Morgunblaðið - 19.06.2019, Síða 9

Morgunblaðið - 19.06.2019, Síða 9
2017. Það lá því beinast við að ég yrði hans eft- irmaður.“ Anna segir að hún hafi tekið að sér daglegan rekstur, launa- og starfsmannamál og fjármál. „Því miður fékk pabbi Alzheimer sjúkdóminn er hann var um áttatíu og fimm ára og lést fjórum árum síðar 89 ára að aldri. Það var nokkrum mánuðum fyrir hrunið. Einum starfs- manna okkar sem unnið hafði hjá pabba í 47 ár varð að orði, að hann væri feginn að pabbi minn hefði ekki þurft að upplifa hrunið.“ Hélt að ævistarfið væri hrunið Efnahagshrunið í október árið 2008 er Önnu minnisstætt. „Mér leið eins og að ævistarf föð- ur mín væri að hrynja til grunna á einum degi. Maður vissi ekkert hvað myndi taka við. Allt var stopp. Við gátum ekki greitt erlenda reikn- inga því ekki mátti flytja gjaldeyri úr landi. Einn af stærstu birgjum okkar í Þýskalandi sendi menn hingað og ég sannfærði þá um að við myndum borga um leið og það væri hægt. Við njótum í dag velvilja og virðingar fyrir að hafa staðið við allt sem við sögðum. Ekki bara þeirra heldur allra okkar birgja. Orðstír okkar er mjög góður bæði utan og innan lands. Það er á þeim grundvelli sem við viljum reka fyrir- tækið, á heiðvirðan og góðan hátt.“ Hrunið hafði íþyngjandi áhrif á reksturinn að sögn Önnu. Félagið var nýbúið að festa kaup á Sindra-stáli og fékk til þess erlent lán hjá MP banka. „Það var allt á blússandi ferð á þessum tíma og hagnaðurinn aldrei meiri. Með kaupunum á Sindra-stáli gat fyrirtækið boðið viðskiptavinum bæði svart og ryðfrítt stál og náð að þjóna viðskiptavinunum enn betur.“ Anna segir að það hafi verið ,,dálítið hressi- legt“ eins og hún orðar það, að hafa verið nýbúin að taka erlent lán er hrunið kom. ,,Við gátum samið um lítils háttar niðurfellingu sem auðvitað hafði eitthvað að segja, en ég verð sjálfsagt búin að greiða lánið upp um 87 ára aldur, en það þýðir afborganir í 20 ár til við- bótar,“ segir Anna. ,,Pabbi var forseti Skáksambandins á sínum tíma og þekktum við Margeir Pétursson stór- meistara og stofnanda MP banka. Hann var einn af strákunum hans pabba í skákinni. Það lá því beinast við að leita til Margeirs er okkur var boðið Sindra-stál til kaups. MP banki breyttist síðar í Kviku, en við vorum held ég eina fyrirtækið með erlent lán hjá MP banka.“ Anna minnist orða Guðmundar pabba síns sem sagði að þó að kreppur kæmu væri alltaf þörf fyrir járn. „Það reyndust orð að sönnu. Við náðum okkur því fljótt á strik en þetta var erfitt því í hruninu urðu mörg fyrirtæki gjald- þrota með tilheyrandi tapi fyrir fyrirtækið. Verst þótti mér þó að þurfa að segja upp starfsmönnum. Það voru þung spor.“ Er mikil samkeppni á markaðnum í dag? ,,Já, það er mikil samkeppni og þá sér- staklega í ryðfría stálinu. Það eru fjögur fyrir- tæki og við þar með talin, sem bítast um mark- aðinn, tvö fyrirtæki sem bjóða eingöngu ryðfrítt efni en við ásamt Ferró-Zink getum boðið bæði ryðfrítt og svart. Ferró Zink er reyndar að hætta með lagerinn hér fyrir sunn- an en heldur áfram á Akureyri. Þar erum við með söluskrifstofu, svo það er líf í þessu.“ Ertu hörð í viðskiptum? ,,Nei, ég er alltof góð. Þegar maður hefur verið svona lengi í þessum geira kynnist maður mörgum viðskiptavinunum vel. Ég er voðalega mjúk, en á það samt til að byrsta mig ef mikið liggur við. En það eru undantekningartilfelli. Mér geðjast betur að því að hugsa um mann- lega þáttinn. Hann er mjög mikilvægur.“ GA smíðajárn er sannkallað fjölskyldufyrir- tæki, eins og sést best á því að þau hjónin, hún og Kári, halda um tvær helstu stjórnunarstöð- unnar. Bróðir Önnu vann einnig um áratuga- skeið við hlið föður þeirra og flestir í fjölskyld- unni hafa að hennar sögn komið að félaginu til lengri eða skemmri tíma. Sonur þeirra hjóna hefur unnið hvað lengst hjá félaginu af þeirra börnum, og sér hann nú um framkvæmdir við stækkun Rauðhellu 2 og flutninginn þangað. ,,Laufey systir mannsins míns hefur líka starfað hér síðan 2001 sem bókari. Þar til hún byrjaði hér var ég eina konan í fyrirtækinu. Ég hef aldrei fundið fyrir neinu öðru en vel- vilja og virðingu af karlanna hálfu. Þetta eru allt góðir vinnufélagar.“ Í dag starfa um 30 manns í fyrirtækinu og eru spennandi tímar fram undan, að sögn Önnu. Hún segir að tíminn muni svo leiða í ljós hvernig málin þróist við flutninginn suður í Hafnarfjörð, en við hann ætti að hennar sögn að verða hagræðing í rekstri og allt einfaldara í sniðum. GA smíðajárn veltir lagernum fjórum til fimm sinnum á ári að sögn Önnu, og sam- starfið við birgjana segir hún vera reglulega gott. ,,Þetta er bara skemmtilegt starf, enda helst okkur vel á mannskap. Margir hafa starf- að hér í 20-30 ár. Í dag er þó erfiðast að fá menn til vinnu á lagerinn í Skútuvoginum. Húsnæðið er barn síns tíma, efnið er geymt í rekkum og notast er við hlaupakött. Í Rauð- hellu er hins vegar skúffukerfi og unnið á lyft- urum. Auðveldara hefur verið að fá menn í vinnu þangað.“ Eftirsjá að Skútuvoginum Hún segir að eftirsjá verði að Skútuvog- inum. Fyrirtækið hafi verið þar í 34 ár og stað- setningin sé góð þar sem flutningsaðilarnir, Eimskip og vöruflutningastöðvar, séu í næsta nágrenni. Í Hafnarfirði séu hinsvegar flestar smiðjurnar staðsettar og ýmsir verktakar, þ.e. þeirra helstu viðskiptamenn. Hvernig líst Önnu á stöðuna í atvinnulífinu um þessar mundir? „Það hafa orðið miklar sviptingar undanfarið og nokkur óvissa framundan. Aðeins hefur bor- ið á því að greiðslur skili sér tregar inn. Það gæti verið merki um smá kólnun í hagkerfinu, en ég vil vera jákvæð. Við Íslendingar erum duglegt fólk og með hagræðingu og ráðdeild ættum við að komast fljótt á lappirnar aftur. Enginn vill annað hrun, það er víst.“ Spurð að því hvernig tískustraumar á mark- aðnum hafi áhrif á viðskiptin nefnir Anna að mikið hafi dregið úr byggingu einbýlishúsa. „Við finnum að það hefur orðið samdráttur í sölu á stálbitum sem notaðir eru sem burð- arbitar í hús. Hins vegar hefur verið fjör í byggingu hótela, en þangað seljum við helst efni í handrið.“ Hvað framtíðina varðar segist Anna hafa trú á að fyrirtækið muni halda áfam að blómstra. Alltaf sé einhver uppbygging í gangi í sam- félaginu, og nú sé verið að huga að innviða- uppbyggingu með endurnýjun hafna, vegakerf- isins og ýmiss iðnaðar viðkomandi fiskveiðum. Hver er helsta áskorunin og áhættan í rekstrinum að hennar mati? ,,Helsta áhættan er gjaldþrot fyrirtækja. Það hefur svo keðjuverkandi áhrif. Hvað okkur varðar er ekki nóg að flytja inn efni og selja, við verðum að fá greitt líka til að standa undir öllum kostnaði við lager- og mannahald. Rekst- urinn hefur verið nokkuð stöðugur undanfarin ár. Veltan okkar er um 2000 milljónir króna og er áskorun að halda því og helst að auka velt- una.“ Eins og sagði hér á undan var Guðmundur Arason faðir Önnu þekktur hnefaleikari og æfði íþróttina fram á gamals aldur. Er hún sjálf í boxinu? ,,Ég var sett í hanska og kenndur fótaburð- urinn. Ekkert varð þó meira úr því. Þetta gagnast mér helst núna er ég slæ sekkinn. Ég sótti í mars sl. minningarmót um föður minn og sá hversu blómlegt hnefaleikastarfið er. Það hlýjar mér um hjartarætur, því mesta ástríða hans pabba voru hnefaleikar. Hann gat aldrei sætt sig við að þeir væru bannaðir. Taldi hann þetta hina bestu íþrótt. Þetta laukst líka upp fyrir mér er ég horfði á bæði stráka og stelpur í öllum aldursflokkum keppa á minningar- mótinu af svo mikilli háttvísi og prúðmennsku. Það fór ekki af mér brosið.“ Morgunblaði/Arnþór Birkisson vinna með föður sínum MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019 9VIÐTAL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.