Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.02.1993, Síða 12
10
Sveitarsjóðareikningar 1989
Hreyfingar á efnahagsliðum sveitarfélaga voru að mestu í
jafnvægi árið 1989. Hér á eftir verður fjallað sérstaklega um
tekjur, gjöld og efnahag sveitarfélaga, bæði með tilliti til
heildarumsvifa þeirra og umsvifa á hvern fbúa eftir stærð
sveitarfélaga á sama hátt og g'ert var hér að framan.
Tekjur sveitarfélaga 1989. Heildartekjur sveitarfélaga
námu tæpum 10% af landsframleiðslu á árinu 1989 og var
samsetning þeirra mjög svipuð og árið á undan. Tekjurnar
jukust að raungildi um 1,4% sé tekið mið af breytingum
framfærsluvísitölunnar.
Skatttekjur voru sem fyrr meginuppistaðan í tekjuöflun
sveitarfélaganna eða sem nemur um tveimur þriðju hlutum.
Er það nokkru lægra hlutfall en hjá ríkissjóði. Beinir skattar
vega mun þyngra í tekjuöflun sveitarfélaga en rfkissjóðs.
Arið 1989 námu beinir skattar sveitarfélaga um 60% af
skatttekjum þeirra og hefur það hlutfall verið mjög stöðugt
um árabil. Hlutdeild beinna skatta af skatttekjum rfkissjóðs
hefur verið um fimmtung. Sveitarfélög hafa einnig ýmsar
eigin tekjur af starfsemi sinni sem og framlög frá öðrum bæði
til rekstrar og fjárfestingar, einkum frá ríkissjóði vegna
hlutdeildar í kostnaði af sameiginlegri starfsemi. 4. yfirlit
sýnir tekjur sveitarfélaganna og hvernig þær skiptast.
4. yflrlit. Tekjur sveitarfélaga 1988 og 1989
Table 4. Local govemment revenue 1988 and 1989
Millj. króna á verðlagi hvers árs Million ISK at current prices Hlutfallstölur, % Percentage break-down
1988 1989 1988 1989
Heildartekjur 24.657 30.284 100,0 100,0 Total revenue
Skatttekjur 16.475 19.993 66,8 66,0 Tax revenue
Beinir skattar 10.031 12.055 40,7 39,8 Direct taxes
Utsvör 10.031 12.055 40,7 39,8 Municipal income tax
Obeinir skattar 6.444 7.938 26,1 26,2 Indirect taxes
Fasteignaskattar 2.453 3.133 9,9 10,3 Real estate tax
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga 1.096 1.244 4,4 4,1 Municipal Equalization Fund
Aðstöðugjöld 2.839 3.419 11,5 11,3 Business tax
Aðrir óbeinir skattar 56 142 0,2 0,5 Other
Þjónustutekjur 3.769 4.864 15,3 16,1 Service revenue
Vaxtatekjur 1.138 1.522 4,6 5,0 Interest
Tekjur til fjárfestingar 2.632 3.091 10,7 10,2 Capital transfers received
Ýmsar tekjur 643 814 2,6 2,7 Miscellaneous
Hlutdeildeinstakratekjustofnaíheildartekjumsveitarfélaga
var tiltölulega svipuð bæði árin. Sé hún skoðuð í samhengi
við fyrri skýrslur Hagstofunnar má sjá að samsetningin
breytist lftils háttar. Skýrastþærbreytingareinkumafbreyttri
verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga, íhlutun rfkisins í
lögbundin framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og upptöku
staðgreiðslukerfis tekjuskatta einstaklinga í ársbyrjun 1988.
í 5. yfirliti er sýnd frekari greining á þjónustutekjum
sveitarfélaga og innkomnum framlögum til fjárfestingar með
tilliti til þess hvernig þessar tekjur hafa komið inn og gengið
upp í útgjöld sveitarfélaga til hinna ýmsu málaflokka.