Fréttablaðið - 24.09.2019, Blaðsíða 2
Pabbar vildu ólmir
fara með börn sín í
leikhús.
Atli Þór Albertsson, markaðsstjóri
Þjóðleikhússins
Ef til kæmi almenn
og gegnsæ tak-
mörkun á vísindalegum
grunni til verndar nátt-
úrunni þá sé ég ekki að það
gangi gegn sjónarmiðum um
eignarrétt.
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson,
umhverfisráð-
herra
Veður
Austlæg átt 3-10 m/s, en 8-15 syðst
í kvöld. Rigning af og til um landið
sunnanvert, en skýjað með köflum
og þurrt að kalla fyrir norðan. Hiti
10 til 18 stig. SJÁ SÍÐU 14
Tekið til hendinni í þágu loftslags
Starfsmenn og nemendur Háskóla Íslands voru í óðaönn að gróðursetja tré og tína rusl í fallegu votlendi Vatnsmýrar á loftslagsdegi
háskólans og Stúdentaráðs í gær. Dagurinn hófst með ávarpi líffræðings um mikilvægi votlendis, síðan voru gróðursett tré við lundinn
við malarbílastæðið og Odda, slóst þá rektor með í för. Endaði dagurinn svo með pylsuáti við Norræna húsið. FRÉTTABLAÐIÐ /ANTON BRINK
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 74.900 KR.
TILBOÐ Í HAUSTSÓLINA
NÁNAR Á UU.IS EÐA Í SÍMA 585 4000
TENERIFE
UMHVERFISMÁL Innan umhverfis-
ráðuneytisins eru nú til skoðunar
aðgerðir til að sporna við fækkun
lundans og annarra svartfuglateg-
unda á grundvelli núverandi laga.
Heildarendurskoðun á villidýra-
lögum verður gerð í vor.
„Ég óskaði eftir frekari gögnum
um stofnstærðir svartfugla til að
meta aðgerðir byggðar á núverandi
löggjöf. Það er nú í skoðun í ráðu-
neytinu,“ segir Guðmundur Ingi
Guðbrandsson, umhverfis- og auð-
lindaráðherra. „Sumt er á valdi
okkar að stýra en til dæmis er erf-
iðara að bregðast við áhrifum lofts-
lagsbreytinga á fæðuframboð svart-
fugla. Ég tel að það þurfi að grípa
til einhverra aðgerða hvað varðar
svartfugla og sérstaklega lundann
sem flokkast í mikilli hættu.“
Samkvæmt válista Náttúru-
fræðistofnunar, sem birtur var
haustið 2018, er lundinn metinn
í bráðri hættu. Ekkert stig er fyrir
ofan nema útdauði. Stærð lunda-
stofnsins hefur farið niður á við
undanfarna áratugi og er lundinn
mikið veiddur til sölu á veitinga-
stöðum. Árið 2017 var teista friðuð
fyrir skotveiðum en hún er aðeins
metin í hættu en ekki bráðri hættu.
Vinna er hafin við heildarendur-
skoðun á lögum um vernd, friðun
og veiðar á villtum fuglum og spen-
dýrum og hyggst Guðmundur leggja
fram frumvarp í vor. Endurskoð-
unin var boðuð í stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar árið 2017. Fyrir-
hugaðar breytingar verða að ein-
hverju leyti byggðar á viðamikilli
skýrslu frá árinu 2013.
Samkvæmt núverandi löggjöf er
meginreglan að villt dýr séu friðuð
og heimild til veiða séu undan-
tekningar. Guðmundur segir að
ekki verði hróflað við þessari reglu.
„Með löggjöfinni verður sjálf bær
nýting og sjálf bærar veiðar leiðar-
ljósið,“ segir hann. „Það verður að
vera góður vísindalegur grund-
völlur fyrir nýtingu og veiðum. Því
er mikilvægt að ráðast í að vinna
stjórnunar- og nýtingaráætlanir
fyrir alla þá stofna sem eru nýttir.“
Slíkt mat lægi til ákvörðunar um
veiðar og nýtingu, friðun, sölubann
eða aðrar aðgerðir.
Lundaveiðar eru hlunnindaveið-
ar og það hefur f lækt málin hvað
varðar verndunaraðgerðir. Frið-
unarákvæði laganna mega ekki vera
þeirri nýtingu til fyrirstöðu heldur
aðeins sölu og skotveiðum. Guð-
mundur segir að þetta atriði verði
skoðað við endurskoðun laganna.
Telur hann langsótt að landeig-
endur gætu átt rétt á skaðabótum
vegna þessa.
„Hér er verið að ræða um auð-
lindanýtingu sem byggir á vísind-
um. Útgerðarmenn geta til dæmis
ekki átt skaðabótakröfu vegna afla-
stýringar fiskistofna,“ segir Guð-
mundur. „Ef til kæmi almenn og
gegnsæ takmörkun á vísindalegum
grunni til verndar náttúrunni þá sé
ég ekki að það gangi gegn sjónar-
miðum um eignarrétt.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
Ráðherra vill aðgerðir
til að vernda lundann
Umhverfisráðherra vill grípa til aðgerða vegna mikillar fækkunar lunda á
undanförnum áratugum. Friðun eða verndun lundans hefur verið erfið í ljósi
hlunnindaveiða en til stendur að endurskoða alla villidýralöggjöfina í vor.
Náttúrufræðistofnun segir lundann í bráðri hættu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMFÉLAG Allt varð vitlaust í byrjun
vikunnar þegar Atli Þór Albertsson,
markaðsstjóri Þjóðleikhússins, setti
inn tilkynningu á Facebook-hópinn
Pabbatips og bauð hluta meðlima á
ókeypis sýningu á söngleiknum
vinsæla um Ronju ræningjadóttur.
Boðið féll í góðan jarðveg og í kjöl-
farið urðu allar símalínur Þjóðleik-
hússins rauðglóandi. Pabbar vildu
ólmir fara með börn sín í leikhús.
„Í fyrra bauð Þjóðleikhúsið með-
limum sambærileg kvennahóps á
Facebook á sýningu og því vildum
við gjarnan gera slíkt hið sama fyrir
pabbana. Þetta Pabbatips-samfélag
er afar fallegt en þar keppast feður
um að hjálpa hver öðrum með upp-
eldi barna sinna á jákvæðan og upp-
byggilegan hátt,“ segir Atli Þór.
Að hans sögn var boðið liður í
mun stærra samfélagsátaki leik-
hússins sem miðar að því að sem
flestir fái að kynnast leiklist, óháð
búsetu og efnahag. „Við erum að
bjóða upp á yfir sextíu ókeypis
sýningar um allt land á þessu leik-
ári. Við vorum að frumsýna sýn-
inguna Ómar orðabelg eftir Gunn-
ar Smára Jóhannesson sem er fyrir
börn á elsta ári í leikskóla og fyrstu
bekkjum grunnskóla.
Allir í leikhús. Það er mottóið,“
segir Atli Þór. – bþ
Facebook-hóp
boðið í leikhús
Hildur Vala mun taka við af Sölku
Sól sem Ronja um helgina.
REYK JAVÍK Borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisf lokksins segir kostnað
Reykjavíkurborgar við byggingu
Aldin BioDome í Elliðaárdalnum
geta hækkað um hundruð milljóna
vegna fráveitumála.
Í bréfi Skipulagsstofnunar til
umhverfis- og skipulagssviðs borg-
arinnar er gerð athugasemd við að
„fráveitulögn Reykjavíkurborgar
liggur töluvert hærra í landi en
„gólf“ gróðurhvelfinganna“.
Segir í svari frá Veitum að settir
verði skilmálar um niðurgrafin þil
eða styrkingu í kringum núverandi
fráveitulögn.
„Þetta getur aukið kostnað borg-
arinnar um mörg hundruð millj-
ónir,“ segir Björn Gíslason, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. „Það er
ekkert smá verk að koma í veg fyrir
að frárennslið renni beint út í Ell-
iðaár.“ – ab
Fráveitumál geti
kostað hundruð
milljóna
+PLÚS
2 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
8
-E
9
A
8
2
3
D
8
-E
8
6
C
2
3
D
8
-E
7
3
0
2
3
D
8
-E
5
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
3
2
s
_
2
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K