Morgunblaðið - 24.06.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚNÍ 2019
» Secret Solstice, tónlistarhátíðin sem
kennd er við sumarsól-
stöður, hófst á föstudag
og lauk um miðnætti í
gær og var hátíðin nú
haldin sjötta sumarið í
röð. Fjöldi þekktra tón-
listarmanna og hljóm-
sveita kom fram á henni
og voru þar bæði inn-
lendir og erlendir lista-
menn á ferð. Má nefna
Robert Plant, fyrrver-
andi söngvara Led
Zeppelin, Patti Smith,
Black Eyed Peas, Pusha
T, Pussy Riot, Hatara
og Sólstafi.
Tónlistarhátíðin Secret Solstice var haldin í Laugardal um helgina
Stemning Þessir vösku menn voru spenntir á föstudagskvöld.
Baunirnar Liðsmenn Black Eyed Peas hafa verið lengi í bransanum. Þeir hafa engu gleymt.
Rapparinn Bandaríski Pusha T tryllti lýðinn á föstudagskvöldið.
Fjölskyldan Þetta fólk lét sér nægja að fylgjast með sviðinu úr fjarska.
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
Fatnaður fyrir fagfólk
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Rokkgoðið Robert Plant lifði sig inn í tónlistina eins og hann hefur gert manna best síðustu hálfa öldina.
Dansinn dunar Þessar ungu
dömur komu eins klæddar til
að fullkomna dansatriðið.