Fréttablaðið - 24.09.2019, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 24.09.2019, Blaðsíða 15
formi, alla ævi, en það sér um að líkaminn frásogi kalk úr fæðunni. K2-vítamín er ekki síður mikil- vægt þar sem það sér um að binda kalkið í beinunum. Svo eigum við að hreyfa okkur alla daga en til að styrkja beinin þá eru þunga- berandi æfingar bestar. Það eru æfingar þar sem við berum okkar eigin líkamsþyngd (göngur og skokk) og einnig er mjög gott að lyfta lóðum. Beinvernd er mikilvæg alla ævi hvort sem einstaklingur hefur beinþynningu eða ekki. Góð bætiefni ásamt reglulegum lík- amsæfingum eru nauð- synleg til að fyrirbyggja beinþynningu. Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsumarkþjálfi hjá Artasan ehf. Árlega má rekja um 1.400 beinbrot og 250 mjaðma-aðgerðir á Íslandi til bein- þynningar en ætla má að þriðja hver kona og áttundi hver karl á Íslandi megi eiga von á broti af völdum beinþynningar. Bein- þynning (e. osteoporosis) er sjúk- dómur sem ber að taka alvarlega. Hvað er beinþéttni? Beinþéttni segir til um hversu sterk bein okkar eru. Fyrstu tvo áratugi ævinnar eru beinin að þéttast og þá, eins og alltaf, skiptir næringin öllu máli. Við verðum bæði að fá nægilegt magn af kalki og D-vítamíni til byggja upp sterk bein. Upp úr 30 ára aldri fer að draga úr beinþéttninni og þá getur skipt máli hversu góð uppbygg- ingin hefur verið. Áhættuþættir Um 60-70% af beinþéttni ræðst af erfðaþáttum. Hversu þétt beinin eru á yngri árum ræður líka miklu um hvenær þau ná brotastigi. Beinþynning hefst oft hjá konum við tíðahvörf en aðrir þættir sem við getum ekki haft áhrif á eru aldur, kyn og kynstofn. Hvað hefur áhrif Við getum þó eitthvað gert í málunum því það eru nokkrir þættir sem hægt er að hafa áhrif á: n Holdafar (vannæring) n Kalk- og/eða D-vítamín- skortur n Reykingar n Hreyfing n Lífshættir Einnig hafa ákveðin lyf, eins og sykursterar áhrif. Næring og þungaberandi æfingar til styrktar Þrátt fyrir að við höfum ekki fulla stjórn á því hversu mikil eða lítil beinþynningin verður þegar við eldumst getum við haft töluverð áhrif á það og með réttum ákvörðunum jafn- vel komið í veg fyrir beinbrot á efri árum. Nægileg prótein-, kalk- og D-vítamínneysla ásamt reglulegum líkamsæfingum er nauðsynleg til að fyrirbyggja beinþynningu. D-vítamín þurfum við alltaf að taka inn á bætiefna- Sterk bein fyrir góða daga Beinþynning er alvarlegur sjúkdómur en þá verða beinbrot við lítið álag og vegna áverka sem nægja að öllu jöfnu ekki til að brjóta heilbrigð bein. Ýmislegt getur þó dregið úr líkum á broti. Dagleg hreyfing styrkir beinin. Æfingar þar sem við berum eigin líkamsþyngd, eins og göngur og skokk, gefa bestan árangur en fjöldi rannsókna í gegnum tíðina hefur sýnt fram á það. Kalk og D-vítamín gera beinunum gott. Osteo Advance frá Natures Aid inniheldur allt það nauðsynlegasta til að viðhalda heilbrigðum beinum og tönnum en í því er magnesíum og kalk í réttum hlutföllum ásamt D- og K2-vítamíni og sinki. Mismunandi stig eftir aldri frá heilbrigðum beinvef til beinþynningar. Osteo Advance – fullkomin beinablanda Fjöldi rannsókna gegnum tíðina hefur sýnt fram á að dagleg inn- taka á kalki og D-vítamíni getur dregið verulega úr líkum á bein- brotum vegna beinþynningar. Prótein, f leiri vítamín og steinefni eru þó nauðsynleg til að viðhalda sterkum beinum, til dæmis magn- esíum, K-vítamín og sink. Osteo Advance frá Natures Aid inni- heldur allt það nauðsynlegasta til að viðhalda heilbrigðum beinum og tönnum en þar er magnesíum og kalk í réttum hlutföllum ásamt D- og K2-vítamíni og sinki. Magnesíum fyrir beinfrumurnar Eins mikilvægt það er að við fáum nægilegt magn af kalki og D-víta- míni er magnesíum ekki síður mikilvægt. Um 60% af magnesí- umbirgðum líkamans eru í bein- unum. Eitt af hlutverkum þess er að halda kalki uppleystu í blóðinu sem er nauðsynlegt til að kalk safnist ekki fyrir á stöðum eins og í nýrum, æðum eða liðamótum. Magnesíum er nauðsynlegt fyrir starfsemi allra frumna og þ.m.t. beinfrumna og beinátfrumna og er undirstöðuefni fyrir ATP sem er nokkurs konar orkustöð hverrar frumu. Bara þessi staðreynd segir okkur að það dregur mjög úr áhrifum kalks á styrk beina og hindrun beinþynningar ef ekki er nægilegt magn af magnesíum í líkamanum. Sölustaðir: flest apótek og heilsu- búðir Fullkomin blanda fyr ir beinin Útsölustaðir: Flest apótek, heilsuhillur stórmarkaða. Skv. Landlækni þurfa allir að taka inn D-vítamín allt árið þar sem nægilegt magn fæst ekki úr daglegri neyslu matvæla og sólskin er af skornum skammti. Góð gæði á góðu verði! D-VÍTAMÍN FYRIR TENNUR, BEIN OG ÖFLUG ÓNÆMISKERFI 4 mánaða skammtur 40 ára 60 ára 70 ára FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 2 4 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 1 F B 0 3 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 D 8 -F 3 8 8 2 3 D 8 -F 2 4 C 2 3 D 8 -F 1 1 0 2 3 D 8 -E F D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 3 2 s _ 2 3 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.