Fréttablaðið - 24.09.2019, Page 8

Fréttablaðið - 24.09.2019, Page 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Sighvatur Arnmundsson sighvatur@frettabladid.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra lagði í ávarpi sínu í New York í gær áherslu á vonina. Vissulega væru áskor- anirnar stórar en lausnir væru til staðar. Við vitum að Erla átti aldrei mögu- leika. Ekki í því andrúms- lofti sem þá ríkti. Erum við enn þar? Varmadælur & loftkæling Verð frá aðeins kr. 145.000 m.vsk Midea KMB-E09 Max 3,4 kW 2,65 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,85) f. íbúð ca 40m2. • Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir • Virkar niður í -30°C Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land Wifi búnaður fylgir með öllum varmadælum meðan birgðir endast Umhverfisvænn kælimiðill Þjóðarleiðtogar heimsins eru nú staddir í New York þar sem allsherjarþing Sam-einuðu þjóðanna fer fram. Þeir munu í fimm daga funda um mikilvægustu málefni samtímans en í gær fór fram sérstakur loftslagsaðgerðafundur. Ant- onio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, talaði með skýrum hætti í aðdraganda loftslagsfundarins. Hann vildi að leiðtogar heims- ins kæmu fram með áþreifanlegar og raunhæfar aðgerðir til þess bregðast við loftslagsvandanum. Það er óhætt að taka undir kröfur Guterres um að leiðtogarnir fari að koma fram með aðgerðir í stað ræðuhalda. Auk þjóðarleiðtoga tóku stjórnendur nokkurra fyrirtækja og samtaka þátt í loftslagsfundinum. Aðkoma þeirra er gríðarlega mikilvæg enda verður vandinn ekki leystur af stjórnvöldum einum saman. Hér þarf atvinnulíf og almenningur líka að koma að borðinu og verða hluti af lausninni. Nýstofnaður samstarfsvettvangur um loftslagsmál og grænar lausnir hér á Íslandi vekur vonir um að það verði raunin. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði í ávarpi sínu í New York í gær áherslu á vonina. Vissulega væru áskoranirnar stórar en lausnir væru til staðar. Raunar var tónninn á fundinum jákvæður og ljóst að vilji til breytinga er fyrir hendi í orði, hvað svo sem raunverulegum aðgerðum líður. Það er hins vegar áhyggjuefni að fulltrúar stórra kolanotenda á borð við Japan og Ástralíu tóku ekki þátt. Þá er Donald Trump Bandaríkjafor- seti á allsherjarþinginu en ákvað að taka ekki þátt í loftslagsfundinum. Á Íslandi og í Sviss hafa jöklar verið kvaddir og hinum megin á hnettinum er framtíð eyríkja í Kyrrahafi í hættu. Hilda Heine, forseti Marshall- eyja, var meðal þeirra sem tóku til máls. Hún hvatti þjóðir heims til að standa við Parísarsamkomu- lagið, ef það tækist ekki væri um stærsta klúður mannkynssögunnar að ræða. Það er mikið í húfi en vísindamenn telja að það stefni í að eyjarnar verði óbyggilegar innan fárra áratuga vegna hækkandi yfirborðs sjávar. Í vikunni munu leiðtogarnir einnig fjalla um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem sett voru árið 2015. Þar voru sett fram 17 markmið um sjálf bæra þróun og velsæld í heiminum. Það er ekki síður mikilvæg umræða enda um margt tengd lofts- lagsmálunum. Þessir fimm dagar í septembermán- uði geta, ef vel tekst til, skipt sköpum til framtíðar. Það er enn ekki of seint að breyta heiminum en árangurinn mun velta á því sem leiðtogarnir gera þegar heim er komið. Fimm dagar í september Gervipilsfaldur Það getur margt breyst á áratug. Fyrir áratug voru það vinstri- menn sem vildu losa RÚV af auglýsingamarkaði og Sjálf- stæðismenn sem vildu koma í veg fyrir að ríkið þyrfti að dæla meira fé þangað inn. Nú er það öfugt, eins og Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður Vísis, bendir á. Nú séu það kommún- istarnir sem vilji passa upp á auglýsingarnar og kapítalist- arnir sem vilji ausa fé í stofnun- ina. Og þeir markaðsmenn sem telji að ríkið eigi að skaffa þeim vettvang til að komast í sam- band við gervikommúnistana og gervi kapítalistana séu ein- faldlega pilsfaldakapítalistar. Erfiðar spurningar Útspil setts ríkislögmanns í varnarleik ríkisins við kröfum Guðjóns Skarphéðinssonar hefur fengið marga til að klóra sér í kollinum. Í ljósi þess að játningar voru þvingaðar og engar sannanir eru fyrir því að neinn í Guðmundar- og Geir- finnsmálum hafi komið nálægt hvarfi mannanna er málatil- búnaður ríkisins skrítinn. Nú er það svo að umboðsmaður Alþingis telur að forræði kröfu- gerðar í málum gegn ríkinu sé í höndum stjórnvalda, þvert á skilning stjórnarráðsins um að það sé í höndum ríkislögmanns. Forsætisráðherra bíða erfiðar spurningar eftir Ameríkuför. arib@frettabladid.is Geirfinns- og Guðmundarmálið kallar enn fram allt hið versta. Grimmileg málsvörn ríkisins í máli Guðjóns Skarphéðinssonar veldur undrun og hneykslan. Með skipan sátta- nefndar var ríkið búið að viðurkenna bótarétt sinn. Eina sem út af stendur er upphæð bóta. Ekki hvernig fyrningarreglur voru fyrir áratugum og sannarlega ekki hvort Guðjón geti sjálfum sér um kennt. Málinu getur þó ekki lokið með sáttagreiðslum til þeirra sem loks voru sýknaðir sl. haust. Eina konan í málinu liggur enn óbætt hjá garði. Erla Bolladóttir fékk mál sitt ekki tekið upp, en var þó sannarlega í hópi ungmennanna sem máttu þola fordæmalaust harðræði af hálfu kerfisins. Erla bar sakir á saklausa menn, um það er ekki deilt. Sá framburður hennar varð til þess að þeir máttu þola langt og erfitt gæsluvarðhald og sú reynsla hefur án nokkurs vafa verið afar þungbær. Við vitum öll að það er ekkert að marka fram- burð sem fenginn er fram með því harðræði sem ungmennin þurftu að þola. Þeim andlegu og líkam- legu pyntingum sem þau voru beitt. Dómstólar viðurkenna þau sannindi líka. Hvers vegna eiga þau ekki við um framburð og þar með brot Erlu Bolla- dóttur? Erla Bolladóttir var ung móðir nokkurra vikna stúlkubarns þegar hún var hneppt í varðhald. Líkamlega sem andlega hefur það haft áhrif á þol hennar og styrk. Henni var haldið í stöðugum ótta við að barnið yrði tekið af henni ef framburður hennar yrði ekki þóknanlegur. Sú var sérstaða Erlu í þessu ömurlega máli. Það kemur ekkert á óvart að áður fyrr hafi enginn tekið tillit til sérstöðu kornungu móðurinnar með nýfædda barnið. Sem sagði allt sem ætlast var til af henni til að reyna að losna, hversu óraunhæf sem sú von hennar var. En við vitum betur núna. Við vitum að Erla átti aldrei möguleika. Ekki í því andrúms- lofti sem þá ríkti. Erum við enn þar? Kona utan garðs Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar 2 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 2 4 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 1 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 D 8 -E 4 B 8 2 3 D 8 -E 3 7 C 2 3 D 8 -E 2 4 0 2 3 D 8 -E 1 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 2 3 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.