Morgunblaðið - 24.07.2019, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019FRÉTTIR
V
E
R
T
Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og
steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum.
- því að sumt virkar betur saman
Stundum
þarf tvo til
Mesta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
HAGA
-1,85%
42,4
HEIMA
+5,08%
1,24
S&P 500 NASDAQ
-0,04%
8.204,121
-0,13%
2.991,1
+0,85%
7.556,86
FTSE 100 NIKKEI 225
24.1.‘19 24.1.‘1923.7.‘19
1.700
80
1.822,1
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
63,16
+2,73%
21.620,88
61,09
40
2.100
23.7.‘19
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
1.890,5
Fjárfestingartímabili framtaks-
sjóðsins Icelandic Tourism Fund
(ITF) er lokið og mun sjóðurinn því
ekki taka þátt í fleiri nýjum verk-
efnum í íslenskri ferðaþjónustu.
Áherslan næstu
misseri verður á
að þróa áfram
þau félög sem eru
í eigu sjóðsins og
einnig styttist í
að hugað verði að
sölu einhverra
eigna. Þetta segir
Helgi Júlíusson,
framkvæmda-
stjóri ITF, í samtali við Viðskipta-
Moggann.
ITF var upphaflega settur á lagg-
irnar fyrir um sex árum að frum-
kvæði Icelandair Group. Markmið
sjóðsins hefur verið að fjárfesta í
arðbærum verkefnum sem stuðla að
uppbyggingu í íslenskri ferðaþjón-
ustu. Þá hefur áhersla verið lögð á
ný heilsársverkefni sem fjölga eiga
afþreyingarmöguleikum fyrir ferða-
menn auk þess að stuðla að betri
nýtingu á innviðum ferðaþjónust-
unnar yfir vetrartímann.
Að sögn Helga hefur vel tekist til
en sjóðurinn býr nú að fjölbreyttu og
verðmætu eignasafni. „Frá upphafi
hefur markmiðið verið að fjárfesta í
afþreyingartengdri ferðaþjónustu
þar sem við einbeitum okkur að
verkefnum með ákveðna sérstöðu.
Við höfum ekki viljað fara í beina
samkeppni við þá sem fyrir voru á
markaðnum og hefur sú stefna
reynst okkur farsæl,“ segir Helgi
Fall Wow virðist engu skipta
Undanfarin misseri hafa verið
fluttar fréttir af slæmri stöðu fjölda
ferðaþjónustufyrirtækja eftir fall
WOW air. Spurður hvort rekstur
fyrirtækja sem falla undir hatt ITF
hafi reynst erfiður frá falli flug-
félagsins kveður Helgi svo ekki vera.
„Raunin hefur orðið sú, hvað okk-
ar félög varðar, að áhrifin af falli
WOW air hafa verið mun minni en
við þorðum að vona. Í einhverjum
tilvikum erum við að sjá lítilsháttar
samdrátt, en þar hefur okkur tekist
að bregðast við á kostnaðarhliðinni
með hagræðingu. Í öðrum tilvikum
erum við aftur á móti að sjá þó-
nokkra aukningu sem í einhverjum
tilvikum hleypur á tugum prósenta,“
segir Helgi sem kveðst þó taka
auknu framboði í flugi til og frá land-
inu fagnandi. „Okkur líður ágætlega
með stöðuna, en auðvitað myndum
við fagna auknu framboði flugferða.
Framtíð íslenskrar ferðaþjónustu er
björt og horfurnar góðar þó að það
sé einhver samdráttur í komu ferða-
manna í ár. Fram undan er tímabil
þar sem gera má ráð fyrir eðlilegum
vexti í takt við það sem við erum að
sjá í öðrum löndum,“ segir Helgi.
Taki upp þráðinn í haust
Nú fyrir skömmu bárust fréttir af
því að ekkert yrði af sameiningu
Arctic Adventures og nokkurra fé-
laga í eigu ITF, þar á meðal Into the
Glacier. „Samruninn var gerður með
fyrirvara um nokkur atriði, þar á
meðal samþykki Samkeppniseft-
irlitsins. Þegar samþykki lá fyrir
höfðu orðið verulegar breytingar í
rekstrarumhverfinu. Mikil óvissa
var um hvaða áhrif þessar breyt-
ingar myndu hafa á afkomu beggja
félaga. Því varð að samkomulagi
milli aðila að leggja áform um sam-
einingu á hilluna að sinni. Það er
hins vegar ekkert útilokað að við
tökum upp þráðinn í þessu máli í
haust, en við munum að sjálfsögðu
einnig skoða aðra möguleika sem
kunna að vera í stöðunni,“ segir
Helgi.
ITF dregur verulega úr
umsvifum á næstu árum
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Framtakssjóðurinn Ice-
landic Tourism Fund verður
lagður niður eigi síðar en
árið 2025. Eignasala er
fram undan hjá sjóðnum.
Ísgöngin í Langjökli hafa verið afar vinsæll viðkomustaður ferðamanna
síðustu ár, en um 50-55 þúsund gestir koma við í göngunum ár hvert.
Helgi
Júlíusson
FJÁRMÁL
Nýjungin „Fjármálin mín“ í banka-
appi Arion banka er komin í loftið
þar sem notendur geta greint út-
gjöld sín og innborganir með ein-
földum hætti. Arion banki innleiðir
þessa lausn í samstarfi við Meniga.
„Þarna eru færslurnar flokkaðar á
tímalínu og þær eru flokkaðar fyrir
þig. Þetta veitir fólki betri yfirsýn
yfir fjármálin. Ef færslan flokkast
ekki rétt, t.d. ef þú ætlar að kaupa
skyndibita á N1 en ekki bensín þá
geturðu flokkað færsluna sjálfur,“
segir Iða Brá Benediktsdóttir, fram-
kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs.
Í appinu er meðal annars er hægt að
sjá meðalútgjöld á dag og meðalút-
gjöld á mánuði og yfirlit yfir heildar-
útgjöld á hverju ári.
Að sögn Iðu er markmiðið að ein-
staklingar fái heildstæða yfirsýn yfir
heimilisbókhaldið og að þessi mögu-
leiki stuðli að auknu fjármálalæsi.
„Notendur geta einnig borið sig
saman við aðra. T.d. útgjöld varð-
andi það hversu miklu maður eyðir í
mat,“ segir Iða Brá en lausn Arion
banka er endurgjaldslaus.
Á meðal annarra nýjunga í Arion
banka-appinu er samstarf bankans
við tryggingafélagið Vörð um mögu-
leikinn á að geta keypt tryggingar í
appinu. Verður það í fyrsta skipti
sem Arion banki býður upp á vörur
frá þriðja aðila. Í ágúst munu not-
endur geta fengið tilboð í bíla- og
heimilistryggingar og gengið frá
kaupum á tryggingum á skömmum
tíma. „Með þessu getum við einnig
boðið fólki þær tryggingar sem við
teljum að gæti hentað því,“ segir Iða
en tryggingaráðgjöfin er m.a. aðlög-
uð hverjum og einum viðskiptavini
Arion banka.
Ýmsar nýjungar í
Arion banka-appinu
Morgunblaðið/Eggert
Arion banka-appið mun í ágúst
bjóða upp á kaup á tryggingum.
Ný verðtryggð lán heimilanna að
frádregnum upp- og umfram-
greiðslum, með láni í veði í íbúð,
námu tæpum 4 milljörðum í júní og
eru þau um 959 milljónum krónum
minni en í júní í fyrra. Á fyrstu sex
mánuðum ársins 2019 námu ný verð-
tryggð lán 16,2 milljörðum króna. Í
samanburði við árið í fyrra sést að
fyrir fyrstu sex mánuðina námu ný
verðtryggð lán um 29,7 milljörðum
króna. Því dragast ný verðtryggð út-
lán saman um 13,5 milljarða króna.
Ný óverðtryggð útlán heimilanna
með láni með veði í íbúð námu 4,7
milljörðum króna í júní og eru þau
um milljarði minni en í júní í fyrra.
Þetta kemur fram í tölum Seðla-
bankans um bankakerfið. Sé litið til
fyrstu sex mánaða ársins 2019 kem-
ur í ljós að heildarupphæð nýrra
óverðtryggðra lána er um 43,2 millj-
arðar króna. Á fyrstu sex mánuðum
ársins 2018 námu þau 29,5 millj-
örðum króna. Því aukast ný óverð-
tryggð útlán heimilanna um 13,65
milljarða króna. peturh@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fleiri taka óverðtryggð lán í dag.
Hrun í
verðtryggð-
um lánum