Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ
Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir
sigridurelva@mbl.is
C
ross Country er háfættari
útgáfa af hinum feikivel
heppnaða V60, sem var
einmitt valinn bíll ársins
hérlendis í fyrra. Og það eru ekki
slegnar margar feilnótur hér held-
ur: bíllinn í heild sérdeilis prakt-
ískur, rúmgóður, öflugur á veg-
leysum og skemmtilegur í akstri.
Oft eru breytingar til að auka
notagildið gerðar á kostnað kyn-
þokkans, en svo er alls ekki hér.
Cross Country er afskaplega
snoppufríður, og svei mér ef mér
finnst hann ekki að mörgu leyti
gæjalegri í útliti en lágfættari
frændi hans. Hann stendur
hærra, og svört klæðning sem
liggur með neðra byrðinu öllu
gefur honum töffaralegt yfir-
bragð. Hún þjónar reyndar líka
þeim tilgangi að einangra bílinn
frá grjótkasti. Þetta er bíll sem
maður getur af öryggi farið með
út á malarveg án þess að vera
með hland fyrir hjartanu yfir mal-
arskemmdum á lakki.
Prýðisvalkostur í stað jepplings
Þó maður æði líklega ekki út í
jökulá á Cross Country er hann
nógu mikið torfærudýr til að henta
þeim sem alla jafna myndu kjósa
jeppling til að komast ferða sinna.
Hann er 6 sentimetrum hærri en
hefðbundinn V60, með 21 cm undir
lægsta punkt. Fjórhjóladrifinn og
búinn brekkuaðstoð með sjálf-
virkum bremsum til að auðvelda
akstur í bröttum brekkum. Þá ætti
Webasto-hitakerfið að gleðja bæði
vél og ökumann í vetrarveðri og
skíðaferðum í nístingsgaddi. Fjöðr-
unin er mjúk en hér hafa menn þó
ekki fórnað aksturseiginleikum
fyrir þægindi. Þó maður geti án
mikilla vandkvæða ekið nokkuð
greitt yfir grófa vegi án þess að
botnstykkið líði fyrir það fer því til
dæmis fjarri að hann halli sér um
of í beygjum.
Innandyra er, eins og fyrri dag-
inn, allt eins og það á að vera hjá
Volvo. Skandinavísk smekklegheit
út í gegn. Sætin afskaplega þægi-
leg og leggjalangur ferðafélagi
hafði sérstakt orð á því hve rúmt
væri um hann í farþegasætinu.
Eins er, því miður, afskaplega
móðins hjá bílaframleiðendum að
öllum helstu aðgerðum er stýrt í
gegnum veglegan snertiskjá.
Snerlar og takkar virðast heyra
sögunni til. Mér fannst á köflum
þurfa að fletta óþarflega oft til að
komast að því sem leitað var að,
og í sumarbirtunni stungu putta-
förin, sem óhjákvæmilega verða
eftir á skjánum, óþægilega í augun
inni í þessu stílhreina og fágaða
innanrými. Nú er ég viss um að
þetta venst við lengri viðkynningu,
en plííííís, getum við fengið takka
aftur? Allavega til að stýra hita og
hækka í útvarpinu? Svona sem
maður snýr með handafli og þarf
ekki að strjúka af á fimm mínútna
fresti?
Sænskt zen
,,Af hverju keyrirðu svona …
rólega?“ spurði vinur minn á leið-
inni til Nesjavalla, á guðdómlega
hlykkjóttum vegkafla þar sem ég
á yfirleitt erfitt með að hemja
mig og býð – til að fyrirbyggja
bílveiki – ekki nema hraustustu
mönnum í bíltúr. Ég leit á hraða-
mælinn, og viti menn! Hann sýndi
tölu sem sænskur ökukennari á
eftirlaunum hefði líklega verið
ánægður með. Ekki það að 190
hestafla dísilvélin í reynsluakst-
ursbílnum skili ekki sínu, ein-
hvern veginn hefur maður bara
ekki þörf fyrir að hamast neitt
eða gefa í að óþörfu. Það fer hon-
um bara betur að líða í rólegheit-
um eftir veginum í einhverri
sænskri útgáfu af zen-ástandi.
Þrátt fyrir að vera fantafínn
bíll með margt til brunns að bera
er Volvo V60 Cross Country
nefnilega ekkert forystukarldýr.
Frekar innhverfur í ætt við önnur
farartæki frá framleiðandanum.
Þetta er bíll þess sem þarf ekki
að berast á, að minnsta kosti ekki
á áberandi hátt. Hann er með sitt
á þurru, keyrir á löglegum hraða,
flokkar ruslið og skilar skatt-
framtalinu á réttum tíma.
Ég verð að viðurkenna að ég er
bara nokkuð skotin í þessum há-
fætta og rennilega Svía, sem ætti
að vera fyrirtaks kostur fyrir þá
sem vilja fallegan og skemmti-
legan akstursbíl, en samt geta
komist ferða sinna í torfærum og
sköflum.
Morgunblaðið/Eggert
Hógvær en kostum prýddur
Hann er háfættur og
lipur en þarf ekki að
láta mikið á sér bera.
V60 CC er ef til vill
ekki forystukarldýr en
býr yfir sterkum
sænskum sjarma
engu að síður.
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
SANGSIN gæðavara frá Kóreu
BREMSU
VÖRUR
í flestar gerðir bíla
» 2,0 l turbo dísil
» 190 hestöfl/400 nm
» Sjálfskiptur 8 gíra
» 5,1 l/100 km
» 0-100 km/klst. á 8,2 sek.
» Hámarkshraði
210 km/ klst.
» Fjórhjóladrifinn
» Dekk 215/55 R18
» Þyngd 1.862 kg - 1.875 kg
» Farangursrými 529 lítrar
» Koltvísýringslosun
135 g/km
Grunnverð: 6.990.000 kr.
Eins og prófaður: 8.846.000 kr.
Volvo
V60 CC
„Ekki það að 190 hestafla
dísilvélin skili ekki sínu, ein-
hvern veginn hefur maður
bara ekki þörf fyrir að hamast
neitt eða gefa í að óþörfu.“