Fréttablaðið - 24.09.2019, Page 1

Fréttablaðið - 24.09.2019, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 2 2 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 2 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 borgarleikhus.is Korta- tilboðum lýkur 1. október EÐA *LEIKHÚSKORT* 30% AFSLÁTTU R 4-7 sýningar og ýmis fríðindi * LÚXUSKORT * 40% AFSLÁTTU R 8 sýningar + og ýmis fríðindi STJÓRNSÝSLA „Átta af níu lögreglu- stjórum landsins bera ekki lengur traust til ríkislögreglustjóra,“ segir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Vesturlandi og formaður Lögreglu- stjórafélags Íslands. „Þetta er búið að vera í gerjun í einhvern tíma. Ég lít svo á að ríkislögreglustjóri sé óstarfhæfur.“ Landssamband lögreglumanna samþykkti einnig vantraust á Har- ald Johannessen ríkislögreglustjóra á fundi sínum í gær. Snorri Magnús- son, formaður Landssambands lögreglumanna, segir niðurstöðu fundarins óháða ákvörðun lög- reglustjóra. „Það var búið að taka þá ákvörðun áður en nokkur vissi um viðbrögð þeirra. Þetta er algjörlega sjálfstæð ákvörðun,“ segir Snorri. „Það er búin að vera óánægja lengi innan lögreglunnar og ólga innan stéttarinnar með ýmislegt gagnvart embætti ríkislögreglustjóra.“ Snorri tiltekur ekki einstök mál sem ástæðu vantraustsyfirlýsingar- innar. „Þetta er sambland ýmissa mála. Gagnvart lögreglumönnum var það þetta viðtal ríkislögreglu- stjóra í Morgunblaðinu kornið sem fyllti mælinn endanlega.“ Ólafur Helgi Kjartansson, lög- reglustjóri á Suðurnesjum, var eini lögreglustjórinn sem lýsti ekki yfir vantrausti á Harald. „Málið er í ákveðnum farvegi, á meðan svo er, þá kýs ég ekki að tjá mig um það,“ segir Ólafur Helgi. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður stjórnskipunar- og eftir- litsnefndar Alþingis, segir stöðuna grafalvarlega. „Þessar vantraustsyfirlýsingar eru fordæmalaus staða sem gerir það að verkum dómsmálaráðherra hlýtur að þurfa að velta því fyrir sér hvort hagsmunir lögreglunnar í heild vegi ekki þyngra en hags- munir Haraldar Johannessen,“ segir Þórhildur Sunna. „Mér f innst útilokað að jafn margir háttsettir embættismenn og raun ber vitni grípi til þess örþrifa- ráðs að lýsa yfir vantrausti á ríkis- lögreglustjóra án þess að eitthvað alvarlegt liggi þar að baki sem verð- ur að skoða mjög vel ofan í kjölinn.“ Boltinn sé nú í höndum dóms- málaráðherra. „Nú þýðir ekkert að skipa einhverja nefnd til að hugsa málið. Dómsmálaráðherra verður að svara til hvaða aðgerða hún ætlar að grípa án tafar til að leysa úr þess- ari stöðu.“ Ekki náðist í Harald Johannessen ríkislögreglustjóra við vinnslu frétt- arinnar. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir dómsmálaráðherra gaf ekki kost á viðtali. – ab, vá Vantraust á ríkislögreglustjóra Lögreglustjórar og Landssamband lögreglumanna lýsa yfir vantrausti á Harald Johannessen ríkislög- reglustjóra. Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar segir dómsmálaráðherra verða að bregðast við. Það fer ekki mikið fyrir þessum laxastiga í Selá í Vopnafirði. Bændur á svæðinu hafa unnið að gerð laxastiga undanfarna áratugi. Í stað þess að vera steyptur er þessi stigi brot- inn inn í bergið og því ekki jafn augljós lýti á umhverfinu. Stiginn er nú hluti af verkefni Sir Jim Ratcliffe um verndun íslenska laxastofnsins á sjálf bæran hátt. Einnig er unnið að gróðursetningu meðfram ám á svæðinu og hrognagreftri. Landakaup Ratcliffes á svæðinu eru umdeild meðal heimamanna sem og landsmanna allra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Dómsmálaráðherra verður að svara til hvaða aðgerða hún ætlar að grípa án tafar til að leysa úr þessari stöðu. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, for- maður stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar +PLÚS SJÁVARÚTVEGUR Landssamband smábátaeigenda, LS, segir króka- af lamarkskerfið hafa orðið fyrir skipulegri árás þar sem útgerðar- menn hafi nýtt sér gloppu í reglu- verkinu í kringum stjórn fiskveiða með útgáfu veiðiheimilda á makríl. „Það er skýrt í lögunum að ekki megi færa veiðiheimildir frá króka- aflamarki yfir í almennt aflamark. Þannig hafa menn grætt á því fjár- hagslega því verð á af lamarki er þriðjungi hærra en í krókaaf la- marki,“ segir Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóri LS. – sa / sjá síðu 4 Segja útgerðina nýta gloppur í aflamarkskerfi Örn Pálsson, framkvæmda- stjóri Landssam- bands smábáta- eigenda. 2 4 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 1 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 D 8 -E 4 B 8 2 3 D 8 -E 3 7 C 2 3 D 8 -E 2 4 0 2 3 D 8 -E 1 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 2 3 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.