Morgunblaðið - 14.08.2019, Side 14

Morgunblaðið - 14.08.2019, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019FRÉTTIR Þarftu skjóta afgreiðslu á ein- blöðungum, bæklingum, vegg- spjöldum, skýrslum, eða nafn- spjöldum? Þá gæti stafræna leiðin hentað þér. Sendu okkur línu og fáðu verðtilboð. STAFRÆNT Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Hreint loft - betri heilsa Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglu- gróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. Verð kr 18.890 Verð kr 49.920 Verð kr. 35.850 Verð kr. 15.960 Að fylgjast með hagkerfi Argentínu er svolítið eins og að horfa á knatt- spyrnuleik og halda með liðinu sem alltaf tapar. Mann langar að hvetja liðið áfram, og veit að á pappír hefur það allt sem þarf til að skara fram úr. Liðið býr líka að fornri frægð – var einu sinni í toppslagnum. Samt dyn- ur á þeim hvert áfallið á fætur öðru og álitsgjafar mása og blása í sjón- varpi og á síðum blaðanna, eins og stuðningsmaðurinn á hliðarlínunni rauður í framan af gremju: „Nei! Ekki svona! Ekki þetta! Ekki núna!“ Og þá sjaldan sem virðist ganga vel er eins og ekki sé allt með felldu – og deilt um hvort sóknarmaðurinn hafi slegið hendinni utan í boltann þegar hann skoraði síðasta mark. Annars er það yfirleitt bara stöngin-út, sama hver er sendur inn á völlinn. Gósenland í suðri Auðvitað vill maður halda með Argentínu, enda virðist það hrein- lega ósanngjarnt hvernig hefur farið fyrir þessari þjóð, syðst í Suður- Ameríku. Þar sem fólkið dansar tangó, borðar heimsins bestu steikur og fyllir rauðvínsglösin upp að barmi. Græn túnin breiðast út yfir landslagið, nautgripirnir eru patt- aralegir, fólkið ósköp vandað og vinnusamt, olía, gas og eðalmálmar í jörðu. Allt leit svo vel út í byrjun síð- ustu aldar, og Argentína var í hópi ríkustu landa heims allt fram að kreppunni miklu. Kreppan þurrkaði upp eftirspurn eftir argentínskum landbúanðarafurðum og allt fór í hnút. Síðan þá er eins og hagkerfið hafi aldrei náð sér almennilega á strik nema stutta stund í senn, og hafa herforingjastjórnir og lýðræð- islega kjörnir leiðtogar skipst á að taka rangar ákvarðanir um efna- hagsstjórn landsins. Að ekki sé minnst á skrambans Perónismann. Umbætur enda í greiðslufalli Virtist loksins eins og Carlosi Me- nem hefði tekist að koma landinu á rétta braut á 10. áratugnum. Hann frelsaði hagkerfið töluvert og laðaði að erlenda fjárfestingu svo að lands- framleiðsla á mann tók kipp og var um 1998 orðin um fjórðungi hærri en í Síle og þriðjungi hærri en í Brasilíu. En svo kom kreppa, Menem fór, er- lendu fjárfestarnir misstu kjarkinn, stjórnkerfið var orðið gegnsósa af spillingu og ríkissjóður neyddist til að safna skuldum til að reyna að halda genginu stöðugu gagnvart Bandaríkjadal. Stoðirnar brustu á endanum, og árið 2001 skrapp hag- kerfið svo mikið saman að Argentína varð skyndilega eftirbátur Brasilíu og Síle, frekar en að leiða hópinn. Ríkið hætti að greiða af skuldum sín- um (sem Argentína hefur núna gert samtals átta sinnum), og á endanum að Néstor Kirchner tók við keflinu – og ekkja hans Cristina að honum látnum. Hagkerfið óx, og það þrátt fyrir furðulegar aðgerðir Kirschner- hjóna á borð við að handstýra verði neysluvara, leggja háa skatta á út- flutning og þjóðnýta einkarekna líf- eyrissjóði. Árið 2014 var verðbólga komin á fleygiferð, enda peninga- prentvélarnar á fullu, eins og Perón- ista er siður. Fjármagn streymdi úr landi og eftir að hafa tapað undar- legu dómsmáli, sem rekið var af áhættufjárfestum í New York, neit- aði ríkisstjórn Argentínu enn eina ferðina að borga skuldir sínar. Kjósendur fengu sig fullsadda af þessu og sprangaði Mauricio Macri inn á völlinn í árslok 2015. Loksins virtist kominn framherji sem vissi hvernig spila á leikinn (og hafði raunar tekist að verða formað- ur knattspyrnuliðsins Boca Juniors). Hófsamur hægrimaður, verkfræð- ingur að mennt með framhalds- menntun í viðskiptum frá virtum bandarískum háskóla. Macri reif plásturinn af sárinu, afnám gjaldeyr- ishöft og útflutningshöft og leyfði pesanum að falla, hóf að borga af skuldum ríkisins og snapaði stærsta lán sem AGS hefur nokkru sinni veitt. Skjálfandi á beinunum Það varð ekki beinlínis viðsnún- ingur yfir nóttu, en hagkerfi Argent- ínu hefur miðað í rétta átt, ólíkt t.d. Brasilíu í norðri. En aðferðir Macri virðast ekki hafa farið nógu vel í kjósendur því á sunnudag tapaði hann n.k. „könn- unarkosningu“ sem ætlað er að meta viðhorf kjósenda í aðdraganda for- seta-, þing- og héraðsstjórakosninga sem fara munu fram þann 27. októ- ber næstkomandi. Hann tapaði með miklum mun – með aðeins 32,7% at- kvæða – gegn Perónistanum Alberto Fernándes, sem býður sig fram með Cristinu Fernández de Kirschner sem varaforsetaefni, og hlaut stuðn- ing 47% kjósenda. Er þetta langtum meiri munur en skoðanakannanir bentu til og greinilegt að niðurstöð- urnar skutu fjárfestum skelk í bringu. Raunar ekkert skrítið að fjárfestar séu hvekktir enda sýnir sagan að í Argentínu er á öllu von. Minnstu merki um að stjórnmál landsins séu að taka ranga stefnu framkalla því mjög sterk viðbrögð. Strax á mánudag hrundi gengi argentínska pesans um nærri því fjórðung og aðal-hlutabréfavísitala landsins lækkaði um 48% mælt í doll- urum en 38% mælt í pesum. Að sögn FT má aðeins finna eitt tilvik í sög- unni þar sem hlutabréf lækkuðu meira á einum degi og var það á Sri Lanka árið 1989 þegar þar geisaði borgarastríð. Markaðsgreinendur standa á gati. Þvílíkt sjálfsmark! Bjartsýnismennirnir vona að ef Fernández kemst til valda þá hafi hann kannski rænu á að viðhalda stefnu Macri í megindráttum. Það versta er næstum því afstaðið og vís- bendingar um að hagkerfið komist á gott skrið að ári liðnu, eða þar um bil. Þau Alberto og Christina gætu þá eignað sér heiðurinn. Svo er alltaf hægt að vona að niðurstöður kosninganna á sunnu- dag efli stuðningsmenn Macri og sýni kjósendum Fernández hvers þeir geta vænst ef Perónistar fá aft- ur að ráða. Skilaboðin sem mark- aðurinn sendi á mánudag gætu ekki verið skýrari. Macri benti á þetta sjálfur í við- tölum við blaðamenn eftir skell mánudagsins, og sagði heimsbyggð- ina ekki treysta þeirri tegund stjórn- mála sem voru stunduð í tíð Kirsch- ner-hjónanna. Hann ætlar sér að sigra í október, og freistandi að hvetja hann til dáða eins og þeir gera hjá Boca: „Dale, dale, dale!“ Innst inni veit maður samt hvern- ig fer. Þetta er jú einu sinni Argent- ína. Sjálfsmark með tilþrifum Ásgeir Ingvarsson skrifar frá Istanbúl ai@mbl.is Það þurfti ekki meira en slæmar niðurstöður úr könnunarkosningu til að fjárfestar misstu trúna á Argentínu. Útlit er fyrir að Macri nái ekki endur- kjöri, Peronistar komist til valda, og ávinningurinn af sársaukafullum umbóta- aðgerðum undanfarinna ára verði að engu. AFP Frá ársbyrjun 2015 *SDR = sérstök dráttarréttindi Þróun argentínska pesans gagnvart SDR* 0,10 0,08 0,06 0,04 0,02 0,0 2015 2016 2017 2018 2019 0,0816 0,0160Heimild: fxtop.com Fjárfestar treysta Mauricio Macri greinilega mun betur en andstæðingum hans til að stuðla að hagsæld í Argentínu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.