Morgunblaðið - 14.05.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2019
Þ
egar undanúrslitaþættirnir birtast
á skjánum tæmast götur borga og
bæja landsins og allir raða sér fyr-
ir framan skjáinn. Alveg eins og
þegar skaupið er sýnt. Því ekki að
gera jafn mikið úr Eurovision-partíi og ára-
mótagilli? Stuðið er jú engu minna.
Blaðamaður brá á það ráð að hafa sam-
band við partí fagmennina þau Ragnheiði
Aradóttur og Jón S. Þórðarson en saman
reka þau viðburðafyrirtækið PROevents og
hafa skipulagt fjöldann allan af viðburðum í
gegnum árin.
Fyrst taka þau fram að boðið þurfi að
sníða eftir gestunum. Erum við með konu-
eða karlapartí eða bæði? Eru börn í partíinu?
Fjölskyldan?
„Tökum mið af gestunum og plönum svo
eftir því. Eins og með flest annað í lífinu
skiptir skipulag máli þegar partíið er und-
irbúið. Það er mjög þægilegt að hafa smá-
rétti klára. Fólk getur gætt sér á þeim yfir
útsendingunni og með þessum hætti ná fleiri
að sjá á skjáinn. Svo er mjög sniðugt að
tengja smáréttina við landið eða svæðið þar
sem keppnin er haldin, svona til að ýta að-
eins undir þá stemningu.“
Búningar virðast gera öll partí aðeins
skemmtilegri. Eruð þið með einhverjar hug-
myndir í kringum þá?
„Já, það er alltaf gaman að hafa eitthvert
búningaþema í Eurovision-partíi og tengja
búningana við ákveðin ár. Eins og til dæmis
árið sem ABBA vann. Þá geta allir klætt sig í
búninga sem líkjast þeirri tísku eða skreytt sig
með höfuðfati eða hárgreiðslu frá þeim tíma.
Svo væri ekki vitlaust að hafa Hatara-þema í
partíinu – fá svolítið hressandi lúkk á það.“
Þau stinga líka upp á því að skipta
keppnislöndum fyrir fram á milli gesta og
þeir mæti svo í fötum eða með veitingar
eftir því. „Sem dæmi, ef maður dregur
Frakkland þá þarf að mæta í rönd-
óttum bol með alpahúfu og crepes
eða croissant. Svo má ganga alla leið
og tala með frönskum hreim allt
kvöldið!“
Kokteilar eru alltaf vinsælir og að
sjálfsögðu þurfa þeir ekki allir að
innhalda áfengi svo krakkarnir geti
nú verið með. „Það er mjög sniðugt
að skreyta þá eftir landi. Til dæmis
með fánalitum viðkomandi lands og að
sjálfsögðu er mikilvægt að setja litríkt
skraut í glösin þar sem litir eru einkennandi
fyrir Eurovision. Reyndar mega litirnir vera
um allt. Þeir skapa svo góða stemningu.“
Fagmennirnir benda einnig á að gaman sé
að skreyta stofuna hátt og lágt og þar sem
við séum stuðningsmenn Íslands sé upplagt
að nota fánalengjur. Til að auka á gleðina má
nota andlitsmálningu á yngstu gestina og
sumir gætu skellt á sig förðun að hætti Hat-
ara.
„Til að fara svo alveg alla leið mætti
föndra Hatara-grímu og skarta henni á
keppniskvöldinu!“
Sumum leiðist aðeins þegar stigin eru talin
en þau Jón og Ragnheiður eiga ráð við því.
„Að sjálfsögðu er nauðsynlegt að viðhalda
Eurovision-stemningunni allt kvöldið og því
þarf partíhaldarinn að vera klár með „play-
lista“ með öllum bestu Eurovision-lögunum í
gegnum árin. Bæði þau íslensku og erlendu.
Setja allt í botn og keyra upp stuðið í stiga-
gjöfinni!“
Þar sem þetta er keppni þá er ekkert eðli-
legra en að veðja á sigurvegara og tapara.
Fagmennirnir leggja til að allir velji þau lönd
sem þeir telja að lendi í fimm efstu sætunum
og skrái þau niður áður en keppnin hefst.
Verðlaunin hlýtur svo sá eða sú sem var
næst lokaúrslitunum.
„Svo má skrifa nöfn keppnislandanna á
miða og setja í skál. Hver gestur dregur svo
eitt land úr skálinni og ef landið sem gest-
urinn dregur fær 12 stig þá má hann
eða hún fá sér eitthvert góðgæti úr
sérstökum umbunarpotti en í hann
fer eitthvað sem öllum finnst gott. Til
að setja endapunktinn á leikinn sé
gaman að hafa sérstök heiðursverðlaun
fyrir þann sem fékk oftast 12 stig. Svo
má líka útfæra leikinn þannig að þau sem
fá 10 stig verða að gera eitthvað pínu fyndið
eins og t.d. að syngja stutt stef úr laginu sem
var framlag landsins sem viðkomandi dró.“
Hvað ef meirihluti gestanna er krakkar?
„Þá er mjög góð hugmynd að gera spjöld
frá 1 upp í 12. Krakkarnir gefa svo löndunum
stig eftir hvert lag og einhver stjórnar leikn-
um þannig að allir rétti upp á sama tíma.
Þau skrá niður hvaða einkunn þau gefa
hverju landi, svo kemur í ljós hvort spáin
gengur eftir og að sjálfsögðu eru verðlaun
fyrir þann sem kemst næst endanlegum úr-
slitum. Þetta er svona svipað og í þættinum
Alla leið.“
„Til að setja punktinn sprengjum við svo
confetti-sprengjur þegar úrslitin verða til-
kynnt. Tökum bara ryksuguna fram daginn
eftir!“
Hvernig er hið fullkomna Eurovision-partí? Eigum við að halda okkur við grillaðar
pylsur og Haribo í risaskál á stofuborðinu eða taka þetta upp á næsta level?
Margrét Hugrún Gústavsdóttir | margret.hugrun@gmail.com
Hið fullkomna Eurovision-partí
Hvernig væri að hafa ABBA-
þema í Eurovision-teitinu?