson þriðji frá hægri.
Karlinn í brúnni með tíu
Martin Hauksson fagnaði 10. Íslandsmeistaratitlinum sem
liðsstjóri KR í körfubolta Hefur verið á bekknum í 25 ár