Morgunblaðið - 14.08.2019, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019FRÉTTIR
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000
www.itr.is
Mesta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
EIK
-1,85%
8,48
ARION
+3,16%
78,4
S&P 500 NASDAQ
-0,19%
8.024,13
-0,18%
2.932,71
-0,48%
7.250,9
FTSE 100 NIKKEI 225
14.2.‘19 14.2.‘1913.8.‘19
1.700
80
1.785,5
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
61,44
-0,30%
20.455,44
64,57
40
2.100
13.8.‘19
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
1.849,85
Seðlabankinn greinir frá því í
nýrri skýrslu um fjárfestingarleið
og gjaldeyrisútboð bankans á ár-
unum 2012-2015 að 2,4% af því
fjármagni sem kom til landsins á
grundvelli leiðarinnar hafi stafað
frá aflandsfélögum. Bankinn við-
urkennir þó óbeint að hlutfallið
geti hæglega hafa verið mun
hærra, enda hafði bankinn ekki yf-
irsýn yfir uppruna þess fjármagns
sem kom inn í gegnum gjaldeyr-
isútboðin. Í skýrslunni segir að
Seðlabankinn hafi ekki haft úrræði
til að meina aflandsfélögum þátt-
töku í fjárfestingarleiðinni. „Hefði
félögum frá slíkum svæðum verið
meinað að taka þátt í útboðunum
hefði þeim verið í lófa lagið að
flytja fjármuni sína til OECD-ríkis
fyrir útboðið og taka þannig þátt.
Við það hefði slóð fjármunanna
mögulega rofnað og skattrann-
sóknarstjóri ekki fengið upplýs-
ingar frá Seðlabankanum um til-
vist þessara aflandsfélaga þó
vissulega hefðu upplýsingar um
endanlega eigendur fjármuna legið
fyrir í báðum tilvikum.“ Segir í
skýrslu bankans að þetta kunni að
skýra þá staðreynd að tiltölulega
lágt hlutfall fjárfestingar kom frá
skattaskjólum gegnum gjaldeyris-
útboðin. „Flestir þeirra sem höfðu
eitthvað að fela í skattaskjólum
hafa sennilega ekki viljað sýna á
spilin.“ Af orðum skýrsluhöfunda
má því ráða að bankinn gangi út
frá því að þar sem aflandsfélögum
hafi ekki verið meinuð þátttaka þá
hafi enginn eigandi slíks félags
kosið að flytja fjármagnið fyrst á
reikninga innan annarra OECD-
ríkja áður en kom að þátttöku í út-
boðum bankans.Með gjald-
eyrisútboðunum sem Seðlabankinn
stóð fyrir á þriggja ára tímabili
tókst að lækka stöðu svokallaðra
aflandskróna á markaðnum um
u.þ.b. 175 milljarða króna og fór
staða þeirra á þeim tíma úr jafn-
gildi fjórðungs landsframleiðsl-
unnar í u.þ.b. 13%.
Heildarfjárhæðin sem flutt var
inn frá lágskattasvæðum gegnum
fjárfestingarleiðina nam 12,5 millj-
ónum evra, jafnvirði tæplega 3
milljarða króna á þeim tíma. Af
þessum tilboðum komu átta þeirra
frá Bresku Jómfrúareyjum, öll frá
lögaðilum, en sex þeirra frá öðrum
lágskattasvæðum, þ.e. Liechten-
stein, Mónakó og Panama. Af þeim
voru fjögur frá einstaklingum og
tvö frá lögaðilum. Bankinn sund-
urliðar ekki frekar um staðsetn-
ingu hvers og eins félags sem til-
greind eru í ríkjunum þremur.
Milljarðar frá aflandsfélög-
um gegnum Seðlabankann
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Um 2,4% af heildarfjárfest-
ingu sem fór gegnum fjár-
festingarleið Seðlabanka
Íslands komu frá aflands-
félögum á lágskattasvæð-
um.
Morgunblaðið/Eggert
Seðlabankinn stóð fyrir gjaldeyrisútboðum í tengslum við fjárfestingarleiðina á árunum 2012 til 2015.
LYFJASALA
Hagnaður Icepharma nam ríflega
360 milljónum króna á árinu 2018 og
jókst um ríflega 100 milljónir króna
milli ára. Þetta kemur fram í árs-
reikningi samstæðunnar fyrir árið
2018.
Rekstrartekjur Icepharma námu
ríflega ellefu milljörðum króna í
fyrra, sem er tveggja milljarða
króna aukning frá árinu 2017.
Eigið fé félagsins eykst milli ára
og er nú rétt tæpar 600 milljónir
króna. Greiddar voru 250 milljónir
króna í arð til hluthafa og er eigin-
fjárhlutfall samstæðunnar nú um
30%. Samtals hefur fyrirtækið greitt
út 540 milljónir króna í arð til hlut-
hafa síðustu tvö ár.
Arðsemi eigin fjár á árinu 2018
var um 67%.
Fram kemur í ársreikningnum að
búast megi við sambærilegum
rekstri á yfirstandandi ári.
Morgunblaðið/Sverrir
Rekstur Icepharma hefur gengið
gríðarlega vel síðustu ár.
Hagnaður
eykst hjá
Icepharma
FLUGMÁL
„Tjón okkar vegna falls Wow air
mun felast í þeim kostnaði sem
leggja þarf út fyrir til að skala fyrir-
tæki af þessari stærð niður,“ segir
Sigþór Kristinn Skúlason, forstjóri
Airport Associates, um núverandi
rekstrarár. Að því er fram kemur í
ársreikningi fyrir árið 2018 skilaði
fyrirtækið nær 160 milljónum króna
í hagnað. Það er umtalsvert meira
en árið áður þegar hagnaðurinn
nam ríflega 113 milljónum króna.
Að sögn Sigþórs mun fall Wow
air fyrr á þessu ári ekki hafa áhrif
fyrr en í ársreikningi þessa árs. Þar
muni þó minnst um skuld flug-
félagsins við Airport Associates.
„Það kemur ekki fram í þessum árs-
reikningi hversu mikið Wow
skuldaði okkur. Okkar tjón felst þó
ekki í því hversu mikið þeir skuld-
uðu okkur heldur hversu mikið við
þurfum að keyra starfsemina niður.
Tekjur okkar munu dragast all-
verulega saman, eða um 50%,“ segir
Sigþór.
Spurður um hversu háa fjárhæð
flugfélagið skuldaði fyrirtækinu
segir Sigþór hana hafa verið ríflega
100 milljónir króna. Þá sé miskiln-
ingur sem fram hafi komið í fjöl-
miðlumað Airport Associates hafi
lagt Wow air fé í skuldabréfaútboð-
inu margumrædda. „Móðurfélagið
REA tók þátt í úboðinu. Það mun
ekki koma fram í bókum Airport
Associates,“ segir Sigþór.
Rekstrartekjur fyrirtækisins á
síðasta ári voru ríflega sex millj-
arðar króna. Ráðgera má að þær
verði um þrír milljarðar á þessu ári.
Stærstur hluti kostnaðar Airport
Associates er vegna launa og
tengdra gjalda og því verður að telj-
ast líklegt að núverandi rekstrarár
geti reynst þungt.
Tjónið vegna falls Wow
kemur fram á þessu ári
Morgunblaðið/Hari
Airport Associates lagði Wow air
ekki til fé í skuldabréfaútboðinu.