Morgunblaðið - 14.08.2019, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019SJÁVARÚTVEGUR
Miðhrauni 13 - Garðabæ - Sími 555-6444 - www.maras.is
w Togvindur
w Kapalvindur
w Netavindur
w Grandaravindur
w Aukavindur
Scantrol iSYM skekkjustjórnun
Autotroll með áherslu á trollið
Fyrir allar togvindur
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Lífeyrissjóðurinn Gildi hefur ákveð-
ið að greiða atkvæði gegn tillögu um
kaup HB Granda á sölufélögum í
eigu Útgerðarfélags Reykjavíkur á
hluthafafundi HB
Granda sem fer
fram 15. ágúst. Í
tilkynningu á vef
Gildis í gær kom
fram að sjóðurinn
telur kaupin vera
ótrúverðug og að
það verði að vera
hafið yfir vafa
þegar viðskipti
eru milli tengdra félaga. Útgerðar-
félag Reykjavíkur er stærsti hluthafi
HB Granda með 35,01% eignarhlut.
Fyrirhuguð kaup HB Granda
snúa að öllu hlutafé í sölufélögum í
Japan, Hong Kong og á meginlandi
Kína auk þjónustufélags á Íslandi.
Fram kemur á vef Gildis að umsamið
kaupverð sé 4,4 milljarðar króna og
að greitt verði með útgáfu nýrra
hlutabréfa sem samsvarar 7,3%
aukningu hlutafjár í félaginu, sem
myndi efla eignastöðu Útgerð-
arfélags Reykjavíkur.
„Vekja áleitnar spurningar“
„Þessi viðskipti HB Granda við
stærsta hluthafa félagsins eru
óheppileg að okkar mati og vekja
áleitnar spurningar. Það vekur at-
hygli okkar hversu stóran hluta í HB
Granda er lagt upp með að verja í
þessa fjárfestingu og hversu skamm-
an tíma stjórn félagsins tók sér til að
taka ákvörðun um viðskiptin,“ segir
Davíð Rúdólfsson, forstöðumaður
eignastýringar og staðgengill fram-
kvæmdastjóra Gildis, í skriflegu
svari við fyrirspurn 200 mílna.
„Við höfum verulegar efasemdir
um þörfina fyrir þessum viðskiptum
yfirhöfuð sem og hvort þetta sé þá
eina og hagkvæmasta leiðin fyrir HB
Granda að því marki. Að okkar mati
hefur stjórn HB Granda hvorki tek-
ist að sýna fram á að þessi viðskipti
séu hagfelld né nauðsynleg fyrir fé-
lagið,“ skrifar Davíð.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
ekki tekið afstöðu til kaupanna
„Það er ekki búið að taka afstöðu
ennþá, það er verið að afla upplýs-
inga og það verður ekki endanlega
fyrr en búið er að afla allra fáanlegra
upplýsinga og komið er að atkvæða-
greiðslu að þetta verður ljóst. Við
gefum ekkert út fyrir það,“ svarar
Þórhallur B. Jósepsson, almanna-
tengill Lífeyrissjóðs verzlunar-
manna, spurður um afstöðu sjóðsins
til kaupanna. Sjóðurinn á 12,53%
eignarhlut og er þriðji stærsti hlut-
hafi HB Granda. Þá herma heimildir
200 mílna að stjórn sjóðsins komi
saman á morgun og að málið sé ekki
til umfjöllunar á þeim fundi.
Lífeyrissjóður starfsmanna rík-
isins er í gegnum tvær deildir eig-
andi 15,15% eignarhluta í HB
Granda og því næst stærsti hluthafi
félagsins. Reynt var að hafa sam-
band við framkvæmdastjóra sjóðsins
og forstöðumann eignastýringar til
þess að spyrja hvort sjóðurinn hafi
tekið afstöðu til kaupanna, án árang-
urs.
Gerðu athugasemd um Ögurvík
Gildi er fjórði stærsti hluthafi með
8,51% eignarhlut og lífeyrissjóð-
urinn Birta sá fimmti stærsti með
3,92% eignarhlut í HB Granda.
Þannig eru lífeyrissjóðir eigendur að
minnsta kosti 40,11% eignarhluta fé-
lagsins.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Gildi gerir athugasemd við fjárfest-
ingar HB Granda. Í fyrra fór sjóð-
urinn fram á að fyrirtækjaráðgjöf
Kviku banka yrði fengin til þess að
meta kaup HB Granda á útgerð-
arfélaginu Ögurvík af Útgerð-
arfélagi Reykjavíkur (áður Brim).
Mat fyrirtækjaráðgjafar Kviku var
að kaupin voru hagfelld að því gefnu
að forsendur HB Granda væru raun-
hæfar.
Kaupin voru samþykkt á fram-
haldshluthafafundi HB Granda ann-
an nóvember 2018 með 95,8% at-
kvæða og umsamið kaupverð var
12,3 milljarðar króna. Samkeppnis-
eftirlitið tók kaupin til umfjöllunar
og samþykkti þau 22. nóvember
2018.
Gildi hyggst
hafna kaupum
HB Granda
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Á hluthafafundi HB Granda
verður til afgreiðslu tillaga
stjórnar um kaup á sölu-
félögum Útgerðarfélags
Reykjavíkur í Asíu. Greiða á
fyrir félagið með 7,3%
aukningu hlutafjár.
Morgunblaðið/Golli
Lífeyrissjóðir eru stórir hluthafar í HB Granda og fara með 40,11% hlut.
Afurðaverð á markaði
13. ágúst 2019, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 456,56
Þorskur, slægður 410,11
Ýsa, óslægð 381,50
Ýsa, slægð 294,26
Ufsi, óslægður 130,44
Ufsi, slægður 153,09
Gullkarfi 420,90
Blálanga, slægð 278,00
Langa, óslægð 216,00
Langa, slægð 278,02
Keila, óslægð 112,41
Steinbítur, óslægður 150,85
Steinbítur, slægður 421,30
Skötuselur, slægður 646,96
Grálúða, slægð 444,49
Skarkoli, slægður 345,70
Þykkvalúra, slægð 398,62
Langlúra, óslægð 129,00
Bleikja, flök 1.609,25
Hlýri, óslægður 336,00
Hlýri, slægður 386,56
Lúða, slægð 1.112,40
Skata, slægð 10,00
Stórkjafta, slægð 111,00
Tindaskata, óslægð 5,00
Undirmálsýsa, óslægð 117,00
Undirmálsýsa, slægð 119,00
Undirmálsþorskur, óslægður 230,70
Undirmálsþorskur, slægður 248,89
SJÁVARAFURÐIR
Hagnaður varð af rekstri sjávar-
afurðafyrirtækisins Sölku á Dalvík
í fyrra. Samkvæmt upplýsingum í
ársreikningi fyrirtækisins fyrir árið
2018 nam hagnaðurinn um 6,5
milljónum króna. Það eru talsverð
umskipti frá árinu 2017 þegar
rekstur félagsins skilaði tapi upp á
ríflega 10 milljónir króna.
Rekstrartekjur Sölku jukust
verulega á árinu, úr tæplega 30
milljónum króna árið 2017 í nær 40
milljónir í fyrra. Þar af voru um-
boðslaun ríflega 39 milljónir króna.
Tap varð af reglulegri starfsemi
fyrirtækisins upp á tæplega 2,5
milljónir króna á árinu 2018. Það
sem olli því þó að fyrirtækið skilaði
hagnaði voru talsverðar fjármuna-
tekjur og gengishagnaður. Það er
talsvert ólíkt því sem upp var á
teningnum árið 2017 þegar geng-
istap Sölku var nær 6,4 milljónir
króna.
Eignir fyrirtækisins voru tæp-
lega 80 milljónir króna í fyrra og
jukust um fjórar milljónir króna
milli ára. Eigið fé félagsins var nær
64 milljónir króna í árslok og því er
eiginfjárhlutfall þess um 80%. Þá
var arðsemi eigin fjár um 10,4%.
Umskipti
hjá Sölku
Salka skilaði hagnaði í fyrra.
Davíð
Rúdólfsson