Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 7

Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ | 7 DEMPARAR FYRIR ÞÁ KRÖFUHÖRÐU! Aflvélar ehf, Vesturhrauni 3, 210 Garðabæ. Sími: 480-0000. www.aflvelar.is sala@aflvelar.is TEXA GREININGARTÖLVUR Fyr i r vörub í la , fó lksbí la , mótorh jó l , v innuvélar , bátavélar og drát tarvé lar . ,,Hey Mercedes“. Stundum brýst unglingurinn í henni út og þá þarf að þrábiðja hana um aðstoð við dagleg verk eins og að skipta um útvarps- stöð, hækka í miðstöðinni eða finna fljótustu leiðina heim. Í hlutverki leiðsögumanns á hún það líka til að vera með stórkostlega vafasamt mat á því hvenær beygja telst kröpp, og mætti taka því með fyrirvara þegar hún varar mann við ,,smá“ beygju fram undan. Heilt yfir er Mercedes þó afskaplega viðmótsþýð og hjálp- fús, og samskiptin myndu vafalaust batna við lengri viðkynningu. Í fyrstu verður nýr GLE einungis fáanlegur með 245 hestafla dísilvél, en verður síðar í boði með bensínvél og í tvinn-útfærslu. Hestaflatalan fær hjartað svosem ekki til að slá mikið hraðar, en hann er einhvern veginn sprækari en hestafjöldinn gefur til kynna og vélin virðist hæfa þessum bíl ágætlega ef svo má að orði komast. Þá er GLE drekkhlað- inn öryggisbúnaði og akstursaðstoð, ýmist í formi staðal- eða aukabún- aðar. Til að mynda getur þrívídd- armyndavél greint veginn fram- undan og aðlagað dempara til að draga úr hossi á holóttum vegum. Þá geta tengivagnafælnir ökumenn val- ið hugbúnað sem stýrir beygjuhorni sjálfkrafa gagnvart aftanívagni, og fengið þannig aðstoð við að bakka hjólhýsinu á sinn stað af sjálfsöryggi og yfirvegun. Morgunblaðið/Hari Bensín og tvinn-útfærslur eru væntanlegar áður en langt um líður.GLE virkar sprækari en hestaflatalan myndi fá mann til að búast við. » 2,0 l dísil » 245 hestöfl/500nm » Sjálfskiptur 9G-Tronic » 6,1 l/100 km » 0-100 km/klst. á 7,2 sek. » Hámarkshraði 225 km/klst. » Fjórhjóladrifinn » Dekk 275/50 R20 » Þyngd 2.170 kg » Farangursrými 690 l » Koltvísýringslosun 161 g/km Verð frá 11.350.000 kr. Mercedes-Benz GLE Nuddsæti, sem fást sem aukabúnaður, eiga að hjálpa til að draga úr þreytu á langferðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.