Morgunblaðið - 14.08.2019, Síða 9

Morgunblaðið - 14.08.2019, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019 9VIÐTAL innan kerfisins er nú þegar til staðar en við þurf- um að taka skrefið til að nýta tæknina. Við hjá Lyfju erum til að mynda komin á fullt með að þróa nýjar stafrænar lausnir. Þá held ég að við- skiptafrelsi sé lykilatriði í að stuðla að breyt- ingum, vegna þess að það stuðlar að aukinni sam- keppni, eykur þjónustu og gæði til neytenda.“ Sigríður nefnir dæmi af ömmu sinni sem búi ein á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi og hafi þurft að leggja á sig langt ferðalag til að eyða svo fimm mínútum inni hjá lækni. „Þarna hefði hún ein- faldlega getað átt það samtal í gegnum fjarþjón- ustu og fengið svo lyfin send heim. Svona dæmi segja manni að við erum að sóa ótrúlega miklum tíma og flækja hlutina. Það er svo margt sem maður sér fyrir sér að eigi eftir að breytast, og skilvirkni að aukast.“ Sigríður sér fyrir sér að hluti af nútímalegu heilbrigði sé eins og fyrr sagði að gera neysluna persónumiðaðri, byggða á gögnum sem liggja fyrir um hvern og einn einstakling, bæði hvað varðar lyf og bætiefni ýmiss konar. „Innan Lyfju erum við til dæmis með framleiðslueiningu sem sér um að búa til dagskammta af lyfjum og setja í rúllur fyrir einstaklinga. Þetta kemur í veg fyrir lyfjasóun, en einnig er þarna verið að persónu- sníða lyfjaskammtinn fyrir þig. Þarna sér maður einnig tækifæri til að taka bætiefnin upp á næsta stig og sníða þau að hverjum og einum.“ Lyfja er stórt fyrirtæki á íslenskan mæli- kvarða. Veltan var rúmir níu milljarðar á síðasta ári og 350 manns starfa í samstæðunni. „Það hafa verið algjör forréttindi að koma hér inn og vinna með starfsfólkinu, sem margt hvert hefur verið hér lengi. Ég kalla þau „landsliðið í lyfjasölu“, enda rekur fyrirtækið helming allra apóteka landsins, þó að markaðshlutdeildin sé bara um þriðjungur.“ Lyfja er, eins og Sigríður útskýrir, keðja apó- teka um allt land. Lyfsala er ær og kýr fyrir- tækisins en einnig er boðin viðbótarþjónusta sem kom jafnvel Sigríði sjálfri á óvart þegar hún tók við sem framkvæmdastjóri. „Við veitum hjúkr- unarþjónustu í verslunum okkar í Lágmúla og á Smáratorgi, sem ég vissi ekki af áður en ég byrj- aði hér. Hjúkrunarfræðingarnir sinna ýmsum málum sem upp koma í daglegu amstri og tengj- ast heilsunni. Þeir skipta um sáraumbúðir, ráð- leggja um hækjur og stoðtæki og veita ráðgjöf til fólks sem glímir við langtíma sjúkdóma. Þetta skiptir máli þegar stefna okkar er að veita fram- úrskarandi ráðgjöf og þjónustu í tengslum við allt er snýr að vöruframboði okkar.“ Í þessu sér Sigríður tækifæri. „Lyfja er með svo mörg apótek um allt land. Við gætum gert meira af því að veita svona þjónustu, og með auk- inni notkun tækninnar væri hægt að veita enn meira aðgengi að svona sérfræðingum.“ Spurð hvort Lyfja gæti hugsað sér að vera með lækna á sínum snærum segir Sigríður að það verði aldrei í boði. „Hins vegar gætu þeir veitt fjarþjónustu í samstarfi við okkur. Það er ekkert sem stendur í vegi fyrir því.“ Vill nýta tíma sinn vel Nefnir Sigríður sem dæmi íslenska sprota- fyrirtækið Kara Connect, sem sérhæfir sig að veita aðgengi að sérfræðingum í gegnum fjar- þjónustu. „Þetta er rétt að byrja hér á landi en er komið mun lengra í löndunum í kringum okkur.“ Sigríður segist ávallt hafa haft mikinn áhuga á heilsutengdum málum. Það tengist m.a. áhuga hennar á að nýta tímann sinn vel. „Það að selja vörur og veita þjónustu sem lengir líf og eykur lífsgæði snýst allt um það að nýta tímann vel.“ Spurð að því hvernig hún sjái vöxt og viðgang Lyfju fyrir sér í framtíðinni segir hún að á 10 ára fresti myndist tækifæri fyrir 7-10 ný apótek í landinu, miðað við þjónustustig dagsins í dag. Hún segir að Lyfja ætli sér að stækka. „Það er í raun stefna okkar að fjölga apótekum. Staðsetn- ing skiptir okkur gríðarlega miklu máli, eins og aðra smásölu. Stefnan er að vera þar sem hent- ugast er fyrir viðskiptavininn að sækja þjón- ustuna.“ Sigríður segir mikla samkeppni ríkja á mark- aðnum. Önnur lyfjaverslanakeðja, Lyf og heilsa, sé stór á markaðnum, og hún reki einnig Apótek- arann. Þá sé fjöldi minni fyrirtækja á mark- aðnum, auk smásölurisans Haga sem keypti ný- lega Reykjavíkurapótek. „Lyfja rekur apótek undir sínu nafni, og einnig undir nafninu Apótek- ið. Við höfum tekið ákvörðun um að nota bara Lyfjunafnið, en það tekur tíma að breyta Apó- tekunum í Lyfju. Við breyttum síðast Apótekinu á Garðatorgi í Garðabæ í Lyfju en eigum hin eft- ir.“ Breytingin á Apótekum yfir í Lyfju var gerð í kjölfar sérstakrar greiningar á öllum versl- ununum í keðjunni. Einnig hafa apótekin við Laugaveg og í Hafnarstræti verið sameinuð, og apótekið í Smáralind verið stækkað og því breytt. Spurð hvernig rekstrartölur fyrirtækisins líti út í augum nýs framkvæmdastjóra segir Sig- ríður að Lyfja hafi verið mjög vel rekin um árabil og arðsemin á pari við arðsemi annarra smásölu- fyrirtækja í landinu. „Umhverfið er þó sérstakt að því leyti að það er sérstök opinber nefnd sem stýrir verðinu og heldur því í lágmarki. Það er áskorun að vinna í slíku umhverfi. Á sama tíma viljum við hafa margt háskólamenntað heilbrigð- isstarfsfólk í vinnu, og launahlutfall okkar er því hærra en í annarri smásölu. Það er því áskorun að vera með góðan rekstur en Lyfja hefur verið vel rekin og hér er gríðarlega góður grunnur að vinna með.“ Hefur uppgangur ferðaþjónustunnar haft áhrif á tekjur Lyfju? „Jú, einhver áhrif, en ekki mikil. Lyf eru meginvara okkar og þau kaupa ferðamenn gjarnan í heimalandi sínu áður en þeir fara af stað í ferðalagið. Sala til túrista hefur því ekki jafn mikil áhrif á okkur og á aðra smásölu í land- inu.“ Að lokum spyr blaðamaður Sigríði hvernig það horfi við henni sem stjórnanda að fara á milli geira eins og hún hefur gert, þ.e. úr afþreyingu og fjarskiptum yfir í upplýsingatækni og nú yfir í lyfjageirann. „Þetta snýst alltaf um tvennt; verk- in sem þú vinnur og fólkið sem þú vinnur með. Að því leytinu er það sameiginlegt með öllum þeim stjórnendastörfum sem ég hef verið í að ég hef unnið að góðum verkum með góðu fólki. Þetta eru vissulega ólíkar atvinnugreinar en þær snúast alltaf um það sama; viðskiptavininn. Að tryggja það að reksturinn sé góður og vegferð viðskiptavinarins sé sem best.“ Morgunblaðið/Eggert pbyggingu á síðustu árum „Það að selja vörur og veita þjónustu sem lengir líf og eykur lífsgæði snýst allt um það að nýta tímann vel,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir. Hagnaður af rekstri Lyfju minnkaði um 15% milli áranna 2018 og 2017. Árið 2018 nam hagnaðurinn 324 milljónum króna saman- borið við 379 milljóna hagnað 2017. Eigið fé félagsins í lok ársins nam tæpum 3,6 millj- örðum króna, en var 3,55 milljarðar í lok árs 2017. Eignir Lyfju námu tæpum 6,26 millj- örðum í lok árs 2018 en þær voru 6,31 millj- arður í lok 2017. Eiginfjárhlutfall er 57%. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi fé- lagsins. Eigandi Lyfju er SID ehf. en þrír stærstu eigendur SID eru Kaskur ehf., sem er í eigu Inga Guðjónssonar stofnanda Lyfju, sem á 15%, Þarabakki ehf., sem á 15% og er í eigu Daníels Helgasonar, og SÍA III, framtaks- sjóður á vegum Stefnis, dótturfélags Arion banka, með 12% hlut. Lífeyrissjóðir eru einnig stórir hluthafar. Hagnaður minnkaði um 15%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.