Morgunblaðið - 07.06.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019
Þ
eir sem eiga hund eða
kött kannast við vand-
ann. Einn daginn er voffi
skilinn eftir einn heima
og notar tækifærið til að
naga fæturna á fínu stólunum í
borðstofunni eða grafa djúpa holu í
sófann. Hundarnir eru þó yfirleitt
nógu snjallir til að geta hamið sig á
meðan þeir eru ekki einir, en kött-
unum stendur alveg á sama um
hvað má og má ekki og eru vísir til
að reyna að brýna klærnar á silki-
sessum og leiðurhægindastólum
þótt eigandinn góli: „Nei kisi!
Skamm!“
Hvað er til ráða fyrir gæludýra-
eigendur? Stendur valið á milli þess
að eiga annaðhvort falleg bólstruð
húsgögn eða hund og kött? Ef lítið
loðbarn er á heimilinu, þarf þá alltaf
að hafa fína sófann vandlega pakk-
aðan inn í slitsterkt lak? Verður að
segja bless við hönnunarvöruna og
breiða út faðminn á móti IKEA og
öðrum tiltölulega praktískum fram-
leiðendum og einfaldlega endurnýja
nagaða borðfætur og sundurtætta
stóla með reglulegu millibili?
Örtrefjaáklæði þolir mikið
Ásgeir Freyr Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Zenus á Smiðjuvegi,
segir ekkert til sem heitir gælu-
dýrahelt áklæði á húsgögn en sum
efni henti samt betur en önnur fyrir
heimili með gæludýr. „Gróft ofið
efni er sennilega versti kosturinn
enda auðvelt fyrir kettina að kroppa
í það með klónum, en skynsamleg-
ast væri að velja húsgögn með
áklæði úr slitsterku örtrefjaefni.“
Ásgeir segir örtrefjaefnið hafa
undirlag sem er eins og dúkur og
þurfi gæludýrin því að hafa meira
fyrir að komast í gegnum yfirborðið.
„Þessi efni hafa yfirborð sem minnir
á rúskinn og eru auðveld í þrifum,
en því miður er örtrefjaáklæði ekki í
tísku og hefur ekki verið um nokk-
urt skeið.“
Zenus var stofnað fyrir ellefu ár-
um og fæst bæði við bólstrun og
sérsmíði húsgagna. Þar má einnig
kaupa gluggatjöld og finna úrval af
efnum og áklæðum. Samtals starfa
ellefu manns hjá fyrirtækinu og er
það faðir Ásgeirs Freys, Ásgeir
Ólafsson, sem stýrir húsgagnaverk-
stæðinu en hann starfaði í rösklega
fjóra áratugi sem bólstrari hjá Kaj
Pind bólstrun.
Ásgeir Freyr segir skemmdir
vegna gæludýra algenga ástæðu
þess að viðskiptavinir koma með
húsgögn í bólstrun. Eru það þá nær
einungis dýrari húsgögnin, eða þau
sem hafa sérstakt tilfinningalegt
gildi, sem eru send til bólstrara í
viðgerð enda kostar bólstrunin sitt.
Gæti verið ódýrara, ef um ósköp
venjulegt fjöldaframleitt húsgagn er
að ræða, að endurnýja frekar en
laga skemmdirnar.
Hægt að fela skemmdir í leðri
Sumt getur fólk þó gert sjálft, og
selur Zenus t.d. efni til viðgerðar á
leðri. Segir Ásgeir að margir haldi
ranglega að leður sé tilvalið hús-
gagnaáklæði fyrir heimili með gælu-
dýr, enda slitsterkt efni sem auðvelt
er að þrífa, en beitt kló getur skilið
eftir sig ljóta rispu og kettir með
einbeittan brotavilja eru ekki lengi
að gata arminn á sínum uppáhalds-
leðurstól. „Þeir sem vilja leður ættu
þá að reyna að hafa það í svörtu, því
þegar kemur að viðgerðum með lit-
um og fyllingarefnum er auðveldast
að láta litinn passa ef leðrið er svart.
Skemmdir á viðarhúsgögnum má
líka oft laga, að því gefnu að skaðinn
sé ekki of mikill. „Ef hvolpur hefur
nagað fót á stóli eða borði kemur
mögulega til greina að pússa viðinn
upp og þannig fjarlægja skemmd-
ina,“ útskýrir Ásgeir.
Hann segir það líklega ekki borga
sig að t.d. láta sauma eftir máli
áklæði til að leggja yfir stól eða
sófa, en mögulega geti það komið
vel út að breiða stórt lak snyrtilega
yfir. Þarf þá samt væntanlega að
sauma tvo efnisstranga saman til að
hylja t.d. heilan sófa, því rúllurnar
eru yfirleitt ekki meira en 1,4 til 1,5
metrar á breidd. „Algengt metra-
verð á áklæði er frá 5.000 upp í
20.000, til að gefa einhverja hug-
mynd um kostnaðinn við það að
breiða yfir húsgögnin með þessum
hætti.“
Sama hvaða lausn verður fyrir
valinu ráðleggur Ásgeir að draga
það ekki að verja húsgögnin á heim-
ilinu eða skipta þeim út fyrir mublur
sem mega skemmast. „Fólki hættir
til að vera bjartsýnt og vona að
hundurinn eða kötturinn á heimilinu
sjái húsgögnin í friði en veit svo ekki
fyrri til en komið er gat eða rispa.“
Litlu loðbörnin eiga það til að tæta upp arma á stól-
um og jafnvel naga sig djúpt ofan í sessur og púða.
Að ekki sé talað um hárin sem dreifast um alla íbúð.
Ásgeir Freyr segir samt ekki alla von úti og fleiri
möguleikar í stöðunni en að breiða lak yfir búslóðina.
Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Ásgeir hjá Zenus segir örtrefjaefni eina áklæðið sem komist nálægt því að vera gæludýrahelt enda sterkt og
auðvelt að þrífa. Allt má þó skemma á endanum ef kisi eða voffi hefur einbeittan brotavilja.
Morgunblaðið/Ómar
Dýrin vilja yfirleitt vera uppi á húsgögnum, með eigendum sínum.
Morgunblaðið/Ómar
Kettlingar á gulum sófa. Sumir litir og mynstur fela hár og bletti og ættu t.d. gulur og hvítur að vera út úr myndinni.
Geta gæludýraeigendur
ekki átt falleg húsgögn?
Morgunblaðið/ÞÖK
Hvolpar geta verið skæðir en dregur úr skemmdarfýsn hunda með aldr-
inum. Kettir þreytast hins vegar aldrei á að brýna klærnar á húsgögnum.