Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1998, Side 5
Formáli
Þessi skýrsla um fj ármál sveitarfélaga árið 1997 er fr amhald
af fyrri ritum Hagstofu íslands um sama efni. Á síðasta ári
var ritinu breytt til muna, það var einfaldað og felld var niður
ítarleg sundurliðun á útgjöldum einstakra sveitarfélaga. Sú
sundurliðun er fáanleg á Hagstofu íslands, ýmist á véltæku
formi eða á pappír eftir því sem óskað er. Með þessari útgáfu
breytist ritið enn og nú þannig að ekki er birtur sérstakur kafli
um þjónustu sveitarfélaga á sviði dagvistar- og félagsmála.
Það efni er fyrirhugað að gefa út í sérstöku riti Hagstofúnnar
með margs konar töflum á sviði félagsmála.
Hagstofa í slands og Samband íslenskra sveitarfélaga vinna
sameiginlega að söfnun og úrvinnslu ársreikninga sveitar-
félaga. Fyrir hönd Hagstofunnar sér sambandið um að afla
ársreikninga frá sveitarfélögum og skrá þá inn í gagnagrunn
Hagstofúnnar fýrir sveitarsjóðareikninga. Hagstofan annast
síðan yfirferð reikninganna og úrvinnslu. Að henni lokinni
er gagnagrunnurinn til afnota fyrir báða aðila til athugana á
ijárhag sveitarfélaga og til útgáfú.
Efni þessarar skýrslu skiptist í þrjá hluta. I fyrsta hluta er
gerð grein fyrir afkomu sveitarfélaga í heild árið 1997 og
einnig eftir íbúafjölda og kjördæmum. I öðrum hluta eru
skilgreiningar helstu hugtaka og skýringar við megintöflur
skýrslunnar. I þriðja hluta eru megintöflur um reikninga
einstakra sveitarfélaga og yfirlit yfir afkomu fyrirtækja
sveitarfélaga sem hafa sjálfstæðan flárhag.
Við vinnslu sveitarsjóðareikninga koma ávallt upp ýmis
álitaefni. í þetta sinn valda færslur í tengslum við breytingu
á félagsbústöðum Reykjavíkurborgar vandkvæðum við
uppgjör sveitarsjóða eins og nánar er vikið að í þessari
skýrslu. Á síðustu árum hefúr borið á því að sveitarfélög færi
afmarkaða þætti í starfsemi sinni í sérstök fyrirtæki og
jafnvel hfutafélög. Ársuppgjör þessara rekstrareininga er
síðan utan við uppgjör sveitarsjóðsins. Tilfærslur af þessu
tagi valda töluverðu ósamræmi milli sveitarfélaga á þann veg
að tiltekin starfsemi er ýmist flokkuð hjá sveitarfélaginu
sjálfu eða fyrirtækjum þess. Mikilvægt er að ráðin verði hér
bót á og að sveitarfélögin vinni að því að koma sér upp
sameiginlegri skilgreiningu á því hvar beri að flokka hinar
ýmsu rekstrareiningar sveitarfélaganna. Ekkert mælir gegn
því að sveitarfélög flytji rekstrareiningar í sérstök fyrirtæki
ef henta þykir. Hins vegar er nauðsynlegt að starfsemi allra
sveitarfélaga sé skilgreind á sama hátt þannig að unnt sé að
gera samræmt samstæðuuppgjör fyrir hvert og eitt sveitar-
félag. Mikilvægt er að við mótun skilgreininga og hugtaka
verði stuðst við alþjóðlega staðla.
Hjá Sambandi íslenskra sveitarfélagahafði Garðar Jónsson
umsjón með söfnun og skráningu ársreikninga sveitar-
félaganna. Á Hagstofúnni hefúr Kristinn Karlsson haft umsj ón
með úrvinnslu reikninganna og samningu þessarar skýrslu
en Sigurborg Steingrímsdóttir hefúr annast umbrot bókar-
innar.
í nóvember 1998
Hallgrímur Snorrason
hagstofústjóri
Preface
The present report falls into three parts. The first part
contains an outline of the development of local govemment
finances in 1996. The second section summarizes defínitions
and explanations to the main tables. Four main tables on the
financial accounts of all local govemments and the fmances
of independently operated municipal utilities form the third
and fínal part of this report.
Since the report for 1996 the collection, generation and
utilization of local govemment accounts has been carried out
in cooperation between Statistics Iceland and the National
Association of Local Authorities in Iceland. The Association
has, on behalf of Statistics Iceland, collected the individual
annual accounts from the municipalities and read these into
the Statistics Iceland database for local govemment fi-
nances. At Statistics Iceland, the accounts have been checked
and harmonized after which the total accounts have been
generated. Thereafter, the annual accounts are atthe disposal
of both the Association and Statistics Iceland for analysis
and publication.
At the Association of Local Authorities, Garðar Jónsson
has been responsible for the collection and the recording of
the accounts. At Statistics Iceland, Kristinn Karlsson has
been responsible for data processing and the compilation of
this report while the lay-out has been in the hands of
Sigurborg Steingrímsdóttir.
In November 1998
Hallgrímur Snorrason
Director-General