Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.05.1990, Blaðsíða 9
Inngangur
Introduction
1. Fjármál sveitarfélaga 1979-1981
The development oflocal government finances in 1979-1981
Afkoma sveitarfélaga 1979-1981. Umfang
sveitarfélaga eins og það kemur fram í þessari skýrslu
er annað en það sem mælt er í þjóðhagsreikningum.
Munurinn skýrist einkum af því að hér eru fjármál
sveitarfélaga sett fram sérstaklega, en í þjóðhags-
reikningum eru þau talin hluti af starfsemi hins opinbera
í heild. Þetta snertir fyrst og fremst innbyrðis viðskipti
ríkissjóðs og sveitarfélaga og þar með það hvar útgjöld
af sameiginlegri starfsemi þessara aðila eru talin. I
þjóðhagsreikningum eru tilfærslur frá ríkissjóði til
sveitarfélaga færðar sem útgjöld hjáríkissjóði og koma
til frádráttar vergum (brúttó) útgjöldum sveitarfélaga.
í reikningum sveitarfélaga — og þar með í þessari
skýrslu—eru þessar tilfærslur taldar til tekna hjá þeim
og koma þannig á móti vergum útgjöldum þeirra. Þá
komatekjurafseldriþjónustusveitarfélagatillækkunar
á útgjöldum þeirra í uppgjöri þjóðhagsreikninga og
teljast í flestum tilvikum til einkaneyslu. Hjá
sveitarfélögum eru þessar tekjur færðar í tekjuhlið
rekstrarreiknings og eru hluti af ráðstöfunarfé þeirra.
Að síðustu eru öll fjármál Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
talin hjá sveitarfélögum í þjóðhagsreikningum. I þessari
skýrslu kemur fram hjá sveitarfélögum sá hluti af
fjármálum Jöfnunarsjóðs, sem varðar viðskipti hans
við þau, en fyrirgreiðsla sjóðsins við aðra aðila er ekki
meðtalin.
Vægi sveitarfélaga í opinberum fjármálum hér á
landi er fremur lítið samanborið við grannríki okkar á
Norðurlöndum. Sveitarfélögin voru 224 að tölu á
árunum 1979-1981 og hélst sá fjöldi óbreyttur þetta
tímabil. Flest þeirra eru því tiltölulega lítil og fámenn
og verða að sníða sér stakk eftir vexti og miða fjármál
sín við að vera sem næst í jafnvægi. I reynd eru það
aðeins fáir þéttbýlisstaðir sem geta eða hafa þörf fyrir
að ráðast í stærri framkvæmdir. 1. yfirlit gefur nokkra
mynd af fjármálum sveitarfélaganna í heild á þessu
tímabili.
1. yfírlit. Tekjur og gjöld sveitarfélaga 1979-1981
Milljónir króna
á verðlagi hvers árs Hlutfall af VLF11
1979 1980 1981 1979 1980 1981
Heildartekjur.................................. 861
Skatttekjur.................................... 566
þ.a. beinir skattar........................ 332
þ.a. óbeinir skattar....................... 234
Þjónustutekjur................................. 163
Innkomin framlög til fjárfestingar.............. 85
Aðrar tekjur.................................... 47
Heildargjöld................................... 823
Rekstrargjöld.................................. 559
Fjármagnskostnaður.............................. 33
Gjöld til fjárfestingar........................ 231
Tekjujöfnuður................................... 38
1.377 2.189 9,0 8,9 9,0
909 1.423 5,9 5,9 5,8
529 828 3,5 3,4 3,4
380 595 2,4 2,5 2,4
261 431 1,7 1,7 1,8
123 215 0,9 0,8 0,9
84 120 0,5 0,5 0,5
1.442 2.221 8,6 9,3 9,1
906 1.467 5,8 5,9 6,1
54 100 0,4 0,3 0,4
482 654 2,4 3,1 2,6
-65 -32 0,4 -0.4 -0,1
1) Verg landsframleiðsla.