Fréttablaðið - 24.09.2019, Síða 25

Fréttablaðið - 24.09.2019, Síða 25
Hvað? Hvenær? Hvar? Þriðjudagur hvar@frettabladid.is 24. SEPTEMBER 2019 Hvað? Kvartett Sigurðar Flosasonar Hvenær? 20.30 Hvar? Kex hosteli, Skúlagötu 28 Með Sigurði leika Kjartan Valde- marsson á píanó, Þorgrímur Jóns- son á kontrabassa og Einar Schev- ing á trommur. Á efnisskránni er fjölbreytt f lóra þekktra djasslaga. Aðgangur er ókeypis. Hvað? List, vísindi og andleg mál Hvenær? 17.00-17.40 Hvar? Listasafninu á Akureyri, Lista- gilinu Bandaríska myndlistarkonan Jessica Tawczynski fjallar um þær hugmyndir sem liggja að baki vinnu hennar í listinni þ.e. vísindi, heimspeki og andlega hlið listarinnar. Hvað? Viðskipti Kína og Íslands Hvenær? 17?30. Hvar? Hús Vigdísar, Brynjólfsgötu Pétur Yang Li viðskiptafulltrúi mun fjalla um viðskipti Kína og Íslands, verslun, ferðaþjónustu og fjárfestingar. Ókeypis veit- ingar áður en fyrirlesturinn hefst. Enginn aðgangseyrir og allir vel- komnir. Erindið er á ensku. Hvað? Útgáfutónleikar Hvenær? 20.00 Hvar? Vatnasafnið Stykkishólmi Píanóleikarinn Ingi Bjarni Skúla- son heldur útgáfutónleika í tilefni plötunnar Tenging. Flytjendur auk hans: Eistlendingurinn Merje Kägu á gítar, Norðmennirnir Jakob Eri Myhre á trompet og og Tore Ljøkelsøy á trommur og Svíinn Daniel Andersson á kontra- bassa. Hvað? Óravíddir tungumálanna Hvenær? 16.30 Hvar? Fyrirlestrasalur Veraldar, VHV023 Luiese Von Flotow heldur fyrirlestur sem nefnist Towards Transnational Feminist Gender- awareness in Translations Studies: Challenges and Solutions. BÆKUR Sú sem varð að deyja David Lagercrantz Þýðing: Halla Kjartansdóttir Útgefandi: Bjartur Blaðsíður: 381 Skömm lyftunnar sem varð Stieg Larsson að bana verður lengi uppi en með því að bila varð hún til þess að hjarta rithöfundarins gaf sig í miðjum tröppugangi áður en hann sló í gegn með þeirri frábæru glæpa- sögu Karlar sem hata konur. Sem betur fer skildi hann þó eftir sig tvær framhaldsbækur, Stúlkan sem lék sér að eldinum og Loftkastalinn sem sprakk þar sem spenntir lesendur fengu að fylgjast áfram með baráttu tölvuhakkarans Lisbeth Salander og stjörnurann- sóknarblaðamannsins Mikael Blomkvist við vonda auðjöfra og rótspillta kerfiskarla sem hata konur. Þótt bækur Larssons séu æsispennandi og feykilvel f léttaðir reyf- arar skrifast gríðarlegar vinsældir bókanna og síðar kvikmyndanna á hina brjálæðis- lega svölu Lis- beth Salander. Hú n er, að Mikael Blom- k v i st ólö st- uðum, hreyfi- af lið í þessu öllu saman og einhver eftir- minnilegast a hetja, eða and-hetja öllu heldur, sem hefur sprottið upp í glæpa- skáldskap síðari ára. Ofurtöffarinn Salander Mótsagnakenndi einfarinn Saland- er, fráhrindandi og heillandi í senn, er algerlega ómótstæðilegur töffari. Og er yfirleitt hægt að biðja um betri hetju í okkar ljóta og spillta lygaheimi en of beldishneigðan goth-pönkara, svartleðraða, húð- f lúraða, tvíkynhneigða stelpu sem er brjálæðislega góður tölvuhakkari, sefur hjá þeim sem hún vill og lætur verkin tala? Það var því vitaskuld erfitt að segja skilið við Lisbeth þegar þríleikn- um lauk og í ljósi þess sem kom í kjölfarið þegar sænski blaða- maðurinn og rit- höfundurinn David Lagercrantz tók við af Larsson hefði nú verið heppilegra að Salander og Blom- kvist hefðu bara fengið að hvíla við hlið skapara síns. Hverjum er ekki sama? Bækur Lagercrantz eru svosem a l v e g s l a r k - færir reyfarar en standast engan samanburð við frumritin. Fyrst og fremst vegna þess að Blom- kvist og Saland- er snarstoppa á persónuþróun- arbrautinni og sjarmi þeirra og aðdráttarafl r ý r n a r s v o mjög að þau duga ekki til þess að breiða y f ir hnök ra í g i s n u m g l æ p a f l é t t- u nu m s em Lagercrant z umvefur þau. Lagercrantz tengir þennan heldur losaralega þríleik sinn við verk Larssons með því að rekja áfram sjúka ættarsögu Salander og nú er loksins komið að lokauppgjöri Lisbethar við siðblinda og banvæna tvíburasysturina Camillu og leif- arnar af glæpaklíku föður þeirra, ógeðsins Zalachenko. Í káputexta Sú sem varð að deyja er því heitið að með henni ljúki L a g e r c r a n t z a f s k i p t u m sínum af t v í- eykinu frækna. Vonandi verður staðið við þetta þar sem þessir miðlungsreyfarar eiga lítið erindi v ið aðdáendu r Larssons og þrátt fyrir ágætis tilþrif inni á milli gera bæk u r na r l ít ið annað en pir ra mann yf ir með- förunum á skáld- s a g n a p e r s ó nu m sem manni þykir undurvænt um. Þórarinn Þórarinsson NIÐURSTAÐA: Lisbeth Salander er glæpsamlega vannýtt í dauflegum loka kafla Millenium-þríleiks Davids Lag- erkrantz sem hefur þann kost helstan að vera mun styttri en hinar bækurnar tvær. Hvíl í friði, elsku Lisbeth Noomi Rapace sem Lisbeth Salander. Búnaður í Jaguar F-Pace er m.a.: 18" álfelgur, halógen-aðalljós með dagljósum, framsæti með vönduðu áklæði og átta stefnu handvirkri stillingu, baksýnisspegill með sjálfvirkri deyfingu, gljásvart króm á skrautlista, 10" Touch Pro, upplýstar sílsahlífar úr málmi með Jaguar-áletrun. B ún að ur b íls á m yn d e r fr áb ru g ð in n au g lý st u ve rð i VERÐ FRÁ: 8.890.000 KR. Jaguar F-Pace Prestige. E N N E M M / S ÍA / N M x x x x x J a g u a r F - P a c e 5 x 2 0 s e p t JAGUAR HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK SÍMI: 525 6500 JAGUAR F-PACE SPORTLEGIR EIGINLEIKAR SPORTLEGT ÚTLIT VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17Þ R I Ð J U D A G U R 2 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 2 4 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 1 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 D 8 -E 4 B 8 2 3 D 8 -E 3 7 C 2 3 D 8 -E 2 4 0 2 3 D 8 -E 1 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 2 3 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.