Morgunblaðið - 22.07.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 2019
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Masters stóll
Hönnuðir: Philippe Starck
Verð frá 29.900 ,- stk.
Sigurður Már Jónsson blaða-maður skrifar á mbl.is um ör-
lög Íslandspósts og umfjöllun um
þau. Hann segir Morgunblaðið
hafa fylgt málinu vel eftir „og
rakið rekstrarsögu
fyrirtækisins sem
hlýtur að verða að
teljast lexía fyrir
þá sem telja að rík-
isrekstur taki öðru
fram. Hefur meðal
annars verið upp-
lýst að eigandi
fyrirtækisins, rík-
ið, hafði í raun
enga stefnu um félagið. Því ráku
stjórnendur þess það eins og þeim
sýndist og skelltu því í samkeppni
með uppkaupum á félögum sem
virtust vera rekstri þess og lög-
bundnum verkefnum óviðkom-
andi.“
Sigurður Már minnir líka á aðheimilað var í fjárlögum fyrir
þetta ár að láta félaginu í té allt
að 1,5 milljarða króna, og klykkir
út með þessum orðum: „Ríkið
virðist því vera að setja talsverða
fjármuni í félagið án þess að séð
verði að stefna þess sé skýr. Er
ekki eðlilegt að skilgreina hvaða
almannahagsmunum þarf að sinna
varðandi póstdreifingu, bjóða það
út og selja félagið og ljúka þessum
ríkisrekstri?“
Þetta eru eðlilegar spurningar íljósi reynslunnar. En getur
ekki verið að sömu spurninga
þurfi að spyrja um önnur ríkis-
fyrirtæki?
Hvað um Ríkisútvarpið, svodæmi sé tekið? Það ríkis-
fyrirtæki er fyrir löngu komið í
harða samkeppni við einkaaðila og
sækir stöðugt í sig veðrið að því
leyti auk þess að sækja sífellt
meira í vasa skattgreiðenda. Er
ekki tímabært að taka til þar eins
og hjá Póstinum?
Sigurður Már
Jónsson
Er Íslandspóstur
eina dæmið?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Til langs tíma litið gæti ályktun Ís-
lands þess efnis að mannréttinda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna geri ítar-
lega úttekt á stríði ríkisstjórnar
Filippseyja gegn fíkniefnum, sem
hefur orsakað hörð viðbrögð frá
ráðamönnum þar í landi, haft góð
áhrif á Ísland á alþjóðavettvangi.
„Allt sem kemur þessu máli í al-
þjóðaumræðu er jákvætt.“ Þetta seg-
ir Marc Lanteigne, lektor við Há-
skólann í Tromsö og sérfræðingur í
efnahags- og utanríkismálum Aust-
ur-Asíu, í samtali við Morgunblaðið.
Eins og víða var greint frá sagði
filippseyski öldungadeildarþingmað-
urinn Imee Marcos að rjúfa ætti
stjórnmálasamband við Ísland og
kallaði Rodrigo Duterte, forseti
Filippseyja, íslensk stjórnvöld og
ríkisstjórnir þeirra landa sem studdu
ofannefnda ályktun m.a. „hálfvita“
vegna málsins.
Segir Lanteigne að stríðið gegn
fíkniefnum, sem Duterte og ráða-
menn hans hafa háð, hafa verið
áhyggjuefni hjá mörgum löndum allt
frá því að Duterte tók við embætti.
„Það er lýsandi fyrir afstöðu Íslands
til mannréttinda
að það hafi verið
landið sem steig
fram og gerði
þetta.“ Segir
hann það áhuga-
vert að sjá að
önnur lönd, þá sér
í lagi Bandaríkin,
hafi verið var-
kárari í afskiptum
sínum af ástand-
inu á Filippseyjum.
„Þetta hefur sett Ísland í erfiða
stöðu,“ segir hann og nefnir að þrátt
fyrir að samskipti milli Íslands og
Filippseyja séu almennt lítil hafi
staðan sem upp er komin mögulega
einhver áhrif á Filippseyinga á Ís-
landi.
Þá segir hann aðspurður ekki
hægt að segja til um hvort hótanir
um að slíta stjórnmálasambandi við
Ísland muni ganga eftir eða ekki.
„En það ber vitni um að filippseysk
stjórnvöld séu móðguð.“
Aðspurður segir hann áhættusamt
af Íslandi að leggja tillöguna fram.
„En á hinn bóginn eru Íslendingar,
sem lítið ríki sem glímir ekki við stór
svæðisbundin öryggisvandamál, í
mjög góðri stöðu til að gera þetta.“
Gæti haft góð áhrif
til langs tíma litið
Filippseyingar greinilega móðgaðir
Marc
Lanteigne
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
„Þeir fara ekki inn í Seljaneslandið
fyrr en búið er að hafa samráð við
landeigendur og koma því þannig fyr-
ir að hér verði sem minnst rask á
landinu, vegna þess að hér er einstakt
landsvæði og einstök náttúrufegurð.“
Þetta sagði Guðmundur Arngríms-
son, talsmaður hluta landeigenda að
Seljanesi við Ingólfsfjörð, í samtali
við Morgunblaðið um vegafram-
kvæmdir Vesturverks vegna Hval-
árvirkjunar. Þær munu í dag halda
áfram eftir að úrskurðarnefnd um-
hverfis- og auðlindamála hafnaði
kröfum landeigenda og umhverfis-
verndarsamtaka um stöðvun fram-
kvæmdanna.
„Ég gef ekkert upp um það. Ég er
bara hérna á jörð forfeðranna að
kíkja á mína átthaga“ sagði Guð-
mundur, þá staddur á Seljanesi í gær-
kvöld, spurður hvort hann væri
mættur til að taka þátt í mótmælum.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Birna Lárusdóttir, upplýsingafulltrúi
Vesturverks, að enginn sérstakur
undirbúningur væri vegna mögu-
legra mótmæla. „Við höldum bara
okkar verki áfram eins og við höfum
heimildir til. Við væntum þess að fólk
haldi sig réttum megin við lögin ef
eitthvað er í bígerð. Við höfum ekkert
heyrt af [mögulegum mótmælum].“
Gaf ekki upp hvort kæmi til mótmæla
Talsmaður Vesturverks væntir þess að fólk haldi sig réttum megin við lögin
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Virkja Hvalá nyrðri í Ófeigsfirði.