Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 9

Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 9
þrepi neðar, í grunnútgáfuna, og fórna 60 hestöflum og 0,4 sekúndum – sirkabát 300 hestöfl fyrir tæpar 11 milljónir króna, sem er vel sloppið. En væri nógu mikið fútt í því? Í Cayman GTS er að finna prýðilegt jafn- vægi á milli hraðaleikfangs og hversdagsbíls svo að það yrði aldrei leiðinlegt né heldur sérstaklega erfitt að búa með honum. Og ef eitthvað er má segja að 718 Cayman, sama í hvaða kraftaútfærslu hann kemur, sé hentugri til daglegrar notkunar en 911. Kem- ur það til af ágætis geymsluplássi bæði í fram- og afturfarangursrýminu. Á 911 er ekkert skott en þar rúmast ein eða tvær handfarangurstöskur til viðbótar við þær tvær-þrjár sem komast í framrýmið. Að vísu er 911 með aftursæti, en þar geta aðeins minnstu manneskjur setið með góðu móti svo að þessi tvö aukasæti teljast varla með við mat á notagildi sportbílanna frá Porsche. Betri á stuttum spretti en í langferð Blessunarlega fékk ég að sækja bílinn í Stuttgart, í höfuðstöðvar Porsche. Hann nýt- ur sín nefnilega svo fjarskavel á hraðbraut- unum og gerir heilmikið fyrir sálartetrið að finna fyrir algjöru sjálfstrausti kominn vel yfir 200 km á klukkustund á rennisléttu þýsku malbiki. Stefnan var sett á Berlín, um 6-7 tíma akstur aðra leið og annað eins til baka, því hvað annað á maður að gera en að aka sem mest þegar svona bíll er í boði, og skjótast í leiðinni í Pergamon-safnið? Eins gaman og það er að spana þá fann ég samt að 718 Cayman GTS er kannski hent- ugri fyrir stutta og snarpa túra en fyrir svona löng þjóðvegaævintýri. Töluvert veg- hljóð berst inn í farþegarýmið þegar komið er á góðan hraða svo það er ekki hægt að hlusta á djass eða rólega klassík: bara hart og spólgratt rokk. Var upplifunin allt önnur á stóru systur, Panamerunni, sem ég ók hér um árið í nærri 3.000 km hring um alla Evr- ópu og hefði alveg getað hugsað mér aðra 3.000 til viðbótar. Upplýsingaskjárinn er tiltölulega smár miðað við marga nýja bíla í dag, en gerir sitt gagn og miðlar öllu sem ökumaður þarf að vita á skýran og einfaldan hátt. Skeiðklukkan ofan á mælaborðinu, sem fylgir með Sport Chrono-pakkanum, átti það til að endurspegl- ast í framrúðunni við ákveðin birtuskilyrði, og er það ekki heppilegt á harðaspani á hrað- braut. Samt ætti enginn að láta það fæla sig frá að splæsa í Sport Chrono sem aukabún- að, því með í kaupunum fylgja „launch control“ og blessaður „sport“-takkinn sem situr á lítilli skífu í seilingarfjarlægð frá þumalfingri hægri handar. Ýttu á þennan takka og bílinn fer í vígaham í um 20 sek- úndur og gagnlegt að geta sótt þennan við- bótarkraft þegar þarf t.d. að taka fram úr. Takmarkað litaframboð Þá átti ég ekki auðvelt með að finna stað til að hvíla olnbogana, enda hugmyndin kannski frekar sú að baki hönnun innan- rýmisins að 718 sé notaður á fleygiferð á kappakstursbraut með báðar hendur límdar við stýrið, frekar en að ekið sé í makindalegri stellingu eins og konungur á hásæti. Stærsti gallinn, ef kalla má galla, er að þegar kemur að 718 Cayman GTS býður Porsche aðeins upp á sextán liti, og fáir þeirra eru mér sérstaklega skapi (fyrir nýja 911 tel ég sautján liti, sem er litlu skárra). Er það helst að sérvöldu litirnir – Miami- blár, hraun-rauðgulur og krítargrár – dragi fram það fegursta í lögun bílsins, en til sam- anburðar má velja úr 37 litum við kaup á McLaren og hjá Lamborghini eiga bíla- sprautararnir til 41 lit. Guli liturinn á prufubílnum er ekki alveg minn tebolli, en skær liturinn hefur þó þann ótvíræða kost að silakeppirnir á þýsku hrað- brautunum sjá bílinn greinilega í baksýnis- speglinum og eru fljótir að tæma vinstri ak- reinina. Og almáttugur hvað það var gaman að aka þessum hæfilega hráa sportbíl alla leið frá Stuttgart til Berlínar og vera á vinstri ak- reininni allan tímann. MORGUNBLAÐIÐ | 9 Að innan er bíllinn hæfilega hrár og hvass, gerður fyrir þá sem taka akstur alvarlega. Það er af ásetningi gert að snúa þarf lykli til að ræsa vélina. Það tengir strax mann og bíl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.