Morgunblaðið - 14.08.2019, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019VIÐTAL
Lyfjaverð á Íslandi er ákvarðað af lyfja-
greiðslunefnd, sem aftur horfir til Norður-
landanna við sínar ákvarðanir, enda sé lyfjaverð
hér á landi svipað og á Norðurlöndunum, eins og
fyrr sagði. Sigríður segir að tækifæri sé til að
gera enn betur og lækka lyfjakostnað aftur um
helming en til þess þurfi aðkomu bæði lyfsala og
ríkis.
„Samkvæmt skýrslu Hagfræðistofnunar er
rétt ríflega helmingur allra lyfja sem seldur er
hér á landi út úr apótekum ódýrasta lyfið í sínum
flokki. Til samanburðar er í sumum löndum inn-
an OECD ódýrasta lyfið selt í þremur af hverjum
fjórum skiptum. Hér er því augljóslega hægt að
gera mun betur og auka hlut ódýrustu lyfjanna,
samheitalyfja sem eru með sama virka efni og
frumlyfið. Við hjá Lyfju ætlum að byrja nú í
haust á herferð til að hjálpa neytendum að velja
alltaf ódýrasta lyfið í hverjum flokki, til að
tryggja að þeir fái alltaf lægsta mögulega
verðið.“
Sigríður segir að allt starfsfólk Lyfju, lyfja-
fræðingar, afgreiðslufólk, lyfjatæknar og aðrir,
muni leggjast á árarnar í þessu verkefni.
Hvað þátt ríkisins varðar í því að lækka lyfja-
verð í landinu vill Sigríður að stjórnvöld endur-
skoði greiðsluþátttöku einstaklinga í lyfja-
kaupum. Einnig bendir hún á að lyf beri hámarks
virðisaukaskatt, sem henni finnst skrýtið, eins og
hún orðar það. „Ef borin er saman greiðsluþátt-
taka Íslendinga við greiðsluþátttöku að meðaltali
innan OECD-landanna erum við að borga helm-
ingi meira í lyfjum en almennt gerist innan þeirra
landa. Hér greiða menn 60% kostnaðarins en hið
opinbera 40%, en þessu er akkúrat öfugt farið að
jafnaði innan OECD.“
Sigríður segir, eins og bent sé á í skýrslunni, að
aukin greiðsluþátttaka almennings valdi því að
fólk fresti því frekar að leysa út nauðsynleg lyf.
„Með því að laga þetta greiðsluþátttökuhlutfall
væri hægt að auka líkurnar á að allir nýttu þau
lyf sem þeir þurfa á að halda.“
Kostar 2-3 milljarða að auka þátttöku
Útgjöld einkaaðila og hins opinbera til heil-
brigðismála hér á landi eru að sögn Sigríðar 240
milljarðar króna á ári. Hún bendir á að það kosti
einungis 2-3 milljarða króna að laga greiðsluþátt-
tökuhlutfallið.
Hvað næstu ár varðar í þeim geira sem hún
starfar í segir Sigríður að viðfangsefnin verði án
efa spennandi. „Það er spennandi að skoða
hvernig við munum líta á heilbrigðismál í fram-
tíðinni. Ég vil kalla þetta nútímalegt heilbrigði.
Við sjáum að fólki eldra en 50 ára mun fjölga um
50% á næstu 50 árum, og heilbrigðisþjónusta er
að færa sig úr því að einblína bara á lækningu og
veikindi yfir á fyrirbyggjandi hluti. Í raun er heil-
brigði í dag bara lífsstíll, sem þarf að hugsa um
heildrænt. Svefninn, næringin og hreyfingin
skipta öll máli. Ég held að það séu mikil tækifæri
fólgin í að færa kastljósið af því sem við gerum
þegar við höfum veikst, yfir í það sem við gerum
áður en við veikjumst. Við erum að fara að lifa
lengur en forfeður okkar, og viljum vera hress og
njóta lífsins eins og kostur er allan þann tíma.
Þarna held ég að hlutverk lyfjaverslana og heil-
brigðiskerfisins eigi eftir að breytast, með aukn-
um áherslum á fyrirbyggjandi og heildræna
þætti.“
Sigríður Margrét starfaði eins og áður sagði
um árabil í upplýsingatæknigeiranum, hjá Já.
Tæknin er henni því ofarlega í huga þegar kemur
að því að hugsa um heilsugæslu framtíðarinnar.
„Ég sé apótek og heilsugæslulækna framtíð-
arinnar fyrir mér í vasanum hjá fólki, í appi í
snjallsímanum. Tæknin til að breyta mjög miklu
„Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt. Ég
byrjaði í febrúar og hef farið hringinn í kringum
landið með stjórnendum Lyfju og heimsótt öll
apótekin í keðjunni, hitt starfsfólkið og tekið
vinnufundi á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykja-
vík. Á þessum fundum höfum við kortlagt veg-
ferð viðskiptavinanna til að finna tækifærin, og
fram hefur komið ótrúlega mikið af spennandi
hugmyndum sem við erum byrjuð að þróa. Við
erum sammála um að þróa apótekin áfram með
hliðsjón af því að heilbrigði er orðið lífsstíll, og
leggja áfram áherslu á lágt verð um allt land.
Einnig viljum við áfram bætt aðgengi að vörum
okkar og þjónustu,“ segir Sigríður Margrét
spurð að því hvernig fyrstu mánuðirnir í starfinu
hafi verið. Strax eftir að hún hóf störf var skipu-
lag fyrirtækisins endurskoðað og endurspeglar
það nú að sögn Sigríðar þær fjórar stoðir sem
rekstur Lyfju hvílir á; vörur, þjónustu, markaðs-
mál og tækni og gögn.
Var áður hjá Já og Skjá einum
Sigríður Margrét kom til Lyfju frá Já, þar sem
hún hafði haldið um stjórnartauma og stýrt upp-
byggingu frá árinu 2005. Áður starfaði hún m.a.
hjá Skjánum, sem nú er Sjónvarp Símans. Blaða-
maður og Sigríður ræða nú nýja skýrslu Hag-
fræðistofnunar Háskóla Íslands um lyfsölu á Ís-
landi þar sem fram kemur meðal annars að
lyfjaverð til neytenda úr apótekum hafi frá árinu
2003 lækkað um helming að raunvirði og lyfja-
verð á Íslandi sé á pari við hin Norðurlandaríkin.
„Ég er ný í þessari atvinnugrein og finnst því
mjög áhugavert að fara yfir þessa skýrslu, þar
sem farið er yfir rekstrarumhverfi lyfjaverslana
og þróunina sem hefur verið að eiga sér stað und-
anfarna áratugi. Það eru nokkur atriði í henni
sem vert er að vekja athygli á og tala um. Eitt af
því sem kom mér á óvart, reyndar ekki bara þeg-
ar ég las skýrsluna, heldur líka þegar ég byrjaði
að kynna mér atvinnugreinina, er að lyfjaverð
hefur að raunvirði lækkað um helming til neyt-
enda út úr apótekum frá árinu 2003.“
Sigríður segir að það fyrsta sem hún gerði eftir
að hún hóf störf hjá Lyfju hafi verið að grand-
skoða útgjöld ríkisins til heilbrigðismála. „Þar sá
ég að lyfjakostnaður var sá útgjaldaliður í heil-
brigðisþjónustu sem hafði vaxið hvað minnst af
öllum útgjaldaliðum í heilbrigðisþjónustunni á
undanförnum árum. Við vitum að þjóðin er að
eldast og kostnaður við heilbrigðiskerfið eykst
því stöðugt, en útgjöld til lyfjakaupa hafa ekki
verið að aukast í takti við annað. Það stemmir við
niðurstöðu skýrslunnar þar sem við sjáum að
lyfjaverð til neytenda hefur verið að lækka. Þetta
þykir mér líka mjög áhugavert í ljósi þess að
þjónusta lyfjaverslana á Íslandi er jafnvel betri
en gerist og gengur á Norðurlöndunum.“
Sigríður segir að gríðarlega margar og miklar
áskoranir séu fram undan í tengslum við íslenska
heilbrigðisþjónustu, og margt sé hægt að læra af
samanburði við nágrannalöndin. „Við sjáum að
við erum með fleiri apótek á hvern íbúa en Norð-
urlandaþjóðirnar, fleiri lyfjafræðinga starfandi á
hvern íbúa, og allir Íslendingar í þéttbýli hafa að-
gengi að apóteki í innan við tíu mínútna aksturs-
fjarlægð. Þarna hefur átt sér stað mjög áhuga-
verð þróun, og mikið þrekvirki verið unnið í
uppbyggingu á síðustu árum og áratugum.“
Lyfja lék lykilhlutverk
Sigríður segir að Lyfja hafi spilað lykilhlutverk
í þessari byltingu. „Lyfja var stofnuð árið 1996
strax og sérleyfi til lyfjasölu voru afnumin, en áð-
ur en það gerðist höfðu apótekarar á hverju
svæði sérleyfi og enginn gat keppt við þá á þeirra
svæði.“
Þrekvirki verið unnið í upp
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Sigríður Margrét Oddsdóttir tók við stöðu framkvæmdastjóra lyfja-
verslanakeðjunnar Lyfju fyrr á þessu ári. Hún segist í samtali við
ViðskiptaMoggann sjá ýmis tækifæri fram undan á sviði lyfjasölu og „nú-
tímalegs heilbrigðis“ eins og hún kallar það, en þar undir flokkast persónu-
miðuð heilbrigðisþjónusta með hjálp tækninnar og betra aðgengis.
Í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um fyrirkomulag lyfsölu á Íslandi, sem vísað er
til í samtalinu við Sigríði Margréti, er fjallað um afkomu lyfsala í gegnum tíðina. Segir þar
meðal annars að lyfsalar hafi skilað góðum hagnaði undanfarin ár, en ekki verði séð að fé
þeirra ávaxtist betur en gengur og gerist í smásöluverslun hér á landi. Þá segir í skýrslunni að
afkoma lyfsala hafi verið mun betri á sérleyfistímanum, samkvæmt þeim gögnum og mæli-
kvörðum sem stuðst er við í skýrslunni. „En rétt er að skoða arðsemistölur með það í huga að
óefnislegar eignir eru rúmur þriðjungur heildareigna í smásölu lyfja á Íslandi. Meðal óefnis-
legra eigna er viðskiptavild, eða yfirverð á starfsemi sem hefur verið keypt. Viðskiptavild end-
urspeglar vonir eigenda um afkomu sem er betri en búast mætti við með því að skoða hús-
næði, vélar og tæki og önnur efnisleg verðmæti í fyrirtækjunum. Vísbendingar eru um að
skýra megi viðskiptavildina að hluta með því að útgjöld hafi sparast í kjölfar sameiningar
lyfjaverslana,“ segir í skýrslunni. Þá segir að lyfjaheildsalar hafi hagnast vel undanfarin ár. Fé
hafi ávaxtast betur hjá þeim en hjá öðrum heildsölum hér á landi. Afkoma lyfjadreifingar-
fyrirtækja er síðan sögð ágæt, en hún hafi versnað nokkuð síðustu árin. „Erfitt er að komast
að annarri niðurstöðu en að neytendur hafi hagnast á afnámi sérleyfa á smásölu lyfja á sínum
tíma. Apótekum fjölgaði á höfuðborgarsvæðinu og þjónustan batnaði þar með. Lyfsalar tóku
að keppa um neytendur, þó að ekki verði séð að verðsamkeppni sé hörð. Lyfsalar hagnast
minna en áður og ekki munar miklu á lyfjaverði hér og í grannlöndunum. Reglur um heildsölu
og dreifingu breyttust minna og þar eru áhrifin ekki eins augljós,“ segir í skýrslu Hagfræði-
stofnunar.
Neytendur högnuðust á afnámi sérleyfa