Fréttablaðið - 24.09.2019, Blaðsíða 10
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.isHöldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · BVA Egilsstöðum
www.hekla.is/volkswagensalur
Vertu klár fyrir veturinn
Volkswagen atvinnubílar
Volkswagen Caddy
1.2 TSI beinskiptur
Tilboðsverð 2.690.000 kr.
Verðlistaverð 2.990.000 kr.
Volkswagen Transporter
2.0 TDI Beinskiptur
Tilboðsverð 4.390.000 kr.
Verðlistaverð 4.950.000 kr.
*Búnaður á mynd getur verið frábrugðinn bílum á tilboðsverði. Sjá staðalbúnað á volkswagen.is.
2 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
NFL Þrátt fyrir að eiga enn nokkur
góð ár eftir er erfitt að sjá að Ant-
onio Brown muni leika f leiri leiki
í NFL-deildinni eftir að hafa verið
rekinn frá öðru liðinu á rétt rúmum
tveimur vikum. Brown fór mikinn á
Twitter í kjölfari þess að New Eng-
land Patriots leysti hann undan
samningi og skaut föstum skotum á
eiganda Patriots og fyrrverandi liðs-
félaga sína áður en hann tilkynnti
að hann væri hættur í deildinni
fyrir fullt og allt. Einn besti útherji
deildarinnar þegar hann var upp á
sitt besta er því búinn að vera samn-
ingsbundinn þremur liðum árið
2019 og yfirgaf öll liðin í fússi.
Brown sem var skipt frá Pitts-
burgh Steelers síðasta vetur var
leystur undan samningi hjá Oakl-
and Raiders 7. september eftir að
hafa átt í útistöðum við svo gott sem
alla starfsmenn félagsins. Það virtist
sem svo að Patriots hefði nælt sér í
feitasta bitann á markaðnum þegar
tilkynnt var samdægurs að Brown
hefði samið við félagið til eins árs.
Loksins var Brown tilbúinn að
nota hjálm sem var samþykktur af
deildinni og virtist vera kominn í
jafnvægi á ný.
Brown veitti ríkjandi Super Bowl-
meisturunum með Tom Brady í
leikstjórnandastöðunni enn eitt
vopnið og var erfitt að sjá nokkurt
lið stöðva Patriots. Brady og Brown
náðu strax vel saman í fyrsta leik
þar sem Brown skilaði snertimarki.
Eins og fjallað var um fyrr í sept-
ember voru þjálfarar og einka-
kokkur búnir að kæra Brown fyrir
að hafa neitað að borga sér en eftir
Fimmtán daga rússíbanareið Browns
Hjálmurinn sem Brown samþykkti loksins virðist vera kominn upp í hillu.
Antonio Brown virtist vera kominn á beinu brautina í fyrsta leiknum með Patriots áður en vandamálin tóku sig upp á nýjan leik. NORDICPHOTOS/GETTY
Ferill hins skrautlega
útherja Antonios Brown
í NFL-deildinni virðist
vera á enda eftir að
Brown var rekinn frá
öðru liðinu á fimmtán
dögum um helgina.
að Brown samdi við Patriots litu
fleiri vandræði dagsins ljós. Einka-
þjálfari sakaði Brown um nauðgun
sem verið er að rannsaka og í kjöl-
farið sagðist kona sem vann að lista-
verki á heimili Browns hafa upp-
lifað kynferðislega áreitni af hálfu
Browns sem hefði einnig neitað að
borga henni fyrir listaverkið.
Við nánari rannsókn komst vef-
síðan Sports Illustrated að því
að f lestir sem höfðu unnið fyrir
Brown á ferlinum höfðu sömu sögu
að segja, hann reyndi oft að niður-
lægja fólk og neitaði síðar að borga
þeim. Stuttu seinna kom það í ljós
að Brown hefði haft í hótunum við
fréttaritara og beðið vini sína um að
hóta konunni sem sakaði Brown um
kynferðislega áreitni. Það reyndist
síðasta hálmstráið fyrir Brown hjá
Patriots því hann var skyndilega
leystur undan samningi. Fjarvera
Browns kom ekki að sök, Patriots
vann öruggan sigur og stefnir hrað-
byri að úrslitakeppninni án hans.
Brown nýtti Twitter til að ræða
brot annarra leikmanna og eig-
enda innan deildarinnar og eftir-
mála þeirra áður en hann gaf það
til kynna að hann væri hættur fyrst
eigendur stæðu ekki við samninga
sína. Ljóst er að innan vallar getur
Brown hjálpað hvaða liði sem er en
spurningin er hvort nokkurt félag sé
tilbúið að taka við því ógrynni vand-
ræða sem fylgja Brown hvert sem
hann fer. kristinnpall@frettabladid.is
2
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
8
-F
3
8
8
2
3
D
8
-F
2
4
C
2
3
D
8
-F
1
1
0
2
3
D
8
-E
F
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
3
2
s
_
2
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K