Morgunblaðið - 24.06.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 2019
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
Öflugar Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
Greinaklippur
frá 595
695
Strákú
á tann
verði
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
frá 995
Garðslöngur
í miklu úrvali
Fötur í
miklu úrvali
3.995
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar.........
Léttar og góðar hj
með 100 kg burðargetu
999Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
Laufhrífur
frá 999
Laufsugur
7.495
Úðabrúsar
í mörgum stærðum
frá 995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
60 ára Magnús er
Reykvíkingur, pípulagn-
ingameistari og rekur
eigið fyrirtæki sem
heitir Pípulagninga-
meistarinn.
Maki: Ósk Jónsdóttir, f.
1959, hárgreiðslu-
meistari.
Börn: Hinrik Ingi, f. 1979, Elmar, f. 1984,
Ernir, f. 1993, og tvíburarnir Kolka Máney
og Salka Arney, f. 1997.
Foreldrar: Kristinn Ingvar Ásmundsson,
f. 1929, d. 2005, pípulagningamaður, og
Una Magnúsdóttir, f. 1917, d. 2005, hús-
móðir.
Magnús Smári
Kristinsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Skrifaðu niður hugmyndir þínar en
bíddu með ákvarðanir til morguns. Ef þú
hefur ekki markmið þá dregur það úr ár-
angri.
20. apríl - 20. maí
Naut Við höfum öll þörf fyrir dagdrauma
einstöku sinnum. Afbrýðisemi gæti skotið
upp kollinum í samböndum sem eru ný af
nálinni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vel orðaðar röksemdir þínar
munu láta hlutina gerast, svo láttu í þér
heyra. Hafðu vaðið fyrir neðan þig þegar
þú gerir tilboð af hvaða tagi sem er.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er eitt og annað sem þú átt
ógert heima fyrir og nú verður ekki lengur
undan því vikist að ganga frá þeim málum.
Þú veist hvað þú vilt, það getur enginn
snúið þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hafðu hemil á eyðslu þinni og fyrir
alla muni haltu henni innan skynsamlegra
marka. Þú færð gjöf sem mun gleðja þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert ekki sömu skoðunar og yfir-
maður þinn um málefni fyrirtækisins og
aðra hluti sem því tengjast. Einhver kemur
þér til varnar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er ekkert vit í öðru en að hafa alla
hluti á þurru þegar taka þarf ákvörðun í
mikilvægu máli. Notaðu tækifærið þegar
það býðst og stökktu út í heim.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur nú byrinn með þér
og ert fær í flestan sjó. Margt er utan þíns
sviðs og alls ekki á þínu færi að fást við.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það skiptir öllu máli að þér
takist að halda þér í jafnvægi hvað sem á
dynur. Reyndu að bera þig vel þótt eitt-
hvað bjáti á. Vinur kemur á óvart.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Taktu einn hlut fyrir í einu því ef
þú ert með of mörg járn í eldinum þá fer
allt úr böndunum. Þú átt gott með að fást
við börn og unglinga.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Peningar eru ekki leiðin til þess
að gera drauma þína að veruleika en
hjálpa svo sannarlega til. Hringdu í gamlan
vin, sem þú hefur ekki talað við lengi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Notaðu persónutöfrana til þess að
leysa fjölskylduágreining. Börnin þín ylja
þér um hjartaræturnar í dag.
S
tefán Thors fæddist 24.
júní 1949 í Reykjavík.
Hann bjó í Laugarnesi til
tveggja ára aldurs en
flutti þá á Álfhólsveg 38 í
Kópavogi. „Ég bjó þar til 9 ára ald-
urs en flutti 1959 á Laufásveg 69 í
Reykjavík þar sem afi Valtýr og
amma Kristín höfðu búið en hún
hafði þá látist úr krabbameini stuttu
áður. Um 7 ára aldur fór ég í sveit í
Tungumúla á Barðaströnd þar sem
nágrannar okkar í Kópavogi höfðu
tengsl.“
Um 10 ára fór Stefán að vinna sem
sendill á afgreiðslu Morgunblaðsins
á sumrin og var í því þar til hann fór
14 ára í brúarvinnu í Húnavatns-
sýslu. Á þessum árum lék hann í
nokkrum útvarpsleikritum og tveim-
ur leikritum í Þjóðleikhúsinu. Hann
var svo í brúarvinnu næstu sumur á
Ströndum og í Barðastrandarsýslu.
„Þar lærði ég að meta landið og nátt-
úrufegurð. Áhugi minn á mann-
virkjagerð og skipulagsmálum í
strjálbýli vaknaði einnig á þessum
árum.“
Árin 1965 til 1969 stundaði Stefán
nám í MR og á sumrin vann hann við
mælingar hjá Vegagerðinni þar sem
hann var í eitt ár eftir stúdentspróf
við að útbúa gögn fyrir alþjóðlegt út-
boð á lagningu Suðurlandsvegar frá
Svínahrauni austur að Selfossi. Árið
1970 hóf Stefán nám við Arkitekta-
skólann í Kaupmannahöfn þaðan
sem hann lauk prófi frá skipulags-
deild árið 1976.
Eftir útskrift hóf Stefán störf hjá
Skipulagi ríkisins þar til 1979 þegar
hann veitti forstöðu Skipulagsstofu
Austurlands á Egilsstöðum í tvö ár.
Frá 1981 til 1985 rak hann eigin ráð-
gjafastofu en lengst gegndi hann
starfi skipulagsstjóra ríkisins, eða
frá 1985 til 2013.
„Það var einstaklega skemmti-
legur tími með góðu samstarfsfólki.
Í því starfi voru áherslur á stóru lín-
urnar, sem ekki hafði verið áður. Það
varð til miðhálendisskipulag og síðar
náðist pólitísk samstaða á Alþingi
um að unnið skyldi landsskipulag. Þá
var einnig farið að leggja meiri
áherslu á skipulag í strjálbýlishluta
sveitarfélaganna, sem var nauðsyn-
legt ekki síst vegna mikillar fjölg-
unar frístundahúsa og annarra
framkvæmda utan þéttbýlis. Á þess-
um árum fórum við hjónin í margar
ógleymanlegar ferðir um hálendið
með Guðmundi Ingólfssyni ljós-
myndara og Höllu Hauksdóttir.“
Eftir skipulagsárin hafði Stefán
stutta viðkomu sem ráðuneytisstjóri
í umhverfisráðuneytinu en frá 2015
var hann í forsætisráðuneytinu þar
sem hann vann að þjóðlendumálum
og að undirbúningi uppbyggingar á
Stjórnarráðsreit og viðbyggingar við
gamla Stjórnarráðshúsið.
Stefán Thors, fyrrverandi skipulagsstjóri ríkisins – 70 ára
Fjölskyldan Stödd við Amtmannshúsið á Arnarstapa, en á myndina vantar elsta og yngsta barnabarnið.
Vildi horfa á stóru línurnar
Við Amtmannshúsið Hjörleifur Stefánsson, Stefán Örn Stefánsson, Stefán,
Guðrún, Sigrún Eldjárn, Lára V. Júlíusdóttir, Ólöf Eldjárn, Þorsteinn Har-
aldsson, Gunnar St. Ólafsson og Helga Pálína Brynjólfsdóttir. Afmælisbarnið Stefán Thors.
50 ára Ragnar er
Garðbæingur, á og
rekur Manhattan
markaðsstofu ásamt
tveimur félögum og er
kennari í markaðs-
fræði í Háskólanum á
Bifröst og HÍ.
Maki: Rakel Hafberg, f. 1976, arkitekt og
hönnuður.
Börn: Elva María, f. 2004, og Mikael Már,
f. 2008.
Foreldrar: Vilhjálmur Ástráðsson, f.
1946, fv. diskótekari, og Sigríður Ein-
arsdóttir, f. 1951, skrifstofumaður hjá
Danfoss.
Ragnar Már
Vilhjálmsson
Til hamingju með daginn
Vinirnir Sigrún María Ein-
arsdóttir, Edda María Ein-
arsdóttir, Kristján Bergur S.
Stefánsson, Agilé Paulauskaite,
Kári Steinn Kristinsson, Katla
Sóley Guðmundsdóttir, Styrmir
Jón Smári, Þorkell Grímur
Jónsson og Eðvald Jón Torfa-
son komu með 5.961 kr. í gær til
Rauða krossins. Þau héldu tom-
bólu með sölu á alls kyns dóti.
Rauði krossinn þakkar þeim
kærlega fyrir framlag þeirra.
Hlutavelta