Morgunblaðið - 30.08.2019, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2019
Ó
li gerir Hafborgina út frá
Grímsey og var að ýsu-
veiðum í Skagafirði þeg-
ar blaðamaður sló á
þráðinn til hans í lok
ágúst.
„Það er bara alltof mikið af
þorski alls staðar. Það er nákvæm-
lega sama hvort þú ert að reyna við
ýsu, kola eða annað, það er alltaf
heilmikill þorskur sem kemur með,“
segir Óli.
Lífríkið í mjög góðu lagi
„Þeir eru svo nískir á að bæta við
aflaheimildum á þennan blessaða
þorsk. Ég veit ekki hvort þeir halda
að þeir geti endalaust friðað þorsk-
inn þangað til hann drepst bara
hreinlega úr elli í stórum stíl,“ bætir
hann við og er ómyrkur í máli. „Það
er þannig með þessa blessuðu ráða-
menn – þeir þora ekki orðið að taka
ákvörðun um eitt eða neitt.“
Spurður hvort þorskurinn sé vel
haldinn segir Óli að yfirleitt sé hann
mjög vænn.
„Það er enda mikið af æti, smá-
síld og síld og makríll og allur fjand-
inn hérna. Það virðist ekki skorta.
Smálúðan er hér meira að segja, en
hún á nú annars varla að vera til.
Ég held að lífríkið sé í mjög góðu
lagi hjá okkur.“
Nær sleitulaust skítaveður
Fiskverðið hefur verið býsna gott
frá í vor að hans sögn.
„Það er aðeins núna sem það hef-
ur komið smáafturkippur, sérstak-
lega í ýsuna. En hérna fyrir norðan
land hefur líka verið hundleiðinlegt
tíðarfar fyrir strandveiðibátana síð-
ustu mánuði. Það komu nokkrir
góðir dagar í apríl og síðan þá hefur
verið nær sleitulaust skítaveður fyr-
ir þessa minni báta í allt sumar.
Þetta er ekki líkt neinu. Við höfum
ekki beint orðið varir við þessa ofsa-
legu hlýnun sem fólk er að æsa sig
yfir. Manni finnst það stundum orð-
um aukið.“ Spurður hvar helst sé
landað segir hann það misjafnt.
„Við höfum verið að landa í Gríms-
ey, á Húsavík, Dalvík og Sauðár-
króki, til dæmis. Þetta fer bara eftir
því hvaða tegund maður er að reyna
við. Nú erum við að brasa í ýsu
vestur í Skagafirði og áður vorum
við að brasa í kola frammi í Gríms-
ey. Svo var þorskur inni í flóa. Við
löndum bara þar sem er styst í
land.“
Allt í þorski á miðunum fyrir norðan
„Við vorum aðeins á grálúðunetum í sumar og það gekk nú rólega. Nú erum við byrjaðir á snurvoðinni í kola, ýsu og þorski,“ segir
Guðlaugur Óli Þorláksson, yfirleitt kallaður Óli, útgerðarmaður og skipstjóri á Hafborg EA, sem kom ný til landsins í lok árs 2017.
Aflinn togaður um borð. Lífríkið í hafinu er í fínu lagi að sögn Óla og nóg er af æti.
Leiðinlegt tíðarfar hefur verið fyrir norðan land í sumar. „Þetta er ekki líkt neinu,“ segir Óli. Hafborgin kom ný til landsins í lok árs 2017 og hefur reynst vel frá því veiðar hófust snemma vors 2018.
Ljósmyndir/Þorgeir Baldursson
Skipstjórinn í brúnni. Óli segir að yfirdrifið mikið sé af þorski í hafinu.