Ágrip úr þjóðarbúskapnum - 01.04.1983, Side 6
kaupgetu. Að meðaltali hafa um 1800 manns verið skráðir atvinnulausir fyrstu
þrjá mánuði ársins samanborið við um 600 að meðaltali á sama tíma árin 1979—
1981.
Kaupmáttur ráðstöfunartekna er talinn hafa rýrnað um 1% á mann á árinu
1982. Kaupmáttur breyttist þó með ólíkum hætti eftir starfsstéttum og byggðar-
lögum. Tekjur sjómanna og þeirra, sem eiga afkomu sína undir sjávarafla, hafa
án efa dregist saman að raungildi. Aftur á móti hafa tekjur ýmissa annarra stétta
aukist nokkuð.
Með efnahagsráðstöfunum í lok síðastliðins árs var dregið úr verðbótahækkun
launa og kaupmáttur dróst saman af þessum sökum um nálægt 6%. Vegna
vaxandi verðbólgu rýrnar kaupmáttur nokkru meir og minni atvinna gengur í
sömu átt. Sé ekki reiknað með áhrifum frekari efnahagsaðgerða á árinu 1983 má
ætla, að kaupmáttur tekna rýrni að meðaltali frá fyrra ári um 8—9% á mann.
Þessi spá er sett fram með þeim fyrirvara, að ekki verði atvinnubrestur. I þessu
sambandi má benda á, að kaupmáttur ráðstöfunartekna í hlutfalli við þjóðar-
tekjur var með mesta móti á árunum 1981 og 1982, og verulegur viðskiptahalli
var bæði árin.
Verðbólga fór vaxandi á árinu 1982. Frá upphafi til loka ársins hækkaði vísitala
framfærslukostnaðar um 59% en vísitala byggingarkostnaðar um 64%. Verð-
bólgan hefur enn færst í aukana á þessu ári. Hækkun vísitölu framfærslukostn-
aðar frá febrúar 1982 til jafnlengdar í ár nam 68% og byggingarvísitala hækkaði
um 75% frá mars 1982 til jafnlengdar á þessu ári. Allt bendir til þess, að
framfærsluvísitalan, sem mæld verður í maí, verði um 20% hærri en í febrúar og
hækkunin frá maí í fyrra yrði þar með meiri en 80%. Samkvæmt þessu yrði
verðlag í maímánuði 1983 um 65% hærra en meðalverðlag ársins 1982. Hluti af
þessari gríðarmiklu hækkun vísitölunnar stafar af hinum sérstaka útreikningi
húsnæðisliðar vísitölunnar í maí, en hann hækkar óvenju mikið að þessu sinni.
Engu að síður er ljóst, að verðbólguhraðinn, sem undir býr, er meiri en áður var
talið og verðlagshorfur fyrir næstu mánuði mjög alvarlegar.
Árshækkun verðlags virðist munu verða meiri á árinu 1983 en nokkurt ár frá
því verðvísitölureikningur hófst hér á landi árið 1914. Jafnvel þótt gripið verði til
viðnámsaðgerða síðar á árinu virðist óumflýjanlegt, að meðalhækkun verðlags
milli 1982 og 1983 verði nálægt 80%. Verðbólgan stefnir nú á hærra stig en hér
hefur áður þekkst, en með því er atvinnuöryggi og afkomu fólks og fyrirtækja og
þjóðarbúsins alls teflt í tvísýnu.
6