Morgunblaðið - 24.07.2019, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019VIÐTAL
súkkulaðiframleiðandann Omnom.
Hún telur að þær vörur og miklu
fleiri eigi góða möguleika á Banda-
ríkjamarkaði og þá með þátttöku fyr-
irtækja sem hún sjálf tengist með
einum eða öðrum hætti þar í landi.
Hún segir að mikill frumkvöðlaandi
búi í Íslendingum. Hún hreifst af
WOW air þegar hún flaug fyrst til
landsins. „Flugvélarnar voru í ótrú-
lega spennandi fjólubláum lit, einum
af mínum uppáhaldslitum. Strax um
borð gáfu flugliðarnir manni for-
smekkinn að þeirri upplifun sem
maður gat vænst þegar á staðinn
væri komið. Maður fékk umsvifalaust
á tilfinninguna í vélinni að Ísland
væri ævintýralegur staður. Flug-
ferðin var einstök og ólík öllu öðru
sem ég hafði upplifað í flugi og hef ég
nú flogið með flestum flugfélögum
heims í gegnum tíðina.“
Það var íslenskur kunningi Ball-
arin hér á landi sem upphaflega vakti
athygli hennar á íslenska flugbrans-
anum. „Þetta var á síðasta ári og ég
áttaði mig á því að það væru áskor-
anir í gangi í heimi WOW air. Félagið
stæði andspænis rekstrarerfiðleikum
eins og mörg önnur flugfélög gerðu á
sama tíma. Flugfélög sem höfðu vaxið
hratt en ekki náð að ráða við hina
miklu velgengni og vöxt. Slíkt getur
haft kæfandi áhrif. Þetta eru góð
vandamál en þau geta orðið of stór til
að við þau verði ráðið.“
Kom daginn eftir fall WOW air
Ballarin skýrir blaðamanni frá
upplifun sinni þegar hún kom hingað
til lands daginn eftir fall WOW. Þá
segist hún hafa séð með eigin augum
þau neikvæðu áhrif sem gjaldþrotið
hafði á samfélagið. „Ég útskýrði síðar
fyrir stjórnendum USAerospace og
flugmálayfirvöldum á Washington
Dulles-flugvelli, þar sem við erum
með skrifstofur, að það væri erfitt
fyrir okkur, í þúsund sinnum stærra
samfélagi, að skilja hvað rekstr-
arstöðvun eins flugfélags getur snert
marga. Slíkt snertir jafnvel minnstu
börnin í fámennum íslenskum sjáv-
arþorpum sem aldrei hafa heyrt
hljóðið í þotuhreyfli hvað þá meira.
Ég hef unnið í fjármálageiranum í
áratugi og skil því vel hin miklu fjár-
hagslegu áhrif sem rekstrarstöðvun
flugfélags getur haft á heil samfélög.
Börnin í sjávarþorpinu horfa nú fram
á verri lífskjör af því að íslenska
krónan hefur allt í einu fallið að verð-
gildi um allt að 30%. Þessi áhrif koma
strax fram í verði á nauðsynjum, á
bensíni, brauði og öðru sem fjöl-
skyldur þurfa á að halda í sínu dag-
lega amstri. Þetta eru gífurleg áhrif
og allir spyrja sig: hvað gerist næst?
Hvað verður um okkur? Allir hrifust
af WOW og hugmyndafræðinni í
rekstri félagsins. Mér fannst þegar á
hólminn var komið að WOW-sagan
Fáir hefðu líklega getað gert sér í
hugarlund að farþegi í hópi stranda-
glópa á flugvellinum í Baltimore í
Bandaríkjunum þegar flugfélagið
WOW air hætti starfsemi 28. mars
síðastliðinn ætti eftir birtast öllum að
óvörum í íslenskum fjölmiðlum tæp-
um fjórum mánuðum síðar sem
væntanlegur nýr eigandi félagsins.
Athafnakonan og erindrekinn Mic-
hele Ballarin og félag hennar, USAe-
rospace Associates, hefur undirritað
samning um kaup á öllum eignum
WOW air úr þrotabúi hins fallna fé-
lags. Hyggst Ballarin endurreisa fé-
lagið eins fljótt og auðið er.
Hinn 29. mars, eða daginn eftir fall
flugfélagsins, var Ballarin komin til
Íslands til að hefjast handa við ætl-
unarverk sitt og fyrir síðustu helgi
átti hún fund með Isavia og Sam-
göngustofu til að kynna fyrir þeim
hugmyndir sínar.
Eftir hlýlegt handaband og kveðj-
ur í anddyri lúxushótelsins smekk-
lega, Sand hótels við Laugaveg, sett-
ust blaðamaður og Ballarin afsíðis til
að ræða saman um fortíð og framtíð,
en þó aðallega framtíð sem Ballarin
segir að verði björt fyrir Íslendinga.
Liður í því er að hefja WOW (eða
WOW 2 eins og við köllum félagið
okkar á milli í samtalinu) aftur til
flugs, og til vegs og virðingar, eftir
nokkurra mánaða pásu, eins og hún
kýs að líta á það. Mikilvægt er að
koma aftur á streymi fólks og varn-
ings á milli landa að hennar eigin
sögn.
„Takk fyrir að hitta mig og ræða
þetta málefni sem er jafn mikilvægt
fyrir mig og það er fyrir ykkur,“ seg-
ir Ballarin og brosir sínu góðlega
brosi. Blaðamaður þakkar henni á
móti og biður hana vinsamlegast að
segja sér aðeins undan og ofan af um-
sjálfa sig.
Viðskiptafélagi benti á landið
Hver eru tengsl þessarar 64 ára
gömlu konu við Ísland og Íslendinga?
„Ég heyrði af Íslandi í gegnum
góða vini mína og viðskiptafélaga hér
á Íslandi sem kynntu mér menningu
ykkar og ótrúlega spennandi við-
skiptatækifærum sem hér eru. Ég
hef margoft flogið yfir Ísland með
viðkomu í Keflavík, en kom svo upp-
haflega gagngert með WOW air frá
Washington til að kynna mér landið
nánar. Eftir að hafa eytt góðum tíma
hér hef ég fengið betri skilning á gildi
staðsetningar landsins fyrir flug-
samgöngur og einnig skil ég enn bet-
ur en áður gildi landsins sem ferða-
mannastaðar og staðar þar sem hægt
er að stofna til viðskipta í samstarfi
við heimamenn.“
Ballarin nefnir dæmi um tvö ís-
lensk vörumerki sem hún hefur
mikla trú á og hyggst fjárfesta í.
Húðvörurnar Sóley Organics og
þyrfti að fá að enda vel. Ég hef því,
allt síðan ég sat föst á Baltimore-
flugvelli, verið að leita að réttu „end-
urreisnarsögunni“, og rétta rekstr-
arlíkaninu. En WOW mun nú rísa
upp eins og fuglinn Fönix eins fljótt
og hægt er. Ég vil geta sagt við fólk:
Þetta var aðeins stutt hlé. Þetta eru
ekki varanleg áhrif. Þetta voru ekki
mistök. Þetta var hægri beygja.“
Ballarin segir að hún hafi strax
fengið að borðinu reynda aðila úr
bandarískum flugheimi, aðila sem
farsællega hafa rekið stór flugfélög í
Bandaríkjum um áraraðir og vita út á
hvað flugrekstur gengur, hvort sem
það tengist fjármálum, tækni, öryggi
eða öðru. „Ég vil að þetta verði al-
vöruflugrekstur með þekkingu og
starfsháttum eins og best gerist í
Bandaríkjunum. Ég mun færa kúrek-
ana að borðinu með víkingunum,“
segir Ballarin og brosir. „Ég vil fanga
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Nafn athafnakonunnar Michele Ballarin var fáum
kunnugt hér á landi þegar það birtist skyndilega
í fjölmiðlum í síðustu viku í tengslum við kaup sterkefn-
aðra bandarískra aðila á öllum eignum WOW air úr
þrotabúi félagsins. Nú er það á allra vörum.
Í einkaviðtali við ViðskiptaMoggann greinir Ballarin
frá fyrirætlunum sínum varðandi endurreisn flugfélagsins
og hugmyndum fyrir framþróun íslensks samfélags
og viðskiptalífs gangi kaupin endanlega eftir.
Þjóðríki á ekki að vera
þessa ótrúlega snjöllu WOW-
upplifun, sem Skúli Mogensen skap-
aði. Hann hafði rétt fyrir sér með
WO-vörumerkið. Það hefði ekki náð
jafn mikilli athygli um allan heim, ef
hann hefði ekki einmitt haft rétt fyrir
sér. Það verður að viðurkennast.“
Hefur reynslu af flugrekstri
Hefurðu hitt Skúla?
„Já, ég hef hitt hann.“
Hefurðu áður rekið flugfélag sem
flýgur í áætlunarflugi með farþega?
„Já, ég á hluti í nokkrum flug-
félögum, sem mörg hver eru allt að 50
ára gömul. Sem dæmi má nefna Air
Djibuti í Austur-Afríku.“
USAerospace, félagið sem er að
kaupa WOW, er að sögn Ballarin í
eigu hennar og viðskiptafélaga henn-
ar, tvíburanna Jeff og Joe Roberts-
son frá Forth Worth í Texas. Nokkrir
aðrir vellauðugir aðilar eru í eig-
endahópnum, auk stofnanafjárfesta.
Ballarin kýs að nefna ekki fleiri á
nafn en hana sjálfa og tvíburana. „Við
erum með bækistöðvar á Washington
Dulles-alþjóðaflugvellinum eins og
fyrr sagði, og við sinnum bæði far-
þegaflugi en einnig viðhaldi og við-
gerðum á flugvélum,“ segir Ballarin,
spurð nánar út í starfsemi USAeros-
pace. „Jeff og Joe hafa unnið í flug-
iðnaði síðan þeir hættu í flughernum
á sínum tíma og eru umsvifamiklir í
viðhaldi og viðgerðum farþega-
flugvéla, sem og í almennum flug-
málum. Þeir eru einnig með eitt af
leiðandi fyrirtækjum í Bandaríkj-
unum í flugvélainnréttingum. Spón-
deildin (e. Veneer) þeirra, sem er rek-
in af Jason Greybow, er með
einkaleyfi á spóni fyrir flugvélar. Þeir
hafa verið leiðandi í þeim geira frá
árinu 1992, og spónlögðu meðal ann-
ars Air Force 1, flugvél Bandaríkja-