Morgunblaðið - 24.07.2019, Blaðsíða 1
HLÝDDI ÁWARREN BUFFETTGÆÐIN AUKASTMIKIÐ
eyrnartól úr hvítagulli skreytt með fjölda örsmárra demanta. 4
Nýtt tveggja skrúfu togskip er komið
hingað til lands. Skipið gjörbreytir
vinnuaðstöðu starfsmanna.
VIÐSKIPTA
4
H
Hermann hefur alla tíð verið reyklaus og edrú.
Hann stundar golf af miklum krafti og sækir sér
innblástur í góðum viðskiptasögum.13
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019
Allt að tólf vélar innan tveggja ára
Bandaríska athafnakonan Michele Ballarin er
með undirritaðan samning um kaup á helstu
verðmætunum úr þrotabúi WOW air. Hún er
staðráðin í að endurreisa fyrirtækið, þótt enn
hafi ekki verið gengið frá greiðslu fyrir verð-
mætin og hún hyggst kalla að borðinu þaul-
reynda flugrekstrarmenn frá Bandaríkjunum.
Sjálf segist hún hafa haft aðkomu að nokkrum
flugfélögum, m.a. Air Djibuti í austurhluta
Afríku.
Í viðtali í ViðskiptaMogganum í dag útlistar
Ballarin með hvaða hætti hún sér framtíð hins
endurreista flugfélags fyrir sér og ljóst er að
hún hefur skoðanir á smærri og stærri málum
er varða félagið og aðbúnað þess, m.a. á Kefla-
víkurflugvelli.
Hún segir að félagið hyggist notast við vélar
frá Airbus, enda búi mikil þekking hjá starfs-
fólki hins fallna félags á slíkum vélakosti. Þá
herma heimildir ViðskiptaMoggans að meðal
þess sem fylgi með í kaupunum sé varahluta-
lager sem tengist Airbus-vélum sérstaklega.
Í fyrstu hyggst Ballarin beina þremur flug-
vélum á áfangastaði félagsins. Fyrst og síðast
horfi þau til þeirra áfangastaða sem áður voru
í leiðakerfi WOW en einnig sé horft á staði
eins og Washington Dulles-flugvöllinn þar
sem fyrirtæki hennar, USAerospace, hefur
bækistöðvar sínar.
En áætlanir félagsins ganga lengra og inn-
an 24 mánaða er stefnan sett á að WOW air
verði með 10 til 12 vélar í rekstri. Það er um
helmingi smærri floti en WOW air hafði í flota
sínum þegar mest lét á árinu 2018. Ballarin
segir að nú þegar sé búið að tryggja 85 millj-
ónir dollara til rekstrarins eða um 10,5 millj-
arða króna og að það fjármagn eigi að bakka
upp reksturinn fyrstu tvö árin. „Ef þörf verð-
ur á þá getur sú tala orðið allt að 100 milljónir
dollara, eða 12,5 milljarðar króna. Fyrstu 6-10
mánuðina gerum við ráð fyrir 25 milljóna dala
framlagi til félagsins, eða rúmum þremur
milljörðum króna. Það er bara eitt sem við
viljum tryggja: að það skorti ekki fé. Það er
mjög mikilvægt. Það að vera með sjóð upp á
85 milljónir dala, vera íhaldssöm í fjármálum
og að hafa vel herta sultaról, þá ættum við að
geta forðast augljós vanda-
mál.“
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Gangi áætlanir Michele Ballarin og
meðfjárfesta hennar eftir mun endur-
reist WOW air hafa tíu til tólf vélar í
sinni þjónustu innan 24 mánaða.
Morgunblaðið/Hari
Enn er stefnt að því að endurreisa WOW sem féll með brauki og bramli 28. mars síðastliðinn.
8-11
EUR/ISK
24.1.‘19 23.7.‘19
145
140
135
130
125
135,95
137,05
Úrvalsvísitalan
2.100
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
27.12.‘18 25.6.‘19
1.611,03
2.071,23
Stjórn Miklatorgs leggur til við
hlutahafafund að félagið greiði hlut-
höfum sínum 500 milljónir króna í
arð vegna síðasta rekstrarárs sem
stóð frá 1. september 2017 til 31.
ágúst 2018. Er það samsvarandi
arðgreiðsla og samþykkt var í fyrra.
Nú nemur arðgreiðslan nær öllum
hagnaði rekstrarársins sem nam
528 milljónum króna. Fyrra rekstr-
arár var mun arðbærara en þá nam
hagnaður félagsins 982 milljónum
króna. Miklatorg hf. er í eigu Eign-
arhaldsfélagsins Hofs ehf. Það félag
er í jafnri eigu Fara ehf. og Dexter
Fjárfestingar ehf. Fyrrnefnda fé-
lagið er í eigu Jóns Pálmasonar en
síðarnefnda félagið er í eigu Sig-
urðar Gísla Pálmasonar, bróður
hans. Rekstrartekjur Miklatorgs
námu á síðasta ári 11,4 milljörðum
króna og jukust um ríflega 1,1 millj-
arð króna. Rekstrargjöld hækkuðu
að sama skapi og námu 10,7 millj-
örðum, samanborið við 9,1 milljarð
króna á fyrra rekstrarári. Miklatorg
greiddi 337,3 milljónir til IKEA á
liðnu ári og hækkuðu gjöldin um 30
milljónir milli ára. Kostnaðarverð
seldra vara nam 6,3 milljörðum og
hækkaði um rúma 1,2 milljarða milli
ára. Laun og launatengd gjöld juk-
ust um 3,8% og námu 2,5 millj-
örðum. Á sama tíma fjölgaði stöðu-
gildum um 24 og voru þau 341 í lok
tímabilsins. Jafngildir það 7,6%
fjölgun milli ára. Eignir Miklatorgs
í lok ágúst síðastliðins námu 2,6
milljörðum króna og jukust um 407
milljónir milli ára. Skuldir jukust
einnig talsvert og námu rúmum
tveimur milljörðum í lok tímabilsins,
samanborið við ríflega 1,6 milljarða
tólf mánuðum fyrr. Eiginfjárhlutfall
félagsins er 21,8%.
IKEA hagnast um hálfan milljarð
Morgunblaðið/Golli
Rekstur IKEA gekk vel á liðnu rekst-
rarári þótt hagnaður hafi minnkað.
Miklatorg hf. sem á og rek-
ur IKEA á Íslandi hagnaðist
um 528 milljónir kr. á síð-
asta rekstrarári. Hagnaður-
inn dróst saman um 46%.
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is
Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta