Morgunblaðið - 24.07.2019, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019 13SJÁVARÚTVEGUR
Afurðaverð á markaði
23. júlí 2019, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 346,44
Þorskur, slægður 393,64
Ýsa, óslægð 210,69
Ýsa, slægð 126,82
Ufsi, óslægður 101,68
Ufsi, slægður 132,43
Gullkarfi 351,44
Langa, óslægð 219,67
Langa, slægð 240,94
Keila, óslægð 93,46
Keila, slægð 72,22
Steinbítur, óslægður 149,93
Steinbítur, slægður 219,88
Skötuselur, slægður 540,61
Grálúða, slægð 547,21
Skarkoli, óslægður 353,00
Skarkoli, slægður 390,07
Þykkvalúra, slægð 411,73
Sandkoli, óslægður 26,00
Bleikja, flök 1.603,25
Gellur 1.391,00
Grásleppa, óslægð 15,00
Hlýri, óslægður 214,25
Hlýri, slægður 221,09
Lúða, slægð 1.076,42
Lýr, óslægður 40,00
Lýr, slægður 22,00
Lýsa, óslægð 47,00
Makríll 11,00
Skata, slægð 21,00
Undirmálsýsa, óslægð 60,05
Undirmálsþorskur, óslægður 187,02
Undirmálsþorskur, slægður 200,00
Ný Vestmannaey VE kom til hafnar
í síðustu viku, við mikinn fögnuð
heimamanna í Vestmannaeyjum, en
skipið er í eigu útgerðarfyrirtækis-
ins Bergs-Hugsins ehf.
Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri
Vestmannaeyjar, segir í samtali við
200 mílur að tími hafi verið kominn á
endurnýjun skipsins, en horft hafi
verið til þess að bæta vinnuaðstöð-
una um borð til að auka gæði fisks-
ins, meðal annars með stækkun
vinnsludekks. Hann segir Íslendinga
jafnan vera of seina að endurnýja
skip.
„Það sem mestu máli skiptir er að
bæta meðferð á aflanum og auka
gæðin. Með nýja skipinu og bún-
aðinum um borð eigum við að fá
fram betri kælingu og aðgerðar-
aðstaðan er betri,“ segir Birgir.
Hann segir að skipið sé breiðara
og hærra en gamla Vestmannaeyin
og verði því stöðugra. „Það sem er
nýtt í þessu skipi er að við verðum
með tvær vélar og tvær skrúfur, sem
á að þýða minni olíueyðslu. Það eru
sífellt meiri kröfur gerðar út frá um-
hverfissjónarmiðum um að minnka
olíueyðsluna.“
Tvær skrúfur nýmæli
Aðspurður segir Birgir að það séu
nýmæli hér á landi að togskip sé með
tvær skrúfur. „Það er eitthvað um
þetta í Noregi en þetta er nýtt hér á
landi.“
Hann segir að það að vera með
tvær vélar þýði að báturinn verði
miklu rásfastari og haldi stefnu mik-
ið betur. „Svo virðist sem stöðug-
leikinn sé meiri og hann leggst
minna undan.“
Birgir fékk skipið afhent í Noregi,
þar sem það var smíðað í skipa-
smíðastöð Vard í Aukra, og sigldi því
sjálfur hingað til lands. Þar á undan
tók hann þátt í prófunum á skipinu
ytra. „Fyrst prófa þeir hjá skipa-
smíðastöðinni bátinn og allan búnað.
Svo er tekinn prufutúr með trygg-
ingafélögum. Þá eru gerðar veiðar-
færaprufur og við prófum til dæmis
spilbúnaðinn. Við eigum samt eftir
að prófa hann betur hér heima. Það
á alltaf eftir að stilla fullt af hlutum í
nýjum skipum. Svo á eftir að setja
millidekk, en það verður gert í
slippnum á Akureyri. Ennfremur á
eftir að klára einhver tæknimál og
setja krapakerfi, sem verður gert
hér í Vestmannaeyjum.“
Ferill aflans þegar hann kemur
um borð er á þá leið að hann fer fyrst
í móttöku og er svo blóðgaður og
innyflin fjarlægð, nema lifur er tekin
til hliðar og hrogn þegar það á við.
Þá fer fiskurinn í gegnum þvotta-
kerfi og svo í kælikör þar sem hann
er kældur niður í tvær gráður. Eftir
það er hann settur í geymslu í ísk-
rapa í lestinni.
„Þetta er miklu fullkomnara kerfi
en við höfum verið með. Svo er fisk-
urinn líka stærðar- og tegundaflokk-
aður á millidekkinu. Þessi aðgerðar-
aðstaða verður stóra byltingin hjá
okkur.“
Þurfa ekki að beygja sig
Vinnuaðstaða starfsmanna mun
einnig breytast til muna. „Við erum
að leitast við að losna við að beygja
okkur. Á gömlu skipunum þurftum
við að henda fiski upp í kör en þarna
losnum við við það.“
Birgir segir að mannskapurinn fái
einnig stærra rými í skipinu, eins og
stærri borðsal og slíkt.
„Annars er mikilll búnaður í svona
skipi, allur af bestu gerð. Sum tæki
hefur maður aldrei séð áður og þarf
að kynna sér vel og lesa leiðbeining-
arbæklinga vandlega yfir.“
Vestmannaey veiðir aðallega bol-
fisk. „Við erum með mjög stóran
ýsu- og þorskkvóta. Einnig veiðum
við mikið af ufsa, karfa og flatfisk-
tegundum. Við sendum svo aflann
bæði á erlendan markað og í vinnslu
á landi.“
Hann segir að veiðitúrarnir séu
tveir til fimm dagar og tólf skipverj-
ar um borð í hvert sinn.
„Við gerum út frá Vestmanna-
eyjum og löndum um 70% af aflanum
þar, en á haustin löndum við svolítið
fyrir austan, á Seyðisfirði, Eskifirði
og Norðfirði, eftir því sem hentar.“
Eins og Birgir bendir á er Vest-
mannaeyin sú fyrsta af sjö eins skip-
um sem væntanleg eru til landsins á
næstu mánuðum. Í september fær
Bergur-Huginn til að mynda glæ-
nýja Bergey, en fyrirtækið gerir að
jafnaði út tvö skip.
Búið er að selja gömlu Bergeyna
en óvíst er að hans sögn hvað verður
um gömlu Vestmannaeyna. Sex vik-
ur tekur að klára nýju Vestmanna-
eyna og á Birgir von á að fara í
fyrsta veiðitúrinn á skipinu í sept-
ember næstkomandi. Kveðst hann
hlakka til þess að takast á við nýja
áskorun.
Gæði fisksins munu aukast
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ný Vestmannaey VE
bættist í flota íslenskra
togskipa í síðustu viku
og segir skipstjórinn að
gæði fisksins muni aukast
með tilkomu skipsins.
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Lengd nýju Vestmannaeyjarinnar er 28,9 metrar, breiddin er 12 metrar og þyngdin 183,4 nettótonn.
Birgir Þór Sverrisson segir að mannskapurinn fái stærra rými í nýja skipinu.
Þarftu skjóta afgreiðslu á ein-
blöðungum, bæklingum, vegg-
spjöldum, skýrslum, eða nafn-
spjöldum? Þá gæti stafræna
leiðin hentað þér. Sendu okkur
línu og fáðu verðtilboð.
STAFRÆNT
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐ
ÞÉR AÐ
KOSTNAÐAR-
LAUSU
Ertu að byggja eða þarf að
endurnýja gamla glerið?
Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem
reynist vel við íslenskar aðstæður.
Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða
á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS
Fasteignir