Fréttablaðið - 24.09.2019, Side 6
UMHVERFISMÁL Margir af leið-
togum heimsins hittust í New
York í gær til að ræða loftslagsmál
á 74. allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna, SÞ. Alls hafa 69 ríki og
ýmis alþjóðafyrirtæki lofað nýjum
aðgerðum til þess að forðast afleið-
ingar loftslagsvár með því að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Á fundinum hvatti Antonio
Guterres, aðalframkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, eftir sterkari
forystu leiðtoga heims og að ríki
heims grípi til róttækra aðgerða til
að draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda. Í vikunni mun einnig fara
fram leiðtogafundur um heims-
markmið SÞ. Markmið beggja
leiðtogafundanna er að ríki heims
leggi meiri metnað í loftslags- og
þróunarmál.
Samkvæmt Parísarsamkomulag-
inu frá árinu 2015 skuldbundu ríki
heims sig til að skila nýjum metn-
aðarfyllri aðgerðum gegn útblæstri
gróðurhúsalofttegunda frá og með
árinu 2020.
Samkvæmt nýrri skýrslu vísinda-
manna, sem var samin fyrir ráð-
stefnuna, eru sterkar vísbendingar
um að enn aukist hnattræn hlýnun.
Þar segir að hitastigið á jörðinni sé
1,1 gráðu hærra en það var árið 1850
og 0,2 gráðum hærra en árin 2011 til
2015. Þetta hljómar ekki sem mikil
breyting en hún mun hafa gríðarleg
áhrif.
Samkvæmt Alþjóðaveðurfræði-
stofnuninni, WMO, er meðalhiti á
jörðinni síðustu fimm ár meiri en á
nokkru öðru fimm ára tímabili frá
því skráning hófst. Hraði hækkunar
yfirborðs sjávar hafi aukist verulega
og met hafi verið sett í losun gróður-
húsalofttegunda.
WMO segir hækkun yfirborðs
sjávar kvíðvænlega. Það hafi hækk-
að að meðaltali um 3,2 millimetra
á ári frá 1993 en á tímabilinu 2014
til 2019 hafi hækkunin mælst fimm
millimetrar á ári. Sjávarhiti hefur
aldrei mælst eins hár og árið 2018.
Skýrsluhöfundar segja ís norður-
slóða bráðna hraðar en spáð hafði
verið. Jöklar hopi og þynnist. Sum-
arís norðurslóða hafi minnkað um
12 prósent á hverjum áratug síðustu
40 ár og ís suðurskautsins hafi aldr-
ei bráðnað hraðar.
Guterres varar við því að heims-
byggðin sé að „tapa í baráttunni“
gegn loftslagsvánni. Þær aðgerðir
sem hrint hefur verið í framkvæmd
séu alls ekki nægar. „Ég sagði leið-
togum að koma ekki með fínar
ræður, heldur raunverulegar skuld-
bindingar. Almenningur vill lausn-
ir, skuldbindingar og aðgerðir,“
sagði Guterres fyrir fundinn. Hann
hefur meðal annars krafist þess að
uppbyggingu kolaorkuvera heims-
ins verði hætt árið 2020.
Talið er að um fjórar milljónir
loftslagsmótmælenda, að stórum
hluta ungt fólk, í meira en 150
ríkjum heims hafi gengið um götur
á föstudag í síðustu viku til að krefja
stjórnmálamenn um aðgerðir gegn
hnattrænni hlýnun.
Leiðtogar 60 ríkja mættu til fund-
arins í gær. Þetta eru leiðtogar ríkja
á borð við Frakkland, Þýskaland og
Bretland og Donald Tusk frá Evr-
ópusambandinu. Tékkland, Eist-
land, Ungverjaland og Pólland hafa
þó ekki viljað styðja samkomulag
Evrópusambandsins um kolefnis-
markmið fyrir árið 2050 sem kynnt
var í júní síðastliðnum.
Fulltrúi Kína á fundinum er
Wang Yi utanríkisráðherra. Ekki er
reiknað með stórum yfirlýsingum
frá þessu ríki sem mengar mest og
hefur uppi áætlanir um mikla upp-
byggingu kolaorkuvera.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra sækir loftslagsfundinn fyrir
Íslands hönd.
Leiðtogar Ástralíu, Japans og
Bandaríkjanna eru meðal þeirra
sem verða fjarverandi. Japan hefur
kynnt áætlanir um uppbyggingu 45
nýrra kolaorkuvera.
Upphaf lega var ekki gert ráð
fyrir að Donald Trump, forseti
Bandaríkjanna, kæmi til fundar-
ins en hann kom þó stuttlega með
Mike Pence varaforseta. Yfirmaður
bandarísku umhverfisstofnunar-
innar leiðir bandarísku sendinefnd-
ina.
Dagblaðið Financial Times segir
stórfyrirtæki á borð við Nestlé,
Ikea, Salesforce, Unilever og L'Oréal
vera á meðal 87 alþjóðafyrirtækja
sem hafa sagst skuldbinda sig enn
frekar í baráttunni gegn loftslags-
breytingum. Þar séu f jármála-
fyrirtæki á borð við Lífeyrissjóð
Kaliforníuríkis, danskir lífeyris-
sjóðir, tryggingarfélögin Swiss Re
og Allianz. Þá hefur Evrópski fjár-
festingarbankinn ásamt átta öðrum
þróunarbönkum heitið auknum
fjárfestingum fyrir alþjóðlegar
loftslagsaðgerðir.
david@frettabladid.is
Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra og leið-
togar margra ríkja mættu til
fundarins í New York í gær.
Vísindamenn segja að met
hafi verið slegið í útblæstri
gróðurhúsalofttegunda og
hnattræn hlýnun aukist.
Hækkun yfirborðs sjávar sé
kvíðvænleg.
OPINN FUNDUR MIÐVIKUDAGINN 25. SEPTEMBER KL. 13-15
Í HÁTÍÐASAL AÐALBYGGINGAR HÁSKÓLA ÍSLANDS
ÁVÖRP
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
Michael Mann, sendiherra ESB á Íslandi
FRUMMÆLENDUR OG ÞÁTTTAKENDUR Í PALLBORÐI
Eggert Benedikt Guðmundsson, forstöðumaður
Samráðsvettvangs um loftslagsmál
Jóna Þórey Pétursdóttir, forseti Stúdentaráðs
Pétur Halldórsson, formaður Ungra umhverfissinna
Justine Vanhalst, sérfræðingur við Matís
Fundarstjóri er Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
Boðið verður upp á kaffiveitingar og spjall við fulltrúa
sendiráða, fyrirtækja og frjálsra félagasamtaka að fundi
loknum.
Fundurinn fer að mestu fram á íslensku
Aðgangur ókeypis og öll velkomin.
Hvaða aðgerða þarf að grípa til svo
komið verði til móts við kröfur unga
fólksins í loftslagsmálum?
Nánari upplýsingar: www.esb.is / www.hi.is
Aðgerðir
í loftslags-
málum
Er ábyrgðin
bara unga fólksins?
Sendinefnd ESB
á Íslandi
Lofa nýjum aðgerðum
gegn loftslagsvánni
Leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál hófst í gær í New York.
Ríki og alþjóðafyrirtæki leggja fram nýjar skuldbindingar til aðgerða gegn
hlýnun loftslags. Lofslagsmótmæli hafa farið fram í meira en 150 ríkjum.
BRETLAND Jeremy Corbyn, leiðtogi
Verkamannaflokksins, er í vanda
vegna afstöðunnar til útgöngu Bret-
lands úr Evrópusambandinu. Hart
var tekist á um málið á landsþingi
flokksins í Brighton í gær.
Corbyn hefur reynt að sætta
ólík viðhorf til útgöngunnar. Bæði
Íhaldsf lokkurinn og Frjálslyndir
demókratar fóru sinn í hvora átt-
ina. Boris Johnson hefur rekið þá
sem ekki styðja harðlínustefnu hans
úr flokknum og Jo Swinson sagði á
f lokksþingi Frjálslyndra að hún
myndi draga útgönguna til baka við
dynjandi lófaklapp.
Stefna Corbyns er nú að sækja um
útgöngusamning og gefa fólki kost á
að velja hann eða hafna útgöngunni
í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Á landsþinginu hafa þeir sem vilja
að flokkurinn taki harðari afstöðu
gegn útgöngu verið háværir en
Corbyn hefur viljað fresta umræð-
unni. Skuggautanríkisráðherrann
Emily Thornberry sagðist mjög
óánægð með afstöðu Corbyns því
að kosningar væru óumflýjanlegar
á næstu vikum eða mánuðum. Sagði
hún óákveðnina valda því að aðrir
flokkar sem tækju afgerandi afstöðu
myndu hirða fylgi flokksins. – khg
Verkamannaflokkurinn
klofinn í herðar niður
Jeremy Corbyn er í vanda vegna Brexit. NORDICPHOTOS/GETTY
Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, á leiðtogafundinum um loftslagsmál á 74. alls-
herjarþingi samtakanna. Hann hvatti leiðtogana í gær til aðgerða gegn loftslagsvánni. NORDICPHOTOS/GETTY
2 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
8
-F
8
7
8
2
3
D
8
-F
7
3
C
2
3
D
8
-F
6
0
0
2
3
D
8
-F
4
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
3
2
s
_
2
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K