Morgunblaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019
Árni Blandon
arnibl@gmail.com
Nýja uppfærslan á Tannhäuser
Richards Wagners í hátíðarleik-
húsi hans í Bayreuth var frumsýnd
25. júlí síðastliðinn. Angela Merkel
kanslari lét sig að sjálfsögðu ekki
vanta frekar en fyrri daginn þegar
þessi rúmlega mánaðarlanga hátíð
fer af stað í lok júlí. Stjórnandi há-
tíðarinnar, Katharina Wagner,
barnabarnabarn tónskáldsins, er
þekkt fyrir að velja leikstjóra að
hátíðinni sem eru óhræddir við að
gera tilraunir með verk Wagners,
enda var Wagner sjálfur mikill
frumkvöðull á óperu- og tónlistar-
sviðinu. Faðir Katharinu, Wolf-
gang Wagner, var Íslandsvinur
sem átti stærstan þátt í því að
Íslendingum leyfðist að setja á
svið stytta útgáfu af hinu mikla
fjögurra kvölda músíkdrama
Wagners Niflungahringnum.
Fórnarlamb núvitundar
Leikskrárnar í Festspielhaus í
Bayreuth eru afar vandaðar, hver
leikskrá á þremur tungumálum:
þýsku, ensku og frönsku. Í leik-
skránni sem fylgir Tannhäuser-
uppfærslunni í ár er vitnað í bók
Carls Dahlhaus frá árinu 1979 sem
fjallar um verk Wagners. Þar
bendir Dahlhaus á að Tannhäuser
sé „fangi augnabliksins“ sem
sveiflist á milli öfga: nautnalíf með
sjálfri Venus annars vegar og göf-
ugt tilfinningalíf hins vegar með
hinni elskulegu Elísabetu frá
Brabant. Leikstjóri sýningarinnar,
Þjóðverjinn Tobias Kratzer, kýs að
gera sem minnst úr þessum grein-
armun kvennanna, velur einhverja
holdrýrustu söngkonu sem sögur
fara af til að syngja fyrir Venus,
sú heitir Elena Zhidkova, rússnesk
kona með mikla rödd og skemmti-
lega leikhæfileika, ekki síst fyrir
gamanleik. En Elísabet, sungin og
leikin af hinni norsku þokkagyðju
Lise Davidsen, er hins vegar ákaf-
lega Venusarlega vaxin og jafnvel
rúmlega það, rödd hennar er svo
sterk og sviðsþokkinn svo mikill að
það er nokkuð víst að Wagner
hefði viljað hafa hana í öllum sín-
um óperuuppfærslum. Og aum-
ingja Tannhäuser sveiflast stjórn-
laust á milli þessara tveggja
kvenna í núvitund hvorrar um sig.
Það er tvennt sem er sérstakt
við uppfærslu Tóbíasar á Tann-
häuser og söngvastríðinu: mikil
notkun á myndböndum og einnig
er tveimur persónum bætt við
verkið og fer alls ekki illa á því.
Auk þess má segja að einni per-
sónu í viðbót sé að hluta til bætt
við verkið, það er að segja Venusi
er troðið inni í hluta verksins þar
sem Wagner ætlaðist ekki til að
hún kæmi fram. En þetta er svo
skemmtilega gert í uppfærslunni
þar sem söngvastríðið fer fram í
öðrum þætti að það fyrirgefst.
Allar tilraunir með gömul verk og
breytingar á þeim standa og falla
með því hvort leikstjórinn kann
sitt fag eða ekki og Tóbías er góð-
ur leikstjóri. Það er hinn sviss-
nesk-franski myndameistari Man-
uel Braun sem hefur haft veg og
vanda af afar listrænni gerð mynd-
bandsverkanna sem prýða sýning-
una. Blanda kvikmyndalistar og
sviðslista er mjög í deiglunni þessa
dagana og mér er til efs að betur
hafi tekist til í þeim tilraunum en í
þetta sinn.
Forleikur og sviðsleikur
Undanfarinn áratug hafa gömul
óperutónskáld þurft að láta það yf-
ir sig ganga, án þess að geta snúið
sér við í gröfinni, að forleikir
þeirra væru ekki virtir sem sjálf-
stæð listaverk; leikstjórar og mis-
vitrir svokallaðir dramatúrgar hafa
troðið aðallega vondum sjónrænum
hugmyndum sínum yfir forleikina
þannig að tónlistin lendir „óvart“ í
bakgrunni: augu áhorfandans
gleypa myndir og deyfa næmi
eyrnanna. Dramatúrg uppfærsl-
unnar á Tannhäuser í Festspiel-
haus þetta árið, og næstu fjögur
árin, er Konrad Kuhn og er hann
einn sá gáfaðasti sem ég hef orðið
var við í leikhúsi hingað til. Hann
leyfir forleiknum að Tannhäuser
að lifa í friði fyrstu fimm mín-
úturnar, en þá fer tjaldið frá og
enn er mikið eftir af hinum fræga
forleik verksins. Bak við fortjaldið
er hálfgagnsætt tjald sem fyllir út
í sviðsopið og þar birtist hin feg-
ursta vídeómynd af landslagi sem
rís upp úr sviðsgólfinu,
Wartburg-kastalinn kemur í ljós
og við sjáum síðan bíl framúr-
stefnulistakonunnar Marinu
Abramovic sem hún ferðaðist í
með ástmanni sínum Ulay þegar
þau frömdu alls konar listir í lífi
sínu og alls konar líf í list sinni ár-
ið 1980. Síðan skildi leiðir þeirra.
Vitnað í Blikktrommuna
Í leikskrá sýningarinnar er vitn-
að í skáldverk Günters Grass
Blikktrommuna frá árinu 1959.
Það er dvergurinn Manni Lauden-
bach sem túlkar Óskar litla með
blikktrommuna í sýningunni, fær
að vísu hvorki að segja neitt né
syngja neitt. Þannig kallast hann á
við svart-hvítu myndböndin í upp-
færslunni sem vísa til látbragðs-
leiks í gömlu þöglu kvikmynd-
unum. Tveir vídeótökumenn fylgja
söngvurum baksviðs svo við sjáum
stundum í öðrum þætti verksins
bæði það sem er að gerast á svið-
inu, á innrömmuðum hluta þess, og
líka það sem á sér stað baksviðs
sem er sýnt í svarthvítu á kvik-
myndatjaldi á efri hluta sviðs-
opsins. Önnur látbragðspersóna í
uppfærslunni er klæðskiptingurinn
Le Gateau Chocolat sem leikur
sjálfan sig og það er unun að horfa
á hversu fallega og örugglega
hann gengur um á mjög svo há-
hæluðum skóm. Annan svipaðan sá
ég meðal áhorfenda: risastóran
mann í karlmannsklæðum á 15
sentimetra háum svörtum pinna-
hælum.
Í fyrsta þætti uppfærslunnar
mynda Óskar, Venus og Chocolat,
ásamt trúðnum Tannhäuser, gengi
sem tekur upp á því í öðrum þætti
þegar fylgst er með þremur þeirra
á vídeóupptöku í rauntíma brjótast
inn til okkar í Festspielhaus og
fylgjast með Tannhäuser þar sem
hann tekur þátt í söngkeppninni í
Wartborgarkastala. Þar setur
Tannhäuser allt á annan endann
með því að hallmæla ekki Venusi
og nautnalífi hennar. Þegar komið
er út úr leikhúsinu í hið klukku-
tíma langa hlé blasir þá ekki langi
stiginn við sem þau skötuhjúin
notuðu til að brjótast inn í óperu-
húsið. Áhorfendur héldu að þetta
væri bara myndbandsgabb en bet-
ur sjá augu en vídeó.
Þegar Wagner reyndi að slá í
gegn sem óperuhöfundur í París,
sem honum tókst ekki í lifanda lífi,
var hann hvattur til að bæta við
ballett í verkið. Frakkar voru van-
ir því að hafa ballett í óperum í
öðrum þætti, en Wagner fékkst
ekki til að hafa ballettinn þar held-
ur hafði hann í fyrsta þætti hjá
Venusi. Þetta olli miklum úlfaþyt
svo ekki reyndist unnt að halda
sýningum áfram. Það er því hin
gamla róttæka útgáfa verksins
sem fylgt er í Bayreuth þessa dag-
ana en ekki hin ballettvæna Par-
ísarútgáfa. 1849 tók Wagner þátt í
byltingarstarfi sem gerði hann út-
lægan frá Þýskalandi í 11 ár. Þetta
sama ár birti hann byltingargrein
sem talsvert er vitnað í í leikskrá
uppfærslunnar og í sýningunni
sjálfri, meðal annars: Frelsi í vilja,
frelsi í framkvæmd, frelsi til að
njóta.
Pílagrímakórinn
Sú var tíð á Íslandi að ekki
mátti leika útgáfu Karls Sighvats-
sonar af Pílagrímakór Wagners úr
Tannhäuser í Ríkisútvarpi Íslend-
inga. Þá var í hávegum haft hið
mesta bil milli hámenningar og
lágmenningar. Tannhäuser neyðist
til að fara í pílagrímsför til páfans
í Rómaborg vegna þátttöku sinnar
í holdsins fýsnum með Venusi og
dirfsku hans við að réttlæta slíkt
lágstéttamakk í söngvakeppninni í
öðrum þætti verksins. Og hvað
gerir kaþólski páfinn: hann teflir á
tæpasta vað og neitar að veita
Tannhäuser syndaaflausn. Sem er
slæmt fyrir Tannhäuser, enda
bregst hann reiður við og syngur
langt eintal í anda Shakespeares;
enn verra er þetta fyrir Elísabetu
sem bregður á það ráð að deyja til
að bjarga sálartetri Tannhäusers.
Enginn dó þegar Karl Sighvats-
son fékk ekki að spila útgáfu sína
af Pílagrímakórnum á landsins
gufu sem var einokunarrás á
Íslandi þeirra daga (rás tvö fædd-
ist miklu síðar). Sú íhaldsforneskja
sem ríkti hér á landi fyrir nokkr-
um áratugum var af þeirri tegund
sem verið er að mótmæla með
þeim fjölbreytileika í mannlífinu
sem settur er á svið í Bayreuth
þessar vikurnar: trúður, dvergur,
klæðskiptingur (Chocolat),
Venusarhæðir o.s.frv., allt á þetta
rétt á sér í lífinu.
Enn er ég þó að velta fyrir mér
hvort það hafi verið nauðsynlegt
að Elísabet, áður en hún hélt til
himna, svæfi hjá Wolfram, sem
elskaði hana svo innilega á and-
legan hátt. Hvað hefði Wagner
sagt? Það má líka spyrja sig hvers
vegna Wagner lét Tannhäuser
deyja í lok verksins; alltaf ein-
hverjar spurningar sem engin
endanleg svör fást við.
Tannhäuser og söngvastríðið
Tilraunir leikstjórans
Tobiasar Kratzer með
Tannhäuser á Wagner-
hátíðinni í Bayreuth
þetta sumarið heppnast
vel að mati greinarhöf-
undar. Seinni greinin
um valdar sýningar
hátíðarinnar birtist á
laugardaginn kemur.
Ljósmyndir/Bayreuther Festspiele, Enrico Nawrath
Le Gateau Chocolat Nígeríski
klæðskiptingurinn og kabarett-
stjarnan leikur sjálfan sig.
Trúðurinn Tannhäuser Ameríski hetjutenórinn Stephen Gould, Elena Zhid-
kova í hlutverki sínu sem Venus og Manni Laudenbach sem túlkar Óskar.
Fallegt myndband Fyllir út í stórt sviðsopið í Festspielhaus. Farartækið vísar í bíl Marinu Abramovic.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla