Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1998, Page 12

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1998, Page 12
10 Sveitarsjóðareikningar 1997 þeirra fremur en lánsfé. Mikil umskipti í afkomu sveitarfélaga á síðustu árum hafa orðið til þess að mörg stærri sveitarfélög hafa sótt inn á útboðsmarkað með skuldabréf til þess að fjármagna framkvæmdir. Lántökur sveitarfélaga umfram afborganir námu 3,8 milljörðum króna á árinu 1997 saman- borið við 1,3 milljarða króna á árinu 1996. Að gefnu tilefni skal tekið fram að í allflestum tilvikum eru fyrirtæki sveitar- félaga, þ.e. hitaveitur, rafveitur og hafnarsjóðir, ekki talin semhluti af eiginlegum rekstri sveitarfélaganna. Þetta skýrir meðal annars hvers vegna lántökur og lánveitingar sveitar- félaga eru þó ekki meiri en að framan greinir. Tekjur sveitarfélaga. Fram hefur komið að heildartekjur sveitarfélaga námu 10,8% af landsframleiðslu á árinu 1997. Við samanburð á fjárhæðum milli ára verður að taka tillit til almennra verðlagsbreytinga. Vísitala neysluverðs hækkaði að meðaltali um 2,3% frá árinu 1995 til ársins 1996 og um 1,8% milli áranna 1996 og 1997. Tekjur sveitarfélagajukust um 7,4 milljarða króna að nafnvirði á árinu 1997 en það svarar til um 13,0% hækkunar að raungildi frá árinu á undan miðað við breytingu á vísitölu neysluverðs. Tekjumar vom óvenjumiklar á árinu 1995 og meiri að raungildi en þær höfðu mælst um langt árabil. Á árinu 1996 jukust þær enn frekar. Skýrist það meðal annars af 5,6% hagvexti á mæli- kvarða landframleiðslunnar árið 1996 og af greiðslum ríkissjóðs til sveitarfélaga vegna _yfirtöku þeirra á rekstri grunnskóla frá 1. ágúst 1996. Arið 1997 jukust tekjur sveitarfélaga enn frekar bæði vegna 4,4% hagvaxtar og gildistöku laga um hækkun á útsvari til að mæta útgjöldum þeirra af rekstri grunnskólans. Lögum um tekjustofna sveitarfélaga var breytt með lögum nr. 124/1993 sem vom samþykkt á Alþingi í desember 1993 og tóku gildi í ársbyrjun 1994. Þessi breyting fól í sér hækkun á útsvari sveitarfélaga til að bæta þeim tekjumissi af niður- fellingu aðstöðugjaldsins.Vegið meðaltal afútsvari sveitar- félaga í staðgreiðslu hækkaði úr 7,04% árið 1993 í 8,69% árið 1994. Árið 1995 hækkaði meðaltalið enn frekar eða í 8,78%ogárið 1996 namþað 8,79%. Meðlögumnr. 66/1995 um grunnskóla var starfsemi þeirra og rekstur flutt frá ríki til sveitarfélaga ffá 1. ágúst 1996. í tengslum við þanntilflutning var lögum um tekjustofna sveitarfélaga breytt í því skyni að afla þeim tekna til að mæta kostnaði af rekstri grunnskólans, lög nr. 79/1996 og lög nr. 122/1996. Þar er hámarks- og lágmarksheimild sveitarfélaga til álagningar útsvars hækkuð um2,79prósentustigfráogmeð l.janúar 1997ogennfrekar um 0,05 prósentustig frá 1. janúar 1998. Vegið meðaltal af útsvari sveitarfélaga í staðgreiðslu hækkaði úr 8,79% árið 1996 í 11,57% árið 1997. I bráðabirgðaákvæði laganna nr. 79/1996 er kveðið áum að ríkissjóður greiði 2.734 millj. kr. til sveitarfélaga og Jöfnunarsjóðs sveitarfélag á árinu 1996 til að standa straum af kostnaði við rekstur gmnnskólans frá 1. ágúst til desemberloka á því ári. Erfitt er að gefa fullnægjandi skýringu á hækkun útsvars- tekna sveitarfélaga á árinu 1997. í sveitarsjóðareikningum 1996 var greint frá greiðslum rikissjóðs að fjárhæð 2.734 millj. kr. til sveitarfélaga vegna gmnnskóla, þar af mnnu 1.979 millj. kr. beint til sveitarfélaga og 755 millj. kr. til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. I ljósi þess að sveitarfélög mæta kostnaði af gmnnskólanum með hærra útsvari frá ársbyrjun 1997 var ákveðið að flokka beinar greiðslur ríkissjóðs til þeirra á árinu 1996 með útsvarstekjum. Við samanburð á útsvarstekjum milli ára þarf að taka tillit til þessara greiðslna. Tekjur sveitarfélaga af útsvari námu því 23.265 millj. kr. á árinu 1996 samanborið við 30.765 millj. kr. á árinu 1997. Hækkunmilliáranemur7.500millj. kr. eða32,2%. Hagvöxtur ársins 1997 á mælikvarða landsframleiðslunnar er áætlaður 4,4% og breyting útsvarsprósentunnar úr 8,79% í 11,57% felur í sér 31,6% hækkun. Samanlögð hækkun lands- framleiðslunnar og útsvarsprósentunnar nemur 37,4% eða 3,9% umfram hækkun útsvarstekna sveitarfélaga á árinu 1997. Skatttekjur voru sem fyrr meginuppistaðan í tekjum sveitarfélaganna eða um tveir þriðju hlutar þeirra. Er það nokkm lægra hlutfall en hjá ríkissjóði. Beinir skattar vega mun þyngra í tekjum sveitarfélaga en ríkissjóðs. Fram til ársins 1994 námu beinir skattar sveitarfélaga um 60% af skatttekjum þeirra, en síðustu ár hefur þetta hlutfall verið um 75%. Hækkunin skýrist af niðurfellingu aðstöðugjalda 4. yfirlit. Tekjur sveitarfélaga 1996-1997 Summary 4. Local government revenue 1996-1997 Milljónir króna á verðlagi hvers árs Hlutfallstölur, % Million ISK at current prices Percentage 1996 1997 1996 1997 Heildartekjur 49.055 56.416 100,0 100,0 Total revenue Skatttekjur 33.575 39.018 68,4 69,2 Tax revenue Beinir skattar 25.244 30.765 51,5 54,5 Direct taxes Útsvör 25.244 30.765 51,5 54,5 Municipal income tax Óbeinir skattar 8.330 8.253 17,0 14,6 Indirect taxes Fasteignaskattar 5.727 5.767 11,7 10,2 Real estate tax Jöfnunarsjóður sveitarfélaga 1.402 2.332 2,9 4,1 Municipal Equalization Fund Aðrir óbeinir skattar 1.202 154 2,4 0,3 Other Þjónustutekjur 10.994 12.649 22,4 22,4 Service revenue Vaxtatekjur 565 653 1,2 1,2 Interest Tekjur til fjárfestingar 3.922 4.096 8,0 7,3 Capital transfers received
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.