Morgunblaðið - 07.06.2019, Blaðsíða 4
Ö
ll höfum við komið inn á heimili
þar sem virðist eins og ský hafi
hrannast upp yfir einu herberg-
inu. Þar inni býr undarleg vera,
sem hefur gert sér einhvers kon-
ar helli og vill helst engum hleypa inn nema
sínum líkum. Undarlegt skraut er uppi á
veggjum, eini birtugjafinn ljóminn frá sjón-
varpi eða tölvuskjá, óhrein föt liggja á víð og
dreif um gólfið og virðist eins og slikja af
hormónum sé yfir öllu.
Þetta er herbergi unglingsins, og einhver
mesta áskorun sem innanhússarkitektar geta
tekið sér fyrir hendur að reyna að koma þessu
rými í lag. Blessaður unglingurinn er jú orðinn
nógu gamall til að hafa skoðun á því hvernig
hann vill hafa umhverfi sitt en hefur ekki endi-
lega náð að þroska með sér góðan smekk eða
mikla snyrtimennsku. Kannski langar hann að
líma tónleikamiða upp um alla veggi, eða mála
hátt og lágt í furðulegum litum. Hann vill líka
fá sitt næði og verður að hafa gott pláss fyrir
skólabækurnar, gítarmagnarann og leikjatölv-
una.
Hvað er hægt að gera svo að herbergi ung-
lingsins líti vel út og stingi ekki í stúf? Er
hægt að beina unglingnum inn á
rétta braut, og jafnvel beita
hugvitssamlegri hönnun
til að slá á suma verstu
fylgifiska unglings-
áranna?
Íbúinn er í stöðugri
mótun
Rut Káradóttir
innanhússarkitekt
segir það rétt að ung-
lingaherbergi séu iðulega
erfiðustu rýmin á heimilum.
„Það er eins og þetta herbergi
sé alltaf óklárað, því unglingurinn sjálfur
breytist svo mikið frá ári til árs: ný áhugamál
koma og fara, vinahópurinn er í stöðugri mót-
un og smekkur unglingsins í dag ekki sá sami
og á morgun. Er enda himinn og haf á milli
tólf ára og sautján ára tánings í þroska og lífs-
stíl.“
Meðal þeirra lausna sem Rut lumar á er að
veita unglingnum visst frelsi í lita-
vali, þó innan ákveðins heildarramma
sem nær yfir allt heimilið. Þannig stingur
herbergið ekki eins mikið í stúf. „Það er fal-
legt þegar unglingaherbergið tónar við önnur
rými hússins og hægt að gera tillögur að lita-
pallettum sem falla bæði að húsgögnunum í
herberginu og litum í öðrum aðliggjandi rým-
um og eru ekki í mótsögn við allt annað á
heimilinu.“
Rut vill gjarnan leyfa hlýju og mjúku lit-
unum í uppáhaldslitapallettu unglingsins að
njóta sín, en mjúkir litatónar falla vel að tölv-
um og tæknidóti, og snúrunum sem þeim
fylgja. „Í herbergjum sem eru full af raftækj-
um auka skærir litir bara á óróann og hægt að
skapa rólegra og afslappaðra umhverfi með
ljúfum litum.“
Rétt lýsing hjálpar líka mikið til við að gera
herbergi unglinsins notalegt og minnir Rut á
að táningarnir þurfi jafnframt góða vinnulýs-
ingu til að sinna heimanáminu. „Til að geta
breytt birtustemningunni ætti að velja ljós
með birtustilli og gæta þess að hafa lýsinguna
margþætta: grunnljós, þ.e. loftljós sem veita
alhliða lýsingu; vinnulýsingu, s.s. frá borð-
lampa; og stemningslýsingu, s.s. frá stand-
lampa.“
Gluggatjöldin leika stórt hlutverk í lýsing-
arhönnun herbergisins og á unglingurinn eftir
að vilja getað lokað nær alla birtu úti til að fá
næði og geta horft ótruflað á skjáina sína.
„Fyrir gluggana má setja tvískipt gluggatjöld,
þar sem annars vegar eru t.d. rúllutjöld sem
dimma vel og fljótlegt er að draga fyrir eða
frá, og hins vegar gluggatjaldavængir sem
gefa þægilega og „rómantíska“ birtu sem veit-
ir hlýlegt yfirbragð.“
Vel grisjað en ekki kuldalegt
Rut mælir með að beina unglingnum inn á
mínimalíska braut og upplagt að grisja her-
bergið reglulega í takt við breyttan smekk,
þarfir og áhugamál. „Verður bara að passa
upp á að herbergið verði þá ekki um leið
kuldalegt, og hægt að komast hjá því með
réttu litavali og lýsingu.“
Grisjunin hjálpar til við að halda herberg-
inu snyrtilegu og má síðan ganga skrefinu
lengra með hönnun sem auðveldar unglingn-
um að taka til: Segir Rut t.d. ekki hægt að
reikna með að oft verði búið um rúm unglings-
ins ef hann þarf að breiða á það flókið kerfi af
rúmteppum, sængum og púðum. „Það tekur
langan tíma og er bara vesen í huga tánings-
ins. Betra er að velja einfalt vatterað rúm-
teppi sem þjónar um leið hlutverki sængur og
má henda í heilu lagi í þvottavél. IKEA er t.d.
með þannig teppi fáanleg í ýmsum fallegum
litum og gerir unglingnum auðvelt að búa
um.“
Fataskápurinn fer síðan síður í rúst ef þar
er meira af slám en minna af skúffum: „Það er
fljótlegra að ganga um skápinn ef fatnaðurinn
er hengdur upp og auðveldara en ef þyrfti að
brjóta allt fallega saman og leggja snyrtilega
ofan í skúffu. Skápurinn getur líka hjálpað til
við að gera herbergið snyrtilegra ef hann
rúmar alls konar dót og smámuni sem ekki
þarf að hafa uppi við öllum stundum. Svo er
bara að muna að grisja úr skápnum af og til.“
Vilji unglingurinn raða einhverju upp, til að
sýna afrek sín eða áhugamál, er hægt að búa
þannig um smámunina og unglingadótið að
það haldist áfram snyrtilegt og dreifist ekki
um allt rýmið. Þetta geta verið verðlaunapen-
ingar og -bikarar, myndir af vinum eða
átrúnaðargoðum, tölvuleikjasafnið eða eitt-
hvað krúttlegt sem er í tísku að safna þá
stundina: „Það má raða smáhlutunum upp á
tiltekna hillu eða hillur, jafnvel setja inn í lok-
aðan glerskáp þannig að allt hafi sinn stað.“
Lýsingin hefur mikil áhrif á yfirbragð herbergisins. Ef grisjað er reglulega safnast ekki upp alls kyns munir.
Herbergi unglingsins gert vistlegra
Regluleg grisjun, úthugsað
litaval og notaleg lýsing
geta, að sögn Rutar
Káradóttur, hjálpað til við að
halda vistarverum unglings-
ins á heimilinu fallegum.
Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is
Unglingurinn þarf rými fyrir áhugamálin.
Unglingar kunna að
meta gluggatjöld
sem skyggja vel.
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019