Morgunblaðið - 14.08.2019, Qupperneq 16
dk iPos snjalltækjalausn
fyrir verslun og þjónustu
Einfalt, fljótlegt og beintengt dk fjárhagsbókhaldi
Smáratorgi 3, 201 Kópavogur • Hafnarstræti 53, 600 Akureyri
510 5800, dk@dk.is, www.dk.is
dk iPos er hluti af snjalltækjalínu dk hugbúnaðar.
Líttu við og fáðu kynningu á þeim fjölbreyttu lausnum
sem dk hugbúnaður hefur fyrir verslun og þjónustu.
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Jólin reyndust Kalda erfið
Bjóða hagstæða bílafjármögnun
Hugsi yfir nýjum bílalánum
Nýr veitingastaður opnaður fyrir jól
Skúli gerir 3,8 milljarða kröfur í WOW
Mest lesið í vikunni
INNHERJI SKOÐUN
„Áskriftasalan fór mun brattar af
stað en við áttum von á. Ég hélt
sjálfur að þetta yrði þokkalega ró-
legt allan ágústmánuð en það er
augljóst að opnunarleikur Liver-
pool trekkti verulega að. Liverpool-
menn eru ansi margir á Íslandi og
ætla sér að fylgjast vel með sínum
mönnum,“ segir Magnús Ragn-
arsson, framkvæmdastjóri afþrey-
ingarmiðla hjá Símanum. Fyrsta
umferð enska boltans kláraðist um
helgina en Síminn tryggði sér í
fyrra sýningarréttinn á því efni til
ársins 2022.
„Áskriftarsalan gekk það vel fyr-
ir helgi að við ákváðum á endanum
að læsa ekki dagskránni. Það var
það mikið álag. Við vildum ekki
lenda í því að það væru einhverjir
sem væru óánægðir sem hefðu
hringt í þjónustuver og ekki náð
inn eða vegna tæknilegra vanda-
mála, lent í einhverju klúðri,“ segir
Magnús.
Að sögn Magnúsar fékk Síminn
afar gott áhorf í fyrstu umferð en
áhorfið fór hæst í 7% á stærstu
leikina í fyrra. Á föstudagskvöld
horfðu 10% þjóðarinnar á leik Liv-
erpool og Norwich. „Væntanlega
vegna þess að leikirnir eru að-
gengilegri fleirum en verið hefur,“
segir Magnús.
Aðspurður segir hann 45 þúsund
manns vera með áskrift að enska
boltanum, bæði í gegnum Símann
Premium-þjónustuna sem veitir að-
gang, en að nokkur þúsund hafi
pantað sér staka áskrift fyrir helgi
á 4.500 kr. á mánuði.
„Það sem við erum að vonast eft-
ir að sé að gerast, og er erfitt að
mæla, er að ólöglegt áhorf sé að
minnka. Það var aldrei inni í áhorf-
stölum áður. Það er vonandi líka
hluti af þessari stækkun sem við
erum að sjá.“
AFP
10% þjóðarinnar horfðu á leik Liverpool og Norwich um helgina.
45 þúsund með
aðgang að enska
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
45 þúsund manns eru með
aðgang að enska bolt-
anum. 10% þjóðarinnar
horfðu á opnunarleik Liver-
pool og Norwich.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Í Árskógum 3-5 situr Tóbías í turn-inum og Soffía frænka húkir á
fyrstu hæðinni. Tóbías fór fyrir hönd
eldri borgara og grét út lóð á lækk-
uðu verði frá Reykjavíkurborg.
Markmiðið var að reisa íbúðir fyrir
aldraða án þess að nokkur einasti
maður myndi hagnast á því. Þetta
átti að leysa ímyndaðan vanda en
nýjar vendingar sýna að flestir voru
tilbúnir, þegar í harðbakkann sló, að
greiða mun hærra verð fyrir íbúð-
irnar sem þeir fengu úthlutað en
upphaflega var gert ráð fyrir. Þetta
fólk þurfti því ekki á „félagslegu“
húsnæði að halda eins og upplegg
verkefnisins benti að einhverju
marki til.
Og pukrið í kringum verkefniðhefur reynst með endemum.
Á meðan Soffía þarf að leita til dóm-
stóla í því skyni að fá rétt sinn við-
urkenndan situr Tóbías á sjöttu
hæðinni og svarar engum spurn-
ingum og allra síst þeim sem lúta að
kerfinu sem hann sjálfur setti upp í
því skyni að úthluta íbúðunum.
Hann er eflaust jafn hissa og allir
hinir á því að hann skyldi fá íbúðina
á efstu hæð, þá sem að lokum verður
langverðmætust allra.
Dæmið af Árskógaævintýrinu ereitt fjölmargra þar sem fólk
tekur til við að útdeila gæðum á
röngu verði. Flestir létu sig hlakka
til að sjá Kardimommubæinn í upp-
setningu Þjóðleikhússins í vetur. Nú
þarf bara að keyra upp í Mjódd til
þess að sjá þar ýmsum karakterum
leikritsins bregða fyrir. Kannski býr
ljónið einnig á efstu hæðinni?
Útdeiling
gæðannaFljótt taka menn að súpa hveljurþegar fréttist af milljarða hagn-
aði fyrirtækja. Reyndar getur
nokkru skipt hvers eðlis starfsemin
er. En myljandi hagnaður fjármála-
fyrirtækja hefur löngum verið eitur í
beinum margra. Skýrist það eflaust
af biturri reynslu af ofurþenslu
þeirri sem varð á bankakerfinu á ár-
unum 2005 til 2008 og endaði með
skelfingu eins og flestir þekkja.
En milljarður er ekki það sama ogmilljarður þótt furðu sæti.
Fyrirtæki sem veltir 100 milljörðum
á ári þykir ekki burðugt ef hagnaður
af starfseminni reynist 1% af heild-
arveltu. En milljarðs hagnaður af
fyrirtæki sem veltir tveimur þykir í
flestum ef ekki öllum geirum ótrú-
legur og jafnvel stjarnfræðilegur.
Hagnaðurinn verður bæði að skoð-
ast í ljósi þeirrar starfsemi sem að
baki verðmætasköpuninni býr og
einnig umfangi hennar. Þar skiptir
ekki síst máli að líta til eigin fjár við-
komandi fyrirtækis. Hagnaður sem
hlutfall af eigin fé segir til um hvaða
arði hin eiginlega fjárbinding í fyrir-
tækinu skilar.
Og á þetta verður að horfa í til-felli fjármálafyrirtækja eins
og annarra. Í kjölfar hrunsins voru
eiginfjárkröfur bankanna auknar til
muna, enda talið nauðsynlegt að þeir
hefðu annað og stærra borð fyrir
báru en það sem til staðar var á ár-
unum fyrir hrun (og enn stærra en
það sem dúklagt var á Klaustri).
Þessar kröfur fela það nú í sér ásamt
nýtískulegri skattlagningu sem
hvergi þekkist nema hér á landi að
bankarnir eiga mjög erfitt með að
sýna fram á ásættanlega ávöxtun á
eigið féð sem bundið er í þeim.
Á sama tíma og bankarnir verðaað laga sig að breyttum veru-
leika, bæði þeim sem þeim er búinn
á grunni regluverksins og sviptinga
á fjármálamarkaðnum sjálfum, er
nauðsynlegt að stjórnvöld hugi að
rekstrarumhverfi bankanna. Hvað
sem líður öfundartali um myljandi
hagnað þeirra, ár eftir ár, þurfa þeir
að geta haldið uppi heilbrigðri sam-
keppni og það er einnig óþolandi ef
regluverkið um kerfið er svo íþyngj-
andi að bankarnir verði óaðlaðandi
sem fjárfestingarkostur, bæði stærri
og minni fjárfesta.
Afkoman áhyggjuefni
Tröllaferðir skiluðu 122
milljóna króna hagnaði
samanborið við 3,7
milljónir árið áður.
Tekjur námu 966 mkr.
122 milljóna
króna hagnaður
1
2
3
4
5
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON