Morgunblaðið - 19.06.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.06.2019, Blaðsíða 16
Heildarvelta dregst saman Svo virðist sem einstaklingar hafi haldið að sér höndum það sem af er ári þegar kemur að einkaneyslu. Heildarvelta hefur dregist talsvert saman auk þess sem neyslumynstur virðist vera að breytast sökum óvissu í efnahagslífinu. Þetta kemur fram í neyslugögnum fjártæknifyrirtæk- isins Meniga sem ViðskiptaMogginn hefur fengið aðgang að. Skoðaðir voru þrír flokkar þar sem bornir voru saman fyrstu fjórir mán- uðir síðustu þriggja ára. Samtals er um að ræða ópersónugreinanleg gögn frá ríflega 15 þúsund ein- staklingum sem notast við þjónustu Meniga. Í fyrsta flokknum, fatnaði og fylgi- hlutum, hefur talsverð breyting orðið á neyslumynstri fólks. Heildarvelta dregst saman um 5,4% samanborið við sömu mánuði árið 2018. Það er talsvert ólíkt árinu á undan þar sem veltan jókst um tæp 14%. Kortafærslum hefur fækkað Auk fatnaðar og fylgihluta var veitingamarkaðurinn skoðaður. Þar hefur heildarvelta dregist verulega saman eða um 11,6% frá fyrra ári. Árið áður hafi aukningin numið 11,6% og er sveiflan því ríflega 20% milli ára. Að lokum var neysluhegðun á mat- vörumarkaði skoðuð. Þar sýna fyrstu fjórir mánuðir ársins samdrátt upp á rúm 8%. Árið áður hafði heild- arveltan aukist um 7,7%. Auk þessa hefur dregið verulega úr fjölda kortafærslna og er sam- drátturinn þar ívið meiri en í heild- arveltu. Í samantekt neyslu- gagnanna kemur þó fram að vonir standi til að markaðurinn muni rétta sig af nú þegar óvissa er minni. Morgunblaðið/Hari Heildarvelta hefur dregist saman auk þess sem kortafærslum fækkar. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Verulegur samdráttur er í neyslu þeirra sem notast við forritið Meniga. Heild- arvelta fyrstu fjóra mánuði ársins er talsvert minni en fyrir ári síðan. dk iPos snjalltækjalausn fyrir verslun og þjónustu Einfalt, fljótlegt og beintengt dk fjárhagsbókhaldi Smáratorgi 3, 201 Kópavogur • Hafnarstræti 53, 600 Akureyri 510 5800, dk@dk.is, www.dk.is dk iPos er hluti af snjalltækjalínu dk hugbúnaðar. Líttu við og fáðu kynningu á þeim fjölbreyttu lausnum sem dk hugbúnaður hefur fyrir verslun og þjónustu. VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Hefja áætlunarflug til Tenerife og ... Tugum prósenta hærra en Costco ... Fjórir mjög hæfir í starf seðlabanka ... Spáir erfiðum árum fyrir hótelin Greiddi þrotabúinu 200 milljónir Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Þegar Bankasýsla ríkisins var settá stofn átti hún að starfa að há- marki í fimm ár. Það var árið 2009. Síðan eru liðin 10 ár. Og nú vill Alþingi að stofnunin starfi enn um sinn, með- an ríkið fer með geysistóran hlut í bankakerfinu. Nær allt hlutafé Landsbankans er á hendi þess og Ís- landsbanki eins og hann leggur sig. Stundum bendir fjármálaráðherraá að stefnt sé að því að minnka þennan eignarhlut, einkum í Íslands- banka en þó einnig að nokkru marki í Landsbankanum. Fáir leggja þó mik- inn trúnað á að raunveruleg skref verði stigin í þá átt enda vitað að sam- starfsflokkar Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn sjá mikla meinbugi á því að einkaaðilar reki og taki áhættu með bönkunum. Þeim þykir hyggilegra að ríkið axli þá ábyrgð nær alfarið. Eignarhlutur ríkisins í þessumbönkum er enn mikils virði og gæti haldist þannig ef rétt verður á málum haldið. Hins vegar hefur hinni svokölluðu fjártækni fleygt fram, nú síðast með innreið Facebook á raf- myntamarkaðinn með hinni nýju libru (sjá bls. 14). Þá sést það einnig á ný- legri innleiðingu Apple Pay í íslensku bankakerfi að hinar gamalgrónu stofnanir missa sífellt miðlægt vægi sitt í miðlun fjármagns á markaðnum (sjá forsíðu). Þessi öra þróun ætti að verða ríkis-sjóði sem varnaðarorð. Það er engin glóra í því að liggja með hundr- uð milljarða í eignum í þessum geira þegar sviptivindarnir nálgast. Hyggi- legra væri að láta aðra taka þá áhættu. Opinbert braskÍ nýjum tölum frá Hagstofu Íslandskemur fram að tekjuafkoma ríkissjóðs hafi reynst neikvæð sem nemur 3,4 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins. Hallinn nemur um 0,5% af vergri landsframleiðslu en jafngildir 4,2% samdrætti borið saman við fyrsta ársfjórðung 2018. Hina neikvæðu þróun má fyrst ogfremst rekja til lægri arð- greiðslna frá fjármálafyrirtækjum sem drógust saman um 21,4 millj- arða milli ára. Sé litið fram hjá arð- greiðslunum nemur tekjuaukning hin opinbera 3,2%. Hagstofan gerir ráð fyrir því aðheildarútgjöld hins opinbera hafi aukist um 8,1% á fyrsta árs- fjórðungi miðað við sama fjórðung 2018. Þar vegur launakostnaður þyngst en hann er áætlaður um 34,4% af heildarútgjöldum hins opin- bera. Enn hefur nokkuð gefið á bátinnog gera má ráð fyrir að rekstur hins opinbera verði nokkuð snúinn það sem eftir er þessa árs. Um það vitna uppfærðar tillögur fjár- málaáætlunar ríkisstjórnarinnar þar sem útgjaldaaukningu komandi ára hefur verið stillt í meira „hóf“ en áð- ur var áætlað. Ekki er vanþörf á, ný- uppfærðar tölur benda til þess að tekjur ríkissjóðs verði allt að 35 milljörðum lægri en vonir stóðu til í ár og á því næsta einnig. Þar skeikar því allt að 70 milljörðum króna. Þrátt fyrir bakslagið sem nú virð-ist ætla að verða er engin opin- ber umræða um verulega tiltekt í ríkisrekstrinum, né heldur tillögur um hvernig draga megi úr sífelldri útþenslu hans. Frekar ber á sífellt nýjum tillögum um nýjar stofnanir og ný viðfangsefni sem talið er hent- ugt að hið opinbera blandi sér í. Eitt nýjasta dæmið þar um eru hug- myndir af vettvangi FME um að sett verði á laggirnar ný stofnun sem hafa muni eftirlit með endurskoð- endum. Enn fleiri og jafnvel jafn- vitlausar tillögur mætti taka til. Ekkert virðist sjálfsagðara en aðeinkafyrirtæki þurfi sífellt að laga umfang sitt að tekjuöflun og út- gjöldum þar sem einatt er litið til fjölda starfsfólks og þess hvaða þjónustu er nauðsynlegt að veita og hvað jafnvel megi missa sín. Ein- hverjir virðast halda að önnur lög- mál eigi að gilda um hið opinbera, enda auðveldara að seilast í vasa skattgreiðenda eftir því sem upp á vantar en í vasa viðskiptavina sem ákveða fyrir sig sjálfir hvort þeir kæri sig um að kaupa þjónustu eða vöru á uppsettu verði. Lítið bólar á alvöru aðhaldi Icelandair hefur hætt áætlunarflugi til og frá Tampa-flugvelli í Flór- ída, en þangað hóf fé- lagið flug árið 2017. Hætta að fljúga til Tampa 1 2 3 4 5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.