Fréttablaðið - 24.09.2019, Side 4
*20% afsláttarverð út september
Benecta hylki 240 stk
Benecta hylki 60 stk
Compeed Hælsærisplástur 5stk
Nicorette Classic tyggigúmmí 2 mg 210 stk
Nicorette Fruitmint tyggigúmmí 2 mg 210 stk
Nicotinell Fruit tyggigúmmí 2 mg 204 stk
NutriLenk Gull 180stk
Omeprazol Medical Valley 20 mg 28 stk
Otrivin Menthol nefúði 1 mg/sk
Penzim gel 50 gr
Treo freyðitöflur 60 stk
Zonnic Mint skammtapokar 4 mg 20 stk
........................................... 17.995 kr.
.............................................. 4.989 kr.
......................... 920 kr.*
....... 4.789 kr.
.... 4.245 kr.
........... 3.989 kr.
........................................ 4.238 kr.*
.............. 1.099 kr.
............................. 989 kr.
.................................................... 3.099 kr.
......................................... 1.890 kr.
............. 1.099 kr.
Vinsælar vörur
á frábæru verði
1 Stálheppinn að lifa byssu-skotið á Bakka af Byssukúla
endurkastaðist í eyra starfsmanns
kísilvers PCC á Bakka.
2 Mál Öldu vekur furðu: „Höfðum ekki hugmyndaflug
í svona útspil frá Þjóðskrá“ Synjun
Þjóðskrár á nafnbreytingarbeiðni
Öldu Vigdísar kom flatt upp á
aðila í starfshópi frumvarps um
kynrænt sjálfræði.
3 Engar hópuppsagnir í dag en stefnumótun enn í gangi Upp
lýsinga full trúi Arion banka segir
frétt Mannlífs um hópuppsögn
ranga.
4 Bílalest Pence vakti reiði á bíl-lausri eyju Bílalest varaforseta
Bandaríkjanna keyrði á bíllausri
eyju og vakti reiði vestanhafs.
5 Sirrý svarar fullum hálsi og segir Pírata „af baka hið sanna
í málinu“ Ritdeilur Sirrýjar Hall
grímsdóttur Bakþankahöfundar
og Pírata halda áfram.
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Landssamband
smábátaeigenda, LS, segir króka-
af lamarkskerfið hafa orðið fyrir
skipulegri árás þar sem útgerðar-
menn hafi nýtt sér gloppu í reglu-
verkinu í kringum stjórn fiskveiða
með útgáfu veiðiheimilda á makríl.
Aflamark er tvenns konar. Ann-
ars vegar er um að ræða almennt
aflamark sem má nýta með öllum
leyfilegum veiðarfærum en króka-
af lamark má aðeins nýta með
handfærum og línu. Um 700 króka-
af lamarksbátar eru á landinu og
samkvæmt Fiskistofu er óheimilt
að flytja aflaheimildir úr krókaafla-
markskerfi í aflamarkskerfi.
Það hefur hins vegar reynst
raunin því að stjórn LS hefur í bréfi
til ráðherra óskað eftir skýringum
á því að krókaaf lamarksbátum
var gert heimilt að tilheyra f lokki
uppsjávarskipa í af laheimildum
með makríl. Við það hafi skapast
forsendur til f lutnings á veiði-
heimildum úr krókaaflamarki yfir
í aflamark, „með óheftum flutningi
á makríl til og frá viðkomandi.
Magnið sem flutt hefur verið nemur
þúsundum tonna af þorski, ýsu og
ufsa og mun að óbreyttu hafa mikil
áhrif á framboð og verð á leigu-
markaði með krókaaflamark,“ eins
og segir í yfirlýsingu LS.
„Að okkar mati er hér vegið að
grunngildum kerf isins. Það er
skýrt í lögunum að ekki megi færa
veiðiheimildir frá krókaaflamarki
yfir í almennt af lamark. Þannig
hafa menn grætt á því fjárhagslega
því verð á af lamarki er þriðjungi
hærra en í krókaaflamarki. Því er
það óskiljanlegt að þetta hafi verið
leyft og við viljum að ráðherra og
Fiskistofa skoði þessi mál gaum-
gæfilega,“ segir Örn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri LS.
Fiskistofa skoðar nú hvort þessir
f lutningar standist lög um fiskveið-
ar. Af þeim sökum mun afgreiðsla
umsókna tefjast því f leiri eru að
sækja um að taka aflaheimildir úr
krókaaflamarkskerfinu og færa yfir
í almennt aflamark.
Í yfirlýsingu smábátaeigenda er
vakin athygli á að þetta hafi nei-
kvæð áhrif á krókaaflamarkskerfið
í heild sinni. Veiðiheimildir sogist
út úr krókaaf lamarkskerfi yfir í
aflamark. Skiptimyntin hafi verið
aflaheimildir í makríl þar sem tug-
þúsundir tonna hafi millilent á
bátum í af lamarki í skiptum fyrir
veiðiheimildir úr krókaaflamarki.
Smábátaeigendur sem lifa á
krókaaflamarkskerfinu, segja þetta
skipulega aðför að kerfinu. Þeir
sem hafi stundað þessa f lutninga
geti hagnast gríðarlega. „Verð á
leigukvóta í þorski er um þriðjungi
hærra í af lamarki en í krókakerfi
smábáta. Á heimasíðu Fiskistofu
er hægt að finna dæmi um að 300
tonna af laheimildir í þorski hjá
krókaaf lamarksbát haf i verið
færðar á togara. Mismunur á leigu-
tekjum á því magni er um 20 millj-
ónir,“ segir í bréfi LS til ráðherra.
Með þessum tilfærslum á af la-
heimildum munu útgerðir, sem að
miklu eða mestu leyti reiða sig á
leigukvóta, berjast í bökkum. Leigu-
verð mun hækka þar sem búinn er
til skortur á veiðiheimildum innan
krókaaflamarkskerfisins. Því muni
þessir f lutningar geta haft í för með
sér að útgerðir hætti starfsemi.
sveinn@frettabladid.is
Segja krókaaflamarkskerfið
hafa orðið fyrir árás útgerða
Landssamband smá-
bátaeigenda telur út-
gerðarmenn hafa skipu-
lega ráðist á grunnkerfi
fiskveiðistjórnunar-
innar og haft af því
fjárhagslegan ávinning.
Fiskistofa skoðar lög-
mæti þeirra gerninga
sem deilt er um.
KJARAMÁL Guðjón Hreinn Hauks-
son var í gær kjörinn formaður
Félags framhaldsskólakennara með
tæplega 75 prósentum atkvæða.
Guðjón hefur verið starfandi for-
maður síðan Guðríður Arnardóttir
lét af störfum, en hún var skipuð
skólameistari Menntaskólans við
Hamrahlíð í júlí eftir fimm ára setu
hjá FF.
Tveir voru í framboði, Guðjón
sem er kennari við Menntaskólann
á Akureyri og Gunnar Hólmsteinn
Ársælsson hjá Framhaldsskólanum
í Garðabæ.
Í kosningabaráttu sinni lagði
Guðjón áherslu á að gera ekki kjara-
samninga nema tryggt verði að
framhaldsskólakennarar fylgi við-
miðunarhópum í launaþróun, að
koma á vinnumati til að stuðla að
sveigjanlegra skólastarfi og minnka
kennsluskyldu nýliða til að stuðla
að nýliðun í stéttinni. – khg
Guðjón nýr
formaður FF
STJÓRNSÝSLA „Ég þekki ekki dæmi
um að ráðamenn hér á landi hafi
haft afskipti af dómurum,“ segir
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður
Guðjóns Skarphéðinssonar.
Ummæli hans fyrir helgi í við-
tali við Sigmar Guðmundsson í
Morgunútvarpinu á Rás 2 vöktu
talsverða athygli. Þar sagði Ragnar
að ríkisvaldið væri að setja pressu
á dómara í tengslum við uppgjör
Guðmundar- og Geirfinnsmála.
Sagði Ragnar að hann vonaðist
til að hann þyrfti ekki að hafa
áhyggjur af því hver hefði hringt í
dómarann kvöldið áður en dómur
væri kveðinn upp.
Í samtali við Fréttablaðið segist
Ragnar ekki þekkja nein dæmi um
afskipti ráðamanna af dómurum.
„En þegar það er ágreiningur um
hvort dómarar hafi verið skipaðir
með faglegum hætti af stjórnmála-
mönnum þá skapast vafi sem er
hættulegur fyrir trúverðugleika
dómstólanna,“ segir Ragnar.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, for-
maður Dómarafélags Íslands, vildi
ekki tjá sig um ummæli Ragnars.
Sagði hún að félagið gæti ekki
verið að bregðast við einstökum
ummælum lögfræðinga þó að þau
væru stuðandi. – bþ
Kannast ekki við afskipti ráðamanna af dómurum
Ragnar Aðalsteinsson lögmaður.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Um 700 krókaaflamarksbátar eru á landinu, bannað er að flytja aflaheimildir milli kerfa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Að okkar mati er
hér vegið að grunn-
gildum kerfisins.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda
2 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
8
-F
D
6
8
2
3
D
8
-F
C
2
C
2
3
D
8
-F
A
F
0
2
3
D
8
-F
9
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
3
2
s
_
2
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K