Morgunblaðið - 22.07.2019, Síða 20

Morgunblaðið - 22.07.2019, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 2019 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Vantar þig fagmann? FINNA.is Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógum 4 Opin smíðastofa kl. 9-16. Opin handavinnustofa kl. 9 - 12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40- 12.45. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S: 535 2700. Boðinn Félagsvist kl. 13. Magnús Einarsson frá Kjarnholtum er með myndasýningu í matsal næstu vikurnar, allir velkomnir. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Spjall, kaffi og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Kosning stendur yfir um nafn á nýja æfingarsvæðinu. Hádegismatur kl. 11.30. Félagsvist kl. 13. Handavinnuhornið kl. 12-15. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Núvitund í handverkstofu kl. 10.30. Göngutúr um hverfið kl. 13. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Hádegis- matur frá 11.30-12.30 alla daga vikunnar og kaffi frá kl. 14.30-15.30 alla virka daga. Opin handverksstofa alla virka daga. Verið hjartanlega vel- komin á Vitatorg. Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13.15 Canasta. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frákl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45. Hádegismatur kl. 11.30, frjáls spilamennska kl. 13, liðleiki á stólum með Margréti kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45,upp- lestur kl. 11, hádegisverður kl. 11.30, ganga m.starfsmanni kl. 14, síðdegiskaffi kl. 14.30, bíó í betri stofunni kl. 15.30. Uppl í s.411 2760. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness kl. 18.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568 2586. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR HELGADÓTTIR, Aflagranda 40, Reykjavík, lést á Landspítala Landakoti mánudaginn 15. júlí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 23. júlí og hefst klukkan 15. Guðlaug Ólafsdóttir Geir Rögnvaldsson Karítas Ólafsdóttir Ari Ólafsson Helgi Ólafsson Sigurborg Arnarsdóttir Anna Vigdís Ólafsdóttir Benedikt Lund barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EYSTEINN GUÐMUNDSSON bílasmiður, lést mánudaginn 15. júlí á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 23. júlí klukkan 13. Valgerður Þ. Guðleifsdóttir Þór Eysteinsson Viðar Eysteinsson Kolbrún Eysteinsdóttir Kristinn Bjarnason Guðrún M. Eysteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Sálm. 86.11 biblian.is Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. ✝ JófríðurBjörnsdóttir, fæddist á Akureyri 29. október 1944. Hún lést 8. júlí 2019. Foreldrar henn- ar voru Björn Júl- íusson, pípulagn- ingamaður og bóndi, f. 14 apríl 1903, d. 26. febr- úar 1985, og Snjó- laug Hjörleifsdóttir, f 1. sept- ember 1911, d. 26. janúar 2001. Systkini hennar eru Jóhanna María, f. 1934, d. 2015, Hjör- leifur Baldvin, f. 1937, d. 2009, Rósa, f. 1938, d. 2013, Sigrún, f. 1940, d. 2017, Júlíus Jón, f. Marsibil Ósk og Víðir Óli. Barnabörnin eru sex talsins. Eiginkona Þráins er Sig- urborg Kristjánsdóttir og þeirra börn eru Kristján Birn- ir, Hákon Burkni og Hafdís Katja. Jófríður ólst upp í Helga- magrastræti á Akureyri en flutti 13 ára gömul með for- eldrum sínum í Laugahlíð í Svarfaðardal. Síðar flutti hún til Keflavíkur, var eitt ár í Par- ís en bjó í Reykjavík frá því um tvítugt. Jófríður stundaði ýmis störf á yngri árum en var flug- freyja hjá Lofleiðum, Flug- leiðum, síðar Icelandair, í 43 ár. Var um langt árabil virkur félagi í Flugfreyjufélagi Íslands og formaður þess um nokkurt skeið. Þá tók hún einnig í seinni tíð þátt í starfi Svalanna, félagi fyrrverandi og núver- andi flugfreyja. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. 1942, Daníel Björn, f. 1946, Árni, f. 1951, og Ólafur Örn, f. 1953. Jófríður giftist þann 8. október. 1966 Kristni Vigni Helgasyni, f. 27. desember 1931, d. 5. mars 2011. Dótt- ir þeirra er Inga Rún Kristinsdóttir, f. 13. maí 1968. Áður átti Kristinn fyrir synina Helga Vigni, f. 10. desember 1956, og Þráin, f. 26. febrúar 1961. Eiginkona Helga er Ás- gerður Jófríður Guðbrands- dóttir og þeirra börn eru Guð- mundur Óli, Kristinn Vignir, Það var líf í Helgamagrastræt- inu á Akureyri þegar Jófý móð- ursystir mín var að alast upp, enda níu systkinin. Þrettán ára varð hún himinlifandi þegar for- eldrar hennar keyptu Laugahlíð í Svarfaðardal því hún var bara alltaf að passa börn meðan systk- ini hennar voru send í sveit. En svo heillaði sveitamennskan bara ekki. Síðar flutti hún til Keflavík- ur þar sem hún bjó hjá Hönnu Maju systur sinni og honum Bubba. Og þar kynntist hún hon- um Bóa sínum, Kristni Helga- syni, sem lést fyrir átta árum síð- an. Bói var nokkru eldri og lífs- reyndari, átti drengina Helga og Þráin og var heldur betur skotinn í henni frænku minni. Óborganleg er sagan þegar hann hringdi í minjagripabúð á Keflavíkurflug- velli þar sem Jófý vann og und- arleg rödd í símanum segir: „góð- an daginn, eigið þið háhælaða sauðskinnsskó?“ Þetta fannst Jófý hallærislegt en ekki meira en svo að þannig náði nú Bói í Jófý og hún í hann. Og nokkrum árum seinna eignuðust þau hana Ingu Rún. Það eru svo margar minningar sem koma upp. Ég sem drengur að gista í Ljósheimunum og brennisteinslyktin þegar ég fór í bað. Ekki var það svona fyrir norðan. Aðeins eldri í Sólheimun- um upp á tíundu hæð. Þegar ég passaði kisuna Sólveigu í Gnoð- arvoginum þegar þau voru í ferðalagi. „Man eftir hvað þau Bói voru miklir vinir. Hann lá í sóf- anum og hún á bringunni á hon- um. Svo var hann alltaf að tala við hana, stundum um pólítík,“ sagði hún mér. Minningar af gulu bjöllunni, bílnum sem fylgdi þeim svo lengi. Þegar við fórum ásamt Guðrúnu, kærustu Jóhanns bróður Bóa, að sækja hann – á bjöllunni – til Keflavíkur þegar hann kom til landsins með hljómsveitinni Change. Og Björgvin Halldórs kyssti Ingu Rún á ennið og hún þvoði sér ekki í framan í viku. Minningin af því þegar hún sagðist hafa séð svolítið eftir því að hafa ekki verið lengur í París þegar hún var að passa þar börn, en ekki lengi því þá hefði hún ekki hitt Bóa og þá væri engin Inga Rún. Jófý var flugfreyja í 43 ár. Hún var lengi í stjórn flugfreyjufélags- ins og formaður þess um skeið. Hún seldi jólakort og setti upp markaði með vinkonum sínum í Svölunum, félagi sem flugfreyjur stofnuðu. Studdu þær einstak- linga og önnur góð samtök. Það var nóg að gera í því að hjálpa öðrum. En hún eignaðist líka stóran vinahóp. Frænka mín var ekki sátt við stöðu sína síðasta kaflann í lífinu, fæturnir að svíkja hana og hinn ömurlegi alzheimer farinn að hreiðra um sig. Ósátt við að hlut- verkin væru breytt, hún gæti ekki stutt aðra og nú væri það Inga Rún sem styddi hana en ekki öf- ugt. En hún var mjög sátt við sitt innihaldsríka líf. Vinamörg og öll ferðalögin. Ég veit það því hún sagði það sjálf. Elsku Inga Rún, mínar stærstu og mestu samúðarkveðj- ur til þín, bræðra þinna og ykkar nánustu. Mamma þín gaf frá sér hlýju og gleði. Ég þakka fyrir allt og kveð með ljóði eftir Þorstein frá Hamri: Hér stilltu guðir streng; hann struku dægrin blíð; þann óm til eyrna bar mér árblær forðum tíð. Ég nem hann ljósar nú er nálgast rökkrið svalt. Svo fer einn dag að flest mun fullnað, jafnvel allt. Arnar Valgeirsson. Á fallegum sumardegi þegar trén skarta fullum skrúða kvödd- um við Jófríði Björnsdóttur frænku, eða Jófý eins og hún var kölluð. Jófý minnti okkur reglu- lega á að hún hafi verið skírð í höf- uðið á ömmu okkar, Hólmfríði, og afa Jóhannesi en hún var dóttir Björns Júlíussonar, bróður ömmu og Snjólaugar Hjörleifsdóttur, eða Snjóku. Hólmfríður amma var elst, hann yngstur sjö systk- ina. Jófý rifjaði stundum upp skemmtilegar minningar frá þeim tíma þegar Helgamagra- stræti 3 og Oddagata 5 voru, eins og Júlíus Daníelsson frændi lýsti svo vel, einskonar skálar um þjóð- braut þvera; fyrir stóran frænd- garð og vinahóp. Á glettinn og góðlátlegan hátt gerði hún stund- um grín að því að mæðgurnar í Oddagötu áttu það til að hringja upp í Helgamagrastræti til að fá eitthvert af „Bjössabörnunum“ níu til að sendast eftir hinu og þessu vegna þess að „einkasyn- irnir“ voru sagðir vant við látnir. Þarna glitti í húmoristann og jafnaðarmanneskjuna Jófý. Við munum eftir ungu Jófý þegar hún var nýkomin frá Frakklandi, heimsborgari, í karrígulri kápu og skóm í stíl, altalandi orðin á frönsku. Við munum líka eftir flugfreyjunni Jófý, viljasterku stéttarfélagskonunni sem um tíma var kjarkmikill formaður flugfreyjufélagsins. Við munum þorrablótin þar sem sungið var minni karla og kvenna og skemmtilegu frænkuboðin heima hjá Jófý, þar leið öllum vel. Ljúfar eru góðu bernskuminningarnar úr Laugahlíð, þar voru nefnilega allir sem skiptu einhverju máli í okkar huga; Bjössi frændi, Snjóka, Danni, Jófý, Ásta, Árni, Úlli, pabbi, mamma og við Fríða; hlöðuloftið, hestar, hundur, hænsni, heimalningar, kýrnar, skógarlundurinn suður af bæn- um, sundskálinn snertiflöt í norð- ur, heyskapurinn, bekkurinn í eldhúsinu, já, þá var þétt setið í eldhúsinu í Laugarhlíð – á ís- lensku sumri og „sólin söng sitt lag“ í takt við niðinn í ánni sem rennur niður dalinn. Seinna var nánast aldrei talað um Jófý án þess að minnst væri á Bóa og Ingu Rún í sömu andrá, þessi þrenning og seinna þær mæðgur svo nánar að eftir var tekið. Öll vitum við að áhrif manns á annan lögum lúta. Það kom því ekki á óvart að Inga Rún, dóttir Jófýjar gerðist flugfreyja. Um tíma voru þær þrjár saman frænkurnar starfandi sem flug- freyjur, Jófý, Inga Rún og Ingi- björg. Mikið var þá rætt um starf- ið, „stoppin“ og stéttarfélagsmál. Nú er Jófý flogin inn í sumarland- ið. Jófríður Björnsdóttir var „stórfrænka“ og við minnumst hennar með hlýhug og virðingu. Jófý horfðist í augu við lífið, hún vissi að þegar öllu er á botninn hvolft þarf eins og kemur fram í kvæðinu Lífsþor eftir Árna Grét- ar Finnsson; „... viljastyrk til að lifa eigin ævi, einurð til að forðast heimsins lævi, vizku til að kunna að velja og hafna, velvild, ef að andinn á að dafna. Elsku Inga Rún, við sendum þér og öðrum aðstandendum dýpstu samúðarkveðjur. Hólmfríður og Vilborg Júlíusdætur og Ingibjörg Arnardóttir. Fyrstu minningar mínar um Jófý, eins og hún var alltaf kölluð, eru frá kvöldverði í New York þar sem ég naut frásagnargáfu henn- ar þegar hún sagði skemmtilega sögu með sínum norðlenska hreim. Jófý var einstök kona með góð- semi í ríkum mæli. Hún brást allt- af strax við ef henni fannst á ein- hvern hallað að ósekju. Hún þoldi ekki hræsni. Hún hafði ríka rétt- lætiskennd og var með sterka stéttarfélagsvitund, var hún for- maður Flugfreyjufélags Íslands og nutum við flugfreyjurnar góðs af því. Jófý byrjaði í flugfreyjustarf- inu hjá Loftleiðum hf. upp úr tví- tugu og varð það ævistarf hennar. Hún var góð flugfreyja, úrræða- góð og einstaklega samviskusöm, henni var annt um farþegana sína. Það var svo gaman að fljúga með henni, hún hafði hásan smit- andi hlátur, sem ekki var annað hægt en að hlæja strax með, þó svo að sagan sem hún var að segja hlæjandi frá væri ekki búin. Hún var mjög félagslynd og alltaf til í að koma út að borða, fara í leikhús og skemmta sér. Sumarið 1997 ákváðum við nokkrar flugfreyjur að stofna les- hring, fyrsta leskvöldið okkar var síðan 15. janúar 1998. Köllum við leshringinn okkar LesFluffur. Þessi yfir 20 ár hafa gefið okkur ómældar ánægjustundir, miklar hláturrokur, gáfulegar og mis- gáfulegar umræður. Jófý var með leiftrandi og hraðfleyga hugsun og kom oft með svo skemmtilegar athugasemdir um bækurnar. Svo var hún orðheppin með eindæm- um og sagði ég eitt sinn við hana í fluginu að ég vildi að ég hefði skrifað niður alla „gullfrasana“ sem ég hafði heyrt hana segja í gegnum árin. Jófý talaði frá upphafi hrein- skilningslega um veikindi sín, strax og hana grunaði hvað stefndi í, hún sætti sig við að hætta að keyra, sem hafði auðvit- að heftandi áhrif á líf hennar. Hún varð þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast yndislega dóttur, Ingu Rún, sem hún var svo hreykin af. Inga Rún hefur alltaf hugsað svo fallega um mömmu sína, sérstak- lega í veikindum hennar. Ég minnist Jófýjar með hlýju, hennar sem var svo einstaklega sjarmerandi með dásamlega fal- legt bros. Núna yljar minningin um síðasta brosið hennar til mín nokkrum dögum áður en hún lést, þegar ég sagði henni frá lang- ömmubarninu sem væri alveg að fara fæðast. Ein af LesFluffunum kveður hér með Jófríði Björns- dóttur með söknuði og þakklæti fyrir yfir 50 ára ánægjuleg kynni og sendi Ingu Rún, einkadóttur hennar, fjölskyldu allri og vinum innilegar samúðarkveðjur. Anna Bjarna. Jófríður Björnsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á út- farardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað út- förin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerf- inu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minn- ing@mbl.is og láta umsjónarmenn minning- argreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.