Morgunblaðið - 22.07.2019, Page 18

Morgunblaðið - 22.07.2019, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 2019 ✝ Guðrún HlínJónsdóttir fæddist 19. apríl 1963 í Reykjavík. Hún lést á líkn- ardeild Landspít- alans hinn 14. júlí. Guðrún var dóttir hjónanna Elínar Heiðdal, f. 28.11. 1942, og Jóns Bald- vinssonar, f. 2.10. 1942. Þau skildu. Alsystur Guðrúnar eru: Elín Anna, f. 17.2. 1961, d. 1.12. 2001, börn hennar eru Katrín Guðmundsdóttir, f. 25.10. 1980, Júlíanna Guðmundsdóttir, f. 17.3. 1988, Eiríkur Árni Guð- mundsson, f. 6.7. 1990, og Davíð Árni Guðmundsson, f. 4.12. 1992; Helena, f. 26.7. 1968, son- ur Helenu er Dagur Benedikt Reynisson, f. 12.10. 1993. Eig- inmaður Helenu og stjúpfaðir Dags var Þorvaldur Þor- steinsson, f. 7.11. 1960, d. 23.2. 2013. Seinni kona Jóns föður Guð- rúnar Hlínar er Signý Jóhanns- Guðrún Hlín ólst upp sín fyrstu ár í Reykjavík en fluttist svo á Patreksfjörð og þaðan í Mosfellssveit þar sem faðir hennar sinnti sveitar- stjórnarstörfum á báðum stöð- um. Að loknum grunnskóla hélt hún í Menntaskólann við Sund og lauk þaðan stúdentsprófi 1983. Eftir stúdentsprófið stundaði Guðrún Hlín nám í við- skiptafræði við Háskóla Íslands. Lengst af starfaði Guðrún Hlín við bókhald en hún hafði einnig lokið námi í löggildingu leigumiðlunar sem hún starfaði við. Í veikindunum síðasta starfsár Guðrúnar Hlínar starf- aði hún við umönnun. Guðrún Hlín var fróðleiksfús og sótti ýmis námskeið og sat einnig áhugaverða tíma í Há- skólanum. Hún stundaði sjó- sund og naut þar náttúrunnar og góðs félagsskapar. Hún tók þátt í ýmsum viðburðum með félögum sínum úr sjósundinu, meðal annars fór hún með sundhópnum Sækúnum yfir Ermarsundið. Var meðlimur sjóhönnunarklúbbsins ásamt öðrum félagsstörfum með ýms- um hópum. Útför Guðrúnar Hlínar verð- ur gerð frá Langholtskirkju í dag, 22. júlí, og hefst athöfnin klukkan 15. dóttir, f. 26.1. 1951. Börn þeirra og hálfsystkini Guð- rúnar eru Baldvin, f. 31.8. 1978; Gerð- ur, f. 25.7. 1980, sambýlismaður Al- exander Jensson, f. 27.11. 1982. Börn Gerðar eru Krist- inn Kristinsson, f. 1.9. 2008, Signý Al- exandersdóttir, f. 26.3. 2015, og óskírður Alex- andersson, f. 9.4. 2019; Gísli, f. 26.3 1985. Eiginkona hans er Helga Clara Magnúsdóttir, f. 4.12. 1985, sonur þeirra er Jón Birnir, f. 29.11. 2016. Dóttir Guðrúnar Hlínar og Haraldar Sverrissonar, f. 14.12. 1961, er Steinunn Anna grunn- skólakennari, f. 18.7. 1981. Þau slitu samvistum. Eiginmaður Steinunnar er Hallur Árnason byggingafræðingur, f. 13.6. 1982. Börn þeirra eru Áróra, f. 17.11. 2002, Árni Hrafn, f. 10.8. 2008, og Ársól Ella, f. 19.7. 2011. Elsku mamma, nú er runnin upp hinsta kveðjustund og þó endirinn hafi verið fyrirsjáan- legur er stundin samt óraun- veruleg og sár. Þegar ég horfi til baka þá er mér efst í huga þakklæti. Þakklæti fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Þú áttir mig mjög ung og hefur það án efa breytt lífi unglingsins mikið. Lengstan part ævinnar varstu ung, einstæð móðir og þó ég muni auðvitað eftir basli þá man ég líka svo margar gæðastundir. Seinna þegar lífið var þér svo orðið auðveldara og barnabörnin þín voru að fæðast sá ég hvað þú virkilega naust samverunnar með þeim. Þú varst án efa sú besta amma sem sögur fara af og börnin fengu að upplifa svo margt með þér. Það var varla sú barnamenningarhátíð sem þið misstuð af, eða ísbúð sem þið komuð ekki í. Ömmuástin var svo sterk í þér að þú passaðir líka vel upp á ömmubörn Elínar systur þinnar sem lifði því mið- ur ekki til að hitta þau öll. Amma Bína varstu þeim öllum, svo dýrmæt og góð. Þú varst ein sú fyndnasta kona sem ég þekki og það sem við gátum hlegið. Þú varst sú al- hjálpsamasta manneskja sem ég þekki, stundum alveg óþolandi hjálpsöm reyndar. Alltaf til í eitthvað skemmtilegt og það sá maður helst á því fólki sem þú valdir sem samferðafólk í gegn- um lífið. Meðlimur í alls konar félagsskap og klúbbum sem gengu sennilegast flestir út á hlátur og glens. Húmorinn og auðmýktin var líka það sem mér fannst einna helst einkenna þig í þessum erfiðu veikindum. Gleðin og hláturinn einkenndu stofu 2 á líknardeildinni þar sem þú kvaddir umvafin þínu fólki. Svo ótrúlega elskuð. Við Hallur og börnin okkar höfum misst mikið en við mun- um gera okkar besta í að fylla skarðið með gæðastundum og skemmtilegri samveru eins og þú gerðir. Það mun engin ný ís- búð fram hjá okkur fara. Takk, elsku mamma mín, fyrir allt. Ég elska þig. Steinunn Anna. Elsku Guðrún mín. Ég sit hérna og ætla að skrifa nokkur minningarorð um þig, en í huga mínum vakna spurningar. Hvernig er hægt að réttlæta það að þú hafir verið tekin frá okkur svona snemma? Hvernig má það vera að þú hafir verið tekin frá okkur langt fyrir aldur fram? Það er eitthvað svo órétt- látt að hugsa til þess að þú varst á besta aldri og áttir svo mörg ár framundan til að njóta með vinum, fjölskyldu og barnabörn- um. Eftir að Elín systir okkar féll frá, þá tengdist þú börnum og barnabörnum hennar sterk- um böndum og stóðst alltaf þétt við bakið á þeim. Þú hugsaðir um þau eins og þín eigin, hvattir þau áfram og leiðbeindir þeim áfram í lífinu. Á lífsleið okkar þá áttum við alltaf við sama vandamál að etja, sem var í raun blessun þar sem við tengdumst svo sterkt í gegn- um það og hjálpuðum hvort öðru. Þú kynntir mér ákveðna lausn og fyrir það er ég afar þakklátur þar sem samveru- stundir okkar voru margar í kjölfarið, buðum hvort öðru í mat, ræddum málin, slúðruðum og hlógum að fjölskyldusögum. Þú varst alltaf áhugasöm um það sem var að gerast hjá mér og gafst mér oft góð ráð. Ein- hvern veginn náðir þú að draga mig í sjósund með þér, eitthvað sem ég hélt að ég myndi aldrei geta. Þú kenndir mér þá and- legu æfingu að fara í sjóinn, ekki nóg með það heldur synti ég með þér frá Nauthólsvík í Kópavog og til baka og síðar gegnum allar marglytturnar til Viðeyjar. Veikindi þín kenndu mér að horfa á lífið í nýju ljósi, þú barð- ist hetjulega, varst jákvæð og sigurviljinn var mikill. Þú varst alltaf jafn áhugasöm um aðra og ég mun aldrei gleyma gleðinni hjá þér þegar Jón Birnir sagði þér frá litla barninu í maganum á mömmu sinni. Þú sýndir fólk- inu í kringum þig raunverulegu gildin í lífinu sem er að sjá gleði og hamingju í litlu hversdags- legu hlutunum, njóta augnabliks- ins, njóta tímans með fjölskyld- unni og þeim sem standa manni næst. Þegar það var ljóst að þú myndir tapa baráttunni, þá vastu þakklát fyrir þann tíma sem þú fékkst til að kveðja og baðst bara um gleði, samveru og partí í kringum þig sem er aðdá- unarvert, vægt til orða tekið. Nánustu aðstandendur tóku það bókstaflega og annað eins partí á líknardeildinni hefur ekki sést. Elsku Guðrún, takk fyrir allar samverustundirnar, þú munt lifa áfram í hjarta mínu og í góðum minningum. Ég bið að heilsa El- ínu systur og Guðrúnu ömmu. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Gísli Jónsson. Nú máttu hægt (Nótt) Nú máttu hægt um heiminn líða, svo hverju brjósti verði rótt, og svæfa allt við barminn blíða, :,: þú bjarta heiða júlínótt. :,: Hver vinur annan örmum vefur, og unga blómið krónu fær. Þá dansar allt, sem hjarta hefur, :,: er hörpu sína vorið slær. :,: Og gáttu vær að vestursölum, þinn vinarljúfa friðarstig, og saklaus ást í Íslands dölum :,: um alla daga blessi þig. :,: (Þorsteinn Erlingsson) Júlínætur hrífa fleiri en þjóð- skáldið Þorstein. Júlí, tákn há- marks sumars og sólar. En nú á örstundu hefur krumla Heljar gripið. Frænka mín lést á Ba- stilludaginn 14. þ.m. eftir erfið veikindi. Tók helgöngunni með stóískri ró og setti mér jafnvel verkefni. Um miðjan maí hitti ég Guðrúnu Hlín á kaffihúsi þar sem hún vildi að ég skrifaði skáldsögu þar sem ættingjar okkar að Vesturgötu 33 kæmu við sögu. Fjórir kaflar náðust. En þeir verða fleiri, kaflarnir. „Hendum þessum út í kosmosið“ sagði hún ákveðin. Þó kaflarnir í lífsbók Guðrún- ar Hlínar yrðu ekki fleiri voru þeir innihaldsríkir og markviss- ir. Markvissa var lífsregla henn- ar. Innan og utan um lífsþráð hennar var kímni hennar og hárbeittur húmor. Lífslok eru ekki leiðalok. Minning Guðrúnar lifir eins og langafabróðir hennar Guðmund- ur Kamban orti um föður sinn Jón Hallgrímsson, látinn: Hitt veit ég að opin eru’ augu þín, að enn þá brosið þitt góða lifir – það sýnir mér daglega dóttir mín. Með þeim orðum sendi ég Steinunni Önnu og fjölskyldu hennar mínar dýpstu samúðar- kveðjur. Gísli Baldvinsson. Guðrún Hlín var falleg og hæglát í barnæsku. Þegar hún óx úr grasi kom í ljós sterk skaphöfn og réttlætiskennd. Hún var nokkrum árum eldri en börnin mín, Ingibjörg og Ólafur. Guðrún Hlín kom oft í heimsókn til okkar Magnúsar og leit til með frændsystkinum sínum þegar þau voru lítil. Á þessum árum kynntist ég frænku minni vel og var alla tíð gott samband á milli okkar. Fyrir það vil ég þakka. Á kveðjudegi Dagur tilfinninga, ríkra tilfinninga. Dagur sorgar, djúprar sorgar. Dagur þakkargjörðar, heitrar þakkargjörðar. Dagur sársauka og góðra minninga. (Ægir Fr. Sigurgeirsson) Ég bið Elínu systur minni og fjölskyldu Guðs blessunar, minning um fallega og góða frænku mun lifa. Herdís Heiðdal. Elsku hjartans frænkan mín, það er þyngra en tárum taki að þurfa að skrifa til þín kveðjuorð. Þú varst ekki bara frænka mín, þú varst vinkona mín. Þú varst alltaf til staðar, hjá þér var allt- af opið hús og allir velkomnir. Það er rétt svo hálft ár síðan þú meira að segja passaðir fyrir mig öll börnin – „jú, leyfðu mér að passa því ég treysti mér til þess“ og svo hljópstu á eftir Vali Ara eins og ekkert væri. Ótrú- leg. Þú áttir þennan skemmti- lega eiginleika að kunna að gera grín að sjálfri þér. Mættir til dæmis nokkrum sinnum með sjónvarpsfjarstýringuna á kaffi- hús. Jú, farsíminn þinn var þetta stór í eina tíð. Húmoristi „par excellence“ og þessi líka dillandi hlátur. Það voru nokkrir uppistandararnir sem þurftu að stöðva sýningar, svo mikið var hlegið. Ógleymanlegur hlátur. Það var yndislegt að ferðast með þér. Það var ekkert af- slappelsi, það á að nýta tímann, getur sofið seinna. Eitt sinn vorum við staddar í Helsing- borg í Svíþjóð og skv. Turist in- formation var það áhugaverð- asta í nágrenninu gönguferð til Nimis. Svo byrjaði gangan nið- ur á við og áfram niður. Það fóru að renna á okkur allveru- legar grímur með rauðvínið, ostana og baguette-brauðið und- ir handleggnum þegar við mættum sveittum og másandi túristum á uppleið, en áfram héldum við niður bara til þess að enda í stórgrýttri fjörunni í Kullaberg. Þar sátum við, virt- um fyrir okkur rekaviðarlista- verkið Nimis, sötruðum rautt og borðuðum þessa fínu osta með. Þetta varð hin eftirminnilegasta upplifun. Mér þótti líka óendanlega vænt um þegar þú heimsóttir mig til Edinborgar og saman fórum við í virðulegt hóf fyrir alþjóðastúdenta og áttum skemmtilegt spjall við fjörgamla prófessora í fullum skrúða. Í mörg ár áttum við vikuleg- an hitting í Stigahlíðinni. Í jóla- mánuðinum vorum við duglegar í sörugerðinni og piparkökuhús- unum. Þar lærðum við að þegar setja á saman piparkökuhús er bara eitt sem virkar og það er límbyssan. Límbyssan kom sér nú líka vel þegar þú settir sam- an yfir tuttugu brúðarslör fyrir gæsunina hennar Hellu vin- konu. Þú elskaðir brúðkaup. Matarboðin þín voru eðal og ekkert til sparað. Við gátum endalaust talað um mat. Eitt skiptið ákváðum við að ráðast í hveitikökugerð í anda Öggu frænku. Íbúðin fylltist af reyk og við urðum á endanum að taka hlé úti á svölum til að ná andanum, en vestfirsku hveiti- kökurnar runnu ljúft niður í næsta fjölskylduboði. Þú varst auðvitað ofurung móðir og ofur- ung amma og þú fékkst líka fullt, fullt af barnabörnum og amma Bína var sko bara skemmtileg. Dugnaðurinn í þér í ömmu Bínuferðunum, allt skipulagt, sund og ísferðir kort- lagðar og tilhlökkunin hjá þér endalaus. Mikil endemis lukka var að eiga ömmu Bínu. Eins mikið og ég kveið fyrir að þurfa að kveðja þig, ófyrirgefanlegt óréttlætið, þá veit ég líka hversu vel það var tekið á móti þér hinum megin. Elsku Steinunn Anna, Stella, Jón, Helena, Katrín og fjöl- skyldur ykkar allra, sendi ykk- Guðrún Hlín Jónsdóttir ✝ Jón Guðmannfæddist í Reykjavík 24. október 1952. Hann lést 15. júlí 2019 á Landspít- alanum í Fossvogi. Foreldrar hans eru Fanný Guð- björg Guðmanns- dóttir, f. 24.10. 1932, d. 27.1. 2017, og Már Sveinsson, f. 16.11. 1933. Bróðir Jóns var Sigurður Sveinn, f. 1955, d. 2008. Svenni var giftur Vaidu Másson og eignuðust þau einn son, Samúel, f. 1999, d. 2014. Fanný giftist Magnúsi Jóns- syni, f. 1924, d. 1968. Sam- mæðra systur eru Halldóra El- ín, f. 1959, gift Guðmundi A. Sæmundssyni. Valdís, f. 1960, gift Unnsteini Hermannssyni, uðust þau tvö börn. Magnús Jónsson, f. 1973, kvæntur Huldu Grímsdóttur, þau eiga þrjú börn, Kristófer, f. 1994, Sigrúnu Köru, f. 1999, og Grím Guðmann, f. 2003. Fanný Guð- björg, f. 1981, gift Bjarna Kristjánssyni, f. 1980, eiga þau tvær dætur, Pálínu Guðrúnu, f. 2015, og Rögnu Lovísu, f. 2018, auk þeirra er drengur væntan- legur í heiminn í ágúst 2019. Yngstu dóttur sína eignaðist Jón með Heiðu Leifsdóttur, Karitas Sól, f. 1995, og ólst hún upp hjá föður sínum. Jón ólst upp í Laugarnesi og var varla byrjaður í grunn- skóla þegar hann var farinn að bera út og selja Vísi. Ásamt blaðasölunni vann hann með afa sínum hjá Reykjavíkur- borg. Hann fór ungur með afa sín- um vestur í Hítardal og kynnt- ist hjónunum að Staðarhrauni. Vann hann hjá þeim nokkur sumur. Útför Jóns fer fram frá Laugarneskirkju í dag, 22. júlí 2019, klukkan 13. og Sólveig Fanný, f. 1961 gift Hall- grími Gröndal. 1973 giftist Fanný Kristni Ólafssyni, f. 1932, d. 2006. Már giftist Margréti Björns- dóttur, f. 1962, d. 2015. Samfeðra systkin eru Sigþór Sveinn, f. 1959, giftur Kristínu Arnþórsd. Ingvar, f. 1964, gift- ur Kim McDonnell. Sigurður, f. 1968, giftur Arnfríði Ragn- arsdóttur, og Sveina María, f. 1973. Eftirlifandi eiginkona Jóns er Dorian Obando Gomez, f. 17.11. 1968. Sonur Dorian er Andres Ivan Robayo Obando. Jón kvæntist Guðrúnu Auðunsdóttir frá Kálfhóli á Skeiðum árið 1974 og eign- Í dag kveðjum við tengda- pabba minn, hann Jón Guðmann eðalmann. Það var fyrir tæpum 15 árum sem við kynntumst þegar við Fanný vorum að byrja saman, og hafa sú kynni verið afar ánægjuleg og alltaf á já- kvæðu og hlýlegu nótunum. Jón Guðmann er líklega einn mesti töffari sem ég hef kynnst um ævina og lenti hann í ýmsu á sínum dögum. Síðustu árin starf- aði hann sem leigubílstjóri og það var náttúrulega tekið alla leið eins og allt hjá Jóni. Ég minnist þess þegar hann sagði að það hafði bara verið ró- leg nótt hjá honum því hann hefði ekki keyrt „nema í 14 tíma“! Fyrir nokkrum árum sótti hann mig út á Keflavíkurflugvöll, eins og hann gerði reyndar alltaf þegar við komum í heimsókn til Íslands frá Svíþjóð. En í þetta skipti þegar ég opnaði skottið og henti töskunni inn lá hafnabolta- kylfa í skottinu og ég spurði hvort hann væri byrjaður að stunda hafnabolta en þá kom svarið: „Tja, maður veit aldrei í hverju maður lendir, maður!“ Svo ekta Jón Guðmann, við öllu reiðubúinn! Hraustmenni var hann og þrátt fyrir mikil veikindi í rúmt ár vann hann fram á síðasta dag, tók kannski aðeins styttri vaktir í einu, „bara svona 10 tíma“! Það eru endalausar minningar sem koma fram þegar maður hugsar um Jón Guðmann, en flestar eru þær tengdar mat. Það voru ófáar stundirnar sem við grilluðum saman. Og um jól- in fyrir nokkrum árum höfðum við nautalund í aðalrétt og svína- lund sem meðlæti. Þvílíkt sem við vorum hamingjusamir með þetta félagarnir. Jón Guðmann er maður sem enginn gleymir og ég mun gera mitt besta í að halda minningu þinni á lofti og segja barnabörn- unum þínum skemmtilegar sög- ur af þér. Hvíldu í friði, vinur minn. Bjarni Sigurður Kristjánsson. Engar fleiri daglegar hring- ingar, ekki fleiri regluleg stefnu- mót á krabbameinsdeildinni, ekki fleiri sterk innileg og löng faðmlög, allt í einu er allt búið. Elsku besti bróðir minn Jón Guðmann er búinn að kveðja þetta líf og er farinn til indíán- anna sinna, þar er partíið byrjað. Jón bróðir var töffarinn, okkar gleðigjafi og mikill húmoristi. Hann var dásamlega hlýr, fal- legur, hafði mjög fallegt bros og það birti upp hvar sem hann kom. Allar konur elskuðu Jón og allar vildu þær eiga hann, hann vissi vel af því og elskaði það. Hann hafði mjög góða nærveru, dæmdi engan, gaf öllum séns og átti vini um allan heim. Jón hafði sterkar skoðanir á öllu, var mjög fróður, vel lesinn og mikill heim- spekingur. Hann hafði sterkar skoðanir á pólitík og þjóðmálum og þorði að tjá sig. Jón var sá sem fór til Litháen og sótti Svenna bróður þegar hann dó 2008. Sagði hann að það hefði verið það erfiðasta sem hann hefði gert á ævinni. Þegar sonur Svenna tók líf sitt stuttu síðar var það eitthvað sem ekk- ert okkar nær að vinna úr og setti það mikið mark á hann og okkur öll. Hann myndaði tengsl við mágkonu okkar í Litháen og hélt því sambandi. Þannig maður var Jón, aldrei nokkurn tíma kvart eða kvein. Jón fór ekki alltaf vel með sig, hann var túra- kall, sem hafði slæm áhrif á hann og hans nánasta fólk, oft voru það erfiðir tímar. Hann vildi engum illt og var miður sín yfir að hafa valdið öðrum erf- iðleikum og áhyggjum. Jón sagði oft við mig: Valdís mín, það er ekki út af neinu sem ég er búinn að lifa svona hátt, ég vissi þetta alltaf og ég bara nýtti tímann vel. Það er líka svo sterkt í mér, manstu við erum komin af Fjalla-Eyvindi. Þessar umræður áttum við oft þetta síðasta ár. Jón Guðmann Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.