Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.2000, Qupperneq 9
Inngangur
Introduction
1. Fjármál sveitarfélaga 1999
The development oflocal govemment finances in 1999
Sveitarfélög 1999
Sveitarfélög á fslandi voru 124 á árinu 1999, jafnmörg og
árið áður en jrað ár fækkaði sveitarfélögum um fjórðung, úr
165 í 124. A undanförnum 15 árum hefur sveitarfélögum
fækkað um 100. Fækkunin á árinu 1998 er sú mesta sem
orðið hefur á einu ári en árið 1994 fækkaði sveitarfélögum
um 25 eftir kosningar um sameiningu víðs vegar um land
síðla árs 1993.
Skýrslur Hagstofu fslands um fjármál sveitarfélaga
byggjast á ársreikningum þeirra. I I. yfirliti er sýnd tala og
íbúafjöldi sveitarfélaga eftir stærðarflokkum ásamt skilum á
ársreikningum til Hagstofunnar. Fram kemur í yfirlitinu að
á árinu 1999 fækkaði sveitarfélögum með 1.000-3.000 íbúa
um eitt og sveitarfélögum með færri en 400 íbúa fjölgaði um
eitt. Skýrist þetta annars vegar af því að íbúafjöldi á
Bolungarvík reyndist 997 í lok árs 1999 og flyst því
sveitarfélagið úr flokki þeirra sem höfðu 1.000-3.000 íbúa í
þann sem hefur 400-999 íbúa. Hins vegar fór íbúatala
Raufarhafnarhrepps í 365 í árslok 1999, en við það fluttist
sveitarfélagið úr hópi sveitarfélaga með 400-999 íbúa í
flokk þeirra sem eru með færri en 400 íbúa.
Skil sveitarfélaga á ársreikningum til Hagstofunnar fyrir
árið 1999 voru allgóð en þó ívið lakari en þau voru fyrir árið
1998. Öll sveitarfélög með 400 íbúa eða fleiri skiluðu
ársreikningum bæði árin. Langflest sveitarfélaga með færri
1. yfírlit. Skil ársreikninga sveitarféiaga 1998-1999
Summary 1. Local governments 1998-1999. Annual accounts retumed
Allt landið Whole country Höfuð- borgar- svæðið1 Capital region 1 Önnur sveitarfélög eftir íbúafjölda Other municipalities by number of inhabitants
> 3.000 1.000- 3.000 400- 999 <400
Árið 1998 1998
Heildarfjöldi sveitarfélaga 124 7 8 17 22 70 Municipalities, total
Hlutfallsleg skipting 100,0 5,6 6,5 13,7 17,7 56,5 Percent distribution
Heildarfjöldi íbúa 275.277 167.817 52.796 28.605 14.404 11.655 Inhabitants, total
Hlutfallsleg skipting 100,0 61,0 19,2 10,4 5,2 4,2 Percent distribution
Skil ársreikninga Annual accounts returned
Fjöldi sveitarfélaga 121 7 8 17 22 67 Municipalities
Hlutfall af heildarfjölda 97,6 100.0 100.0 100,0 100,0 95,7 Percentage of total
Fjöldi fbúa 274.918 167.817 52.796 28.605 14.404 11.296 Inhabitants
Hlutfall af heiidarfjölda 99.87 100,0 100.0 100,0 100,0 96,9 Percentage oftotal
Árið 1999 1999
Heildarfjöldi sveitarfélaga 124 7 8 16 22 71 MunicipaUties, total
Hlutfallsleg skipting 100,0 5,6 6,5 12,9 17,7 57,3 Percent distribution
Heildarfjöldi íbúa 278.702 171.371 52.994 27.517 14.892 11.928 Inhabitants, total
Hlutfallsleg skipting 100,0 61,5 19,0 9,9 5,3 4,3 Percent distribution
Skil ársreikninga Annual accounts retumed
Fjöldi sveitarfélaga 117 7 8 16 22 64 Municipalities
Hlutfall af heildarfjölda 94,35 100,0 100,0 100,0 100,0 90.1 Percentage oftotal
Fjöldi fbúa 277.662 171.371 52.994 27.517 14.892 10.888 Inhabitants
Hlutfall af heildarfjölda 99,63 100,0 100,0 100,0 100,0 91,3 Percentage oftotal
Höfuðborgarsvæðið nær yfir þéttbýlissveitarfélögin og nærliggjandi sveitarfélög frá Hafnarfirði að Hvalfjarðarbotni. Capital region includes Reykjavík and
the surrounding urban municipalities, Hafnarfjörður, Bessastaðahreppur, Garðabœr, Kópavogur, Seltjarnarnes and Mosfellsbœr, as xvell as one rural
municipalitys to the north ofthe capital area, Kjósarhreppur.