Morgunblaðið - 30.08.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 30.08.2019, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2019 M arkmiðið með vikunni er að gera þessari mikilvægu útflutn- ingsafurð Íslands hærra undir höfði og auka veg hennar heima fyrir,“ segir Kolbrún Sveinsdóttir, sér- fræðingur hjá Matís og verkefna- stjóri Saltfiskvikunnar. Fyrir löngu sé orðið tímabært að kynna betur hér heima þá óþrjótandi möguleika sem þessi hágæða verðmæta afurð hafi upp á að bjóða. Löng hefð er fyrir vinnslu salt- fisks hér á landi, en áður fyrr var öðru fremur notast við saltið til að lengja geymsluþol fisksins. Í dag nýtist saltið hins vegar til að framleiða sælkeravöru sem nýtur mikilla vinsælda víða um lönd, ekki síst við Miðjarðarhafið – þar sem fiskurinn leikur hefðum sam- kvæmt stórt hlutverk. Er salt- fiskur þar á borðum hvort heldur sem um er að ræða hátíðir eins og jól og páska eða þá á virkum dög- um. Lítið fari fyrir saltfiskinum Kolbrún bendir á að í nýlegri könnun á vegum Matís hafi glögg- lega komið fram hve lítið fari fyrir saltfiskinum í huga Íslendinga. Stórlega megi bæta úr til að færa hann fólki ofar í huga þegar kemur að innkaupum. „Þetta á ekki síst við í tilviki unga fólksins, en svo virðist sem hlutfall þeirra sem borða saltfisk árlega eða oftar lækki mjög eftir því sem svarendur eru yngri að ár- um,“ segir Kolbrún. Einungis tæp- lega 30% svarenda á aldrinum 18 til 29 ára sögðust leggja sér salt- fisk til munns einu sinni á ári eða oftar. Hlutfallið á meðal svarenda 60 ára og eldri var 90%, til sam- anburðar. Niðurstöðurnar sagðar sláandi „Þegar spurt var út í gæði salt- fisks þekkir yfirgnæfandi meiri- hluti fólks í eldri aldurshópum saltfiskinn sem gæðavöru. Töluvert færri eru þeirrar skoðunar í yngri aldurshópum.“ Þegar spurt hafi verið af hverju saltfiskur væri sjaldan á borðum voru svörin í flestum tilvikum á þá leið að viðkomandi þætti hann ekki góður, hann væri of saltur eða þá að skortur væri á framboði. „Niðurstöðurnar eru nokkuð slá- andi og ljóst að mikið betur má gera í að kynna fólki, ekki síst yngri kynslóðum, þetta úr- valshráefni sem saltfiskurinn er.“ Þrír gestakokkar væntanlegir Markmið vikunnar er sem áður segir að leitast við að færa saltfisk- inn ofar í huga fólks. Kolbrún bendir á að þeir tólf veitingastaðir sem taka þátt muni bjóða upp á að minnsta kosti einn saltfiskrétt í vikunni. Hvetur hún áhugasama til að prófa. „Þrír gestakokkar eru einnig væntanlegir til landsins í tilefni vikunnar, frá Spáni, Portúgal og Ítalíu, en í öllum þessum löndum er saltfiskurinn í hávegum hafður. Auk þess að kynna hvernig þau elda saltfisk hvert með sínum hætti munu gestakokkarnir einnig skipta sér á hluta veitingastaðanna sem þátt taka í Saltfiskvikunni og mæta þangað að elda. Þess má líka geta að þó nokkur mötuneyti vinnustaða munu bjóða starfsfólki upp á salt- fisk í Saltfiskvikunni – og eru önn- ur hvött til að gera það sama.“ Að Saltfiskvikunni standa Matís, Íslandsstofa, Kokkalandsliðið og Félag íslenskra saltfiskframleið- enda. Meiri upplýsingar um Salt- fiskvikuna má finna á síðu verkefn- isins: www.saltfiskvika.is. Vilja kynna Íslend- ingum saltfiskinn Blásið verður til svonefndrar Saltfiskviku á veitingastöðum hringinn í kringum landið dagana 4.-15. september. Alls taka tólf veitingastaðir þátt í vikunni og verða þeir allir með að minnsta kosti einn saltfiskrétt á matseðli. Saltfiskur á markaði í Coimbra í Portúgal. G U N N A R JÚ L A R T

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.