Morgunblaðið - 14.08.2019, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019FRÉTTIR
Ert þú ísambandi?
R
áð
gj
öf
ve
gn
a
hr
að
hl
eð
sl
us
tö
ðv
a
fy
rir
fy
rir
tæ
ki
og
sv
ei
ta
rfé
lö
g
V E R K F RÆÐ I S T O F A
„Ég heillaðist fyrst og fremst af því hversu
lítið unnin og náttúruleg hráefnin eru hér á
landi. Ég var til að mynda alveg agndofa yfir
því hversu ferskur íslenski fiskurinn er,“ seg-
ir Holly T. Kristinsson, stofnandi frum-
kvöðlafyrirtækisins Responsible Foods, sem
mun á næstu misserum hefja starfsemi og
framleiðslu á naslinu Næra Icelandic Snacks.
Holly hlaut í júnímánuði styrk Tækni-
þróunarsjóðs og leitar nú frekara fjármagns
til að geta hafið framleiðslu af fullum krafti.
Að sögn Holly er markmið fyrirtækisins að
bjóða fólki hollari valkosti við val á nasli.
„Hollt nasl er oftar en ekki óspennandi og
bragðlítið, eða jafnvel stundum alls ekki hollt
þótt fólki sé talin trú um það,“ segir Holly.
„Naslið mun fanga allt það frábæra sem Ís-
land hefur upp á að bjóða. Naslið á í raun að
höfða til sem flestra og allra þeirra sem
hingað til hafa hugsanlega ekki getað fengið
sér ýmsar tegundir af nasli sökum ofnæmis,
óþols eða annarra sambærilegra kvilla,“ segir
Holly og bætir við að Responsible Foods
vinni einungis með náttúruleg hráefni auk
þess sem engin rotvarnarefni verði að finna í
vörunum. Þá muni fyrirtækið m.a. notast við
íslenskan fisk og mjólkurvörur. „Við munum
vinna hráefnin eins lítið og mögulegt er. Þess
utan verðum við með talsvert úrval bragðteg-
unda þannig að allir ættu að geta fundið sér
eitthvað við sitt hæfi,“ segir Holly.
Hefur gríðarlega reynslu
Sjálf hefur Holly talsverða reynslu úr mat-
vælageiranum, en hún hefur m.a. starfað hjá
stórum framleiðendum á borð við SunOpta
og Glanbia. Þess utan er hún með doktors-
próf í matvælafræði og hefur nær alla tíð
haft brennandi áhuga á öllu sem viðkemur
matvöru. Holly flutti til Íslands fyrir að
verða fjórum árum þegar hún hóf störf hjá
Matís.
Að hennar sögn má segja að áhugi á mat-
vælamarkaðnum hafi kviknað strax í æsku.
„Ég ólst upp í Alaska á náttúrulegu fæði og í
umhverfi ekki ólíku því sem hér þekkist. Þar
kynntist maður því fyrst hversu góðar vörur
er hægt að framleiða úr hráefni í umhverf-
inu,“ segir Holly, sem síðar fluttist til
Flórídaríkis þar sem hún gekk mennta-
veginn.
„Það var mikið sjokk og gríðarleg breyting
frá því umhverfi sem ég hafði vanist í
Alaska. Í Suðurríkjunum er afar erfitt að
nálgast nasl og fæði sem er eins náttúrulegt
og í Alaska. Það má segja að ég hafi þá áttað
mig á tækifærunum sem felast í þessum
geira,“ segir Holly.
Vilja sækja aukið fjármagn
Nú stendur yfir vinna með fyrirtækinu
Spakur Finance, en þörf er á auknu fjár-
magni inn í starfsemina til að hægt sé að ná
fram stærðarhagkvæmni og góðri dreifingu
varanna. „Hér heima er ég með þrjá mjög
reynda sérfræðinga með mikla þekkingu á
frumkvöðlastarfsemi, matvælatækni,
vöruþróun og smásölu. Í N-Ameríku er ég
með tvo afar reynda samstarfsaðila með öfl-
ug viðskiptatengsl og mikla þekkingu á fram-
leiðslu matvæla og markfæðis, smásölu og
dreifingu nasls.“
Spurð um framtíðaráform segir Holly að
markmiðið sé að ná slíkri stærð að stærri
framleiðendur hefðu áhuga á að kaupa fyrir-
tækið eða fjárfesta í því. Þá ætlar hún sér að
stýra stöðugu vörumerki sem vex og dafnar
með tímanum.
„Fimm ára planið snýr að því að eiga vöru-
merki sem er stórt bæði hér heima og í N-
Ameríku. Ég ætla að vera eitt af þessum
frumkvöðlafyrirtækjum sem verða svo öflug
að stór fyrirtæki eins og t.d. Kellogg’s vilja
kaupa það,“ segir Holly, sem telur að gríð-
arleg tækifæri felist á Bandaríkjamarkaði.
„Ég byrja á íslenska markaðnum en í fram-
tíðinni munum við horfa til N-Ameríku í
meiri mæli. Þar er stærsti markaðurinn, þar
sem vöxtur hollustunasls er um 30% árlega
og nemur heildarvelta nasls þar nú um 64
milljörðum Bandaríkjadala,“ segir Holly.
Vill fanga bragð íslenskrar náttúru
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Frumkvöðullinn Holly T. Kristinsson,
stofnandi fyrirtækisins Responsible
Foods, ráðgerir að hefja framleiðslu
heilsunasls úr íslensku hráefni á
næstu misserum. Hún leitar nú fjár-
festa til að hægt sé að ná fram
góðri dreifingu og stærðarhag-
kvæmni við framleiðslu varanna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Holly hefur haft brennandi áhuga á matvælamarkaðnum í mörg ár. Hún stofnaði nýverið fyrirtæki sem framleiða mun vörur úr íslensku hráefni.
Eggert Benedikt Guðmundsson hefur verið ráðinn for-
stöðumaður Samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs
um loftslagsmál og grænar lausnir. Í tilkynningu segir að
Eggert búi yfir víðtækri reynslu úr atvinnulífinu sem stjórn-
andi auk þess að hafa áralanga reynslu af stjórnarstörfum
fyrir fjölda fyrirtækja og félaga hérlendis og erlendis. Á ferli
sínum hefur hann unnið við stóriðju, sjávarútveg, hátækni, verslun, menn-
ingarstarfsemi og fleira, að því er greint er frá í tilkynningunni. Um 10 ára
skeið stýrði Eggert tveimur af stærstu fyrirtækjum landsins, N1 hf. (2012-
2015) og HB Granda hf. (2005-2012).
Eggert ráðinn forstöðumaður samstarfsvettvangs
Skúli Valberg Ólafsson, núverandi formaður stjórnar Kol-
ibri, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri félagsins og tek-
ur hann við starfinu af Ólafi Erni Nielsen hinn 1. september
næstkomandi. Í tilkynningu segir að Skúli búi yfir mikilli
reynslu af störfum í upplýsingatækni, fjármálum og ný-
sköpun. Hefur hann meðal annars starfað sem stjórnandi
hjá EJS, Oz.Com, Straumi-Burðarási, Raiffeisen Bank í Austurríki, Ber-
inger Finance og Festu – miðstöð um samfélagsábyrgð. Þá hefur Skúli
verið ráðgjafi fyrirtækja í breytingarferlum, fjármögnun og nýsköpun.
Skúli Valberg ráðinn framkvæmdastjóri Kolibri
Stjórn Skeljungs hf. hefur ráðið Árna Pétur Jónsson sem
forstjóra félagsins. Í tilkynningu frá félaginu segir að Árni
Pétur hafi lokið cand. oecon. frá Háskóla Íslands árið 1991
og hafi víðtæka reynslu af rekstri fyrirtækja, stórra sem
smárra. Hefur hann unnið með fyrirtækjum sem eru í al-
þjóðaviðskiptum, s.s. Vodafone, Debenhams, Zara, Top
Shop og Iceland. Þá var Árni forstjóri Teymis hf. þegar það var skráð í
Kauphöll Íslands auk þess sem hann starfaði sem framkvæmdastjóri hjá
Olís og Högum. Hin síðari ár hefur Árni Pétur verið forstjóri Tíu Ellefu (10-
11)/Iceland Verslun (Iceland) og Basko.
Árni Pétur Jónsson ráðinn forstjóri Skeljungs hf.