Morgunblaðið - 07.06.2019, Side 14

Morgunblaðið - 07.06.2019, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 Þ eir sem eiga hund eða kött kannast við vand- ann. Einn daginn er voffi skilinn eftir einn heima og notar tækifærið til að naga fæturna á fínu stólunum í borðstofunni eða grafa djúpa holu í sófann. Hundarnir eru þó yfirleitt nógu snjallir til að geta hamið sig á meðan þeir eru ekki einir, en kött- unum stendur alveg á sama um hvað má og má ekki og eru vísir til að reyna að brýna klærnar á silki- sessum og leiðurhægindastólum þótt eigandinn góli: „Nei kisi! Skamm!“ Hvað er til ráða fyrir gæludýra- eigendur? Stendur valið á milli þess að eiga annaðhvort falleg bólstruð húsgögn eða hund og kött? Ef lítið loðbarn er á heimilinu, þarf þá alltaf að hafa fína sófann vandlega pakk- aðan inn í slitsterkt lak? Verður að segja bless við hönnunarvöruna og breiða út faðminn á móti IKEA og öðrum tiltölulega praktískum fram- leiðendum og einfaldlega endurnýja nagaða borðfætur og sundurtætta stóla með reglulegu millibili? Örtrefjaáklæði þolir mikið Ásgeir Freyr Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri Zenus á Smiðjuvegi, segir ekkert til sem heitir gælu- dýrahelt áklæði á húsgögn en sum efni henti samt betur en önnur fyrir heimili með gæludýr. „Gróft ofið efni er sennilega versti kosturinn enda auðvelt fyrir kettina að kroppa í það með klónum, en skynsamleg- ast væri að velja húsgögn með áklæði úr slitsterku örtrefjaefni.“ Ásgeir segir örtrefjaefnið hafa undirlag sem er eins og dúkur og þurfi gæludýrin því að hafa meira fyrir að komast í gegnum yfirborðið. „Þessi efni hafa yfirborð sem minnir á rúskinn og eru auðveld í þrifum, en því miður er örtrefjaáklæði ekki í tísku og hefur ekki verið um nokk- urt skeið.“ Zenus var stofnað fyrir ellefu ár- um og fæst bæði við bólstrun og sérsmíði húsgagna. Þar má einnig kaupa gluggatjöld og finna úrval af efnum og áklæðum. Samtals starfa ellefu manns hjá fyrirtækinu og er það faðir Ásgeirs Freys, Ásgeir Ólafsson, sem stýrir húsgagnaverk- stæðinu en hann starfaði í rösklega fjóra áratugi sem bólstrari hjá Kaj Pind bólstrun. Ásgeir Freyr segir skemmdir vegna gæludýra algenga ástæðu þess að viðskiptavinir koma með húsgögn í bólstrun. Eru það þá nær einungis dýrari húsgögnin, eða þau sem hafa sérstakt tilfinningalegt gildi, sem eru send til bólstrara í viðgerð enda kostar bólstrunin sitt. Gæti verið ódýrara, ef um ósköp venjulegt fjöldaframleitt húsgagn er að ræða, að endurnýja frekar en laga skemmdirnar. Hægt að fela skemmdir í leðri Sumt getur fólk þó gert sjálft, og selur Zenus t.d. efni til viðgerðar á leðri. Segir Ásgeir að margir haldi ranglega að leður sé tilvalið hús- gagnaáklæði fyrir heimili með gælu- dýr, enda slitsterkt efni sem auðvelt er að þrífa, en beitt kló getur skilið eftir sig ljóta rispu og kettir með einbeittan brotavilja eru ekki lengi að gata arminn á sínum uppáhalds- leðurstól. „Þeir sem vilja leður ættu þá að reyna að hafa það í svörtu, því þegar kemur að viðgerðum með lit- um og fyllingarefnum er auðveldast að láta litinn passa ef leðrið er svart. Skemmdir á viðarhúsgögnum má líka oft laga, að því gefnu að skaðinn sé ekki of mikill. „Ef hvolpur hefur nagað fót á stóli eða borði kemur mögulega til greina að pússa viðinn upp og þannig fjarlægja skemmd- ina,“ útskýrir Ásgeir. Hann segir það líklega ekki borga sig að t.d. láta sauma eftir máli áklæði til að leggja yfir stól eða sófa, en mögulega geti það komið vel út að breiða stórt lak snyrtilega yfir. Þarf þá samt væntanlega að sauma tvo efnisstranga saman til að hylja t.d. heilan sófa, því rúllurnar eru yfirleitt ekki meira en 1,4 til 1,5 metrar á breidd. „Algengt metra- verð á áklæði er frá 5.000 upp í 20.000, til að gefa einhverja hug- mynd um kostnaðinn við það að breiða yfir húsgögnin með þessum hætti.“ Sama hvaða lausn verður fyrir valinu ráðleggur Ásgeir að draga það ekki að verja húsgögnin á heim- ilinu eða skipta þeim út fyrir mublur sem mega skemmast. „Fólki hættir til að vera bjartsýnt og vona að hundurinn eða kötturinn á heimilinu sjái húsgögnin í friði en veit svo ekki fyrri til en komið er gat eða rispa.“ Litlu loðbörnin eiga það til að tæta upp arma á stól- um og jafnvel naga sig djúpt ofan í sessur og púða. Að ekki sé talað um hárin sem dreifast um alla íbúð. Ásgeir Freyr segir samt ekki alla von úti og fleiri möguleikar í stöðunni en að breiða lak yfir búslóðina. Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is Morgunblaðið/Hari Ásgeir hjá Zenus segir örtrefjaefni eina áklæðið sem komist nálægt því að vera gæludýrahelt enda sterkt og auðvelt að þrífa. Allt má þó skemma á endanum ef kisi eða voffi hefur einbeittan brotavilja. Morgunblaðið/Ómar Dýrin vilja yfirleitt vera uppi á húsgögnum, með eigendum sínum. Morgunblaðið/Ómar Kettlingar á gulum sófa. Sumir litir og mynstur fela hár og bletti og ættu t.d. gulur og hvítur að vera út úr myndinni. Geta gæludýraeigendur ekki átt falleg húsgögn? Morgunblaðið/ÞÖK Hvolpar geta verið skæðir en dregur úr skemmdarfýsn hunda með aldr- inum. Kettir þreytast hins vegar aldrei á að brýna klærnar á húsgögnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.