Morgunblaðið - 14.08.2019, Page 8

Morgunblaðið - 14.08.2019, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019VIÐTAL Lyfjaverð á Íslandi er ákvarðað af lyfja- greiðslunefnd, sem aftur horfir til Norður- landanna við sínar ákvarðanir, enda sé lyfjaverð hér á landi svipað og á Norðurlöndunum, eins og fyrr sagði. Sigríður segir að tækifæri sé til að gera enn betur og lækka lyfjakostnað aftur um helming en til þess þurfi aðkomu bæði lyfsala og ríkis. „Samkvæmt skýrslu Hagfræðistofnunar er rétt ríflega helmingur allra lyfja sem seldur er hér á landi út úr apótekum ódýrasta lyfið í sínum flokki. Til samanburðar er í sumum löndum inn- an OECD ódýrasta lyfið selt í þremur af hverjum fjórum skiptum. Hér er því augljóslega hægt að gera mun betur og auka hlut ódýrustu lyfjanna, samheitalyfja sem eru með sama virka efni og frumlyfið. Við hjá Lyfju ætlum að byrja nú í haust á herferð til að hjálpa neytendum að velja alltaf ódýrasta lyfið í hverjum flokki, til að tryggja að þeir fái alltaf lægsta mögulega verðið.“ Sigríður segir að allt starfsfólk Lyfju, lyfja- fræðingar, afgreiðslufólk, lyfjatæknar og aðrir, muni leggjast á árarnar í þessu verkefni. Hvað þátt ríkisins varðar í því að lækka lyfja- verð í landinu vill Sigríður að stjórnvöld endur- skoði greiðsluþátttöku einstaklinga í lyfja- kaupum. Einnig bendir hún á að lyf beri hámarks virðisaukaskatt, sem henni finnst skrýtið, eins og hún orðar það. „Ef borin er saman greiðsluþátt- taka Íslendinga við greiðsluþátttöku að meðaltali innan OECD-landanna erum við að borga helm- ingi meira í lyfjum en almennt gerist innan þeirra landa. Hér greiða menn 60% kostnaðarins en hið opinbera 40%, en þessu er akkúrat öfugt farið að jafnaði innan OECD.“ Sigríður segir, eins og bent sé á í skýrslunni, að aukin greiðsluþátttaka almennings valdi því að fólk fresti því frekar að leysa út nauðsynleg lyf. „Með því að laga þetta greiðsluþátttökuhlutfall væri hægt að auka líkurnar á að allir nýttu þau lyf sem þeir þurfa á að halda.“ Kostar 2-3 milljarða að auka þátttöku Útgjöld einkaaðila og hins opinbera til heil- brigðismála hér á landi eru að sögn Sigríðar 240 milljarðar króna á ári. Hún bendir á að það kosti einungis 2-3 milljarða króna að laga greiðsluþátt- tökuhlutfallið. Hvað næstu ár varðar í þeim geira sem hún starfar í segir Sigríður að viðfangsefnin verði án efa spennandi. „Það er spennandi að skoða hvernig við munum líta á heilbrigðismál í fram- tíðinni. Ég vil kalla þetta nútímalegt heilbrigði. Við sjáum að fólki eldra en 50 ára mun fjölga um 50% á næstu 50 árum, og heilbrigðisþjónusta er að færa sig úr því að einblína bara á lækningu og veikindi yfir á fyrirbyggjandi hluti. Í raun er heil- brigði í dag bara lífsstíll, sem þarf að hugsa um heildrænt. Svefninn, næringin og hreyfingin skipta öll máli. Ég held að það séu mikil tækifæri fólgin í að færa kastljósið af því sem við gerum þegar við höfum veikst, yfir í það sem við gerum áður en við veikjumst. Við erum að fara að lifa lengur en forfeður okkar, og viljum vera hress og njóta lífsins eins og kostur er allan þann tíma. Þarna held ég að hlutverk lyfjaverslana og heil- brigðiskerfisins eigi eftir að breytast, með aukn- um áherslum á fyrirbyggjandi og heildræna þætti.“ Sigríður Margrét starfaði eins og áður sagði um árabil í upplýsingatæknigeiranum, hjá Já. Tæknin er henni því ofarlega í huga þegar kemur að því að hugsa um heilsugæslu framtíðarinnar. „Ég sé apótek og heilsugæslulækna framtíð- arinnar fyrir mér í vasanum hjá fólki, í appi í snjallsímanum. Tæknin til að breyta mjög miklu „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt. Ég byrjaði í febrúar og hef farið hringinn í kringum landið með stjórnendum Lyfju og heimsótt öll apótekin í keðjunni, hitt starfsfólkið og tekið vinnufundi á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykja- vík. Á þessum fundum höfum við kortlagt veg- ferð viðskiptavinanna til að finna tækifærin, og fram hefur komið ótrúlega mikið af spennandi hugmyndum sem við erum byrjuð að þróa. Við erum sammála um að þróa apótekin áfram með hliðsjón af því að heilbrigði er orðið lífsstíll, og leggja áfram áherslu á lágt verð um allt land. Einnig viljum við áfram bætt aðgengi að vörum okkar og þjónustu,“ segir Sigríður Margrét spurð að því hvernig fyrstu mánuðirnir í starfinu hafi verið. Strax eftir að hún hóf störf var skipu- lag fyrirtækisins endurskoðað og endurspeglar það nú að sögn Sigríðar þær fjórar stoðir sem rekstur Lyfju hvílir á; vörur, þjónustu, markaðs- mál og tækni og gögn. Var áður hjá Já og Skjá einum Sigríður Margrét kom til Lyfju frá Já, þar sem hún hafði haldið um stjórnartauma og stýrt upp- byggingu frá árinu 2005. Áður starfaði hún m.a. hjá Skjánum, sem nú er Sjónvarp Símans. Blaða- maður og Sigríður ræða nú nýja skýrslu Hag- fræðistofnunar Háskóla Íslands um lyfsölu á Ís- landi þar sem fram kemur meðal annars að lyfjaverð til neytenda úr apótekum hafi frá árinu 2003 lækkað um helming að raunvirði og lyfja- verð á Íslandi sé á pari við hin Norðurlandaríkin. „Ég er ný í þessari atvinnugrein og finnst því mjög áhugavert að fara yfir þessa skýrslu, þar sem farið er yfir rekstrarumhverfi lyfjaverslana og þróunina sem hefur verið að eiga sér stað und- anfarna áratugi. Það eru nokkur atriði í henni sem vert er að vekja athygli á og tala um. Eitt af því sem kom mér á óvart, reyndar ekki bara þeg- ar ég las skýrsluna, heldur líka þegar ég byrjaði að kynna mér atvinnugreinina, er að lyfjaverð hefur að raunvirði lækkað um helming til neyt- enda út úr apótekum frá árinu 2003.“ Sigríður segir að það fyrsta sem hún gerði eftir að hún hóf störf hjá Lyfju hafi verið að grand- skoða útgjöld ríkisins til heilbrigðismála. „Þar sá ég að lyfjakostnaður var sá útgjaldaliður í heil- brigðisþjónustu sem hafði vaxið hvað minnst af öllum útgjaldaliðum í heilbrigðisþjónustunni á undanförnum árum. Við vitum að þjóðin er að eldast og kostnaður við heilbrigðiskerfið eykst því stöðugt, en útgjöld til lyfjakaupa hafa ekki verið að aukast í takti við annað. Það stemmir við niðurstöðu skýrslunnar þar sem við sjáum að lyfjaverð til neytenda hefur verið að lækka. Þetta þykir mér líka mjög áhugavert í ljósi þess að þjónusta lyfjaverslana á Íslandi er jafnvel betri en gerist og gengur á Norðurlöndunum.“ Sigríður segir að gríðarlega margar og miklar áskoranir séu fram undan í tengslum við íslenska heilbrigðisþjónustu, og margt sé hægt að læra af samanburði við nágrannalöndin. „Við sjáum að við erum með fleiri apótek á hvern íbúa en Norð- urlandaþjóðirnar, fleiri lyfjafræðinga starfandi á hvern íbúa, og allir Íslendingar í þéttbýli hafa að- gengi að apóteki í innan við tíu mínútna aksturs- fjarlægð. Þarna hefur átt sér stað mjög áhuga- verð þróun, og mikið þrekvirki verið unnið í uppbyggingu á síðustu árum og áratugum.“ Lyfja lék lykilhlutverk Sigríður segir að Lyfja hafi spilað lykilhlutverk í þessari byltingu. „Lyfja var stofnuð árið 1996 strax og sérleyfi til lyfjasölu voru afnumin, en áð- ur en það gerðist höfðu apótekarar á hverju svæði sérleyfi og enginn gat keppt við þá á þeirra svæði.“ Þrekvirki verið unnið í upp Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Sigríður Margrét Oddsdóttir tók við stöðu framkvæmdastjóra lyfja- verslanakeðjunnar Lyfju fyrr á þessu ári. Hún segist í samtali við ViðskiptaMoggann sjá ýmis tækifæri fram undan á sviði lyfjasölu og „nú- tímalegs heilbrigðis“ eins og hún kallar það, en þar undir flokkast persónu- miðuð heilbrigðisþjónusta með hjálp tækninnar og betra aðgengis. Í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um fyrirkomulag lyfsölu á Íslandi, sem vísað er til í samtalinu við Sigríði Margréti, er fjallað um afkomu lyfsala í gegnum tíðina. Segir þar meðal annars að lyfsalar hafi skilað góðum hagnaði undanfarin ár, en ekki verði séð að fé þeirra ávaxtist betur en gengur og gerist í smásöluverslun hér á landi. Þá segir í skýrslunni að afkoma lyfsala hafi verið mun betri á sérleyfistímanum, samkvæmt þeim gögnum og mæli- kvörðum sem stuðst er við í skýrslunni. „En rétt er að skoða arðsemistölur með það í huga að óefnislegar eignir eru rúmur þriðjungur heildareigna í smásölu lyfja á Íslandi. Meðal óefnis- legra eigna er viðskiptavild, eða yfirverð á starfsemi sem hefur verið keypt. Viðskiptavild end- urspeglar vonir eigenda um afkomu sem er betri en búast mætti við með því að skoða hús- næði, vélar og tæki og önnur efnisleg verðmæti í fyrirtækjunum. Vísbendingar eru um að skýra megi viðskiptavildina að hluta með því að útgjöld hafi sparast í kjölfar sameiningar lyfjaverslana,“ segir í skýrslunni. Þá segir að lyfjaheildsalar hafi hagnast vel undanfarin ár. Fé hafi ávaxtast betur hjá þeim en hjá öðrum heildsölum hér á landi. Afkoma lyfjadreifingar- fyrirtækja er síðan sögð ágæt, en hún hafi versnað nokkuð síðustu árin. „Erfitt er að komast að annarri niðurstöðu en að neytendur hafi hagnast á afnámi sérleyfa á smásölu lyfja á sínum tíma. Apótekum fjölgaði á höfuðborgarsvæðinu og þjónustan batnaði þar með. Lyfsalar tóku að keppa um neytendur, þó að ekki verði séð að verðsamkeppni sé hörð. Lyfsalar hagnast minna en áður og ekki munar miklu á lyfjaverði hér og í grannlöndunum. Reglur um heildsölu og dreifingu breyttust minna og þar eru áhrifin ekki eins augljós,“ segir í skýrslu Hagfræði- stofnunar. Neytendur högnuðust á afnámi sérleyfa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.