Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.2000, Blaðsíða 12
10
Sveitarsjóðareikningar 1999
Eftir það hefur hlutfallið lækkað verulega og nam 22-23%
árin 1997 og 1998. Það var tæplega 22% árið 1999.
Neikvæð afkoma sveitarfélaga á síðustu árum hefur valdið
þ ví að þau hafa í auknum mæli þurft að taka lán til framkvæmda
og rekstrar. Áður voru framkvæmdir sveitarfélaga að stærstum
hlutafjármagnaðaraf samtímatekjum þeirrafremuren lánsfé.
Mikil umskipti í afkomu sveitarfélaga á síðustu árum hafa
orðið til þess að mörg stærri sveitarfélög hafa sótt inn á
útboðsmarkað með skuldabréf til þess að fjármagna
framkvæmdir. Lántökur sveitarfélaga umfram afborganir
námu 3,3 milljörðum króna á árinu 1999 samanborið við 5,6
milljarða króna árið 1998 og 3,8 milljarða króna árið 1997.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að í allflestum tilvikum eru
fyrirtæki sveitarfélaga, þ.e. hitaveitur, rafveitur og hafnar-
sjóðir, ekki talin sem hluti af eiginlegum rekstri sveitar-
félaganna. Þetta skýrir meðal annars hvers vegna lántökur og
lánveitingar sveitarfélaga eru þó ekki meiri en að framan
greinir.
Tekjur sveitarfélaga
Fram hefur komið að heildartekjur s veitarfélaga námu 11,4%
af landsframleiðslu á árinu 1999. Við samanburð áfjárhæðum
frá einu ári til annars verður að taka tillit til almennra
verðlagsbreytinga. V ísitala neysluverðs hækkaði að meðaltali
um 3,4% frá árinu 1998 til ársins 1999. Tekjur sveitarfélaga
jukust um 7,5 milljarða króna að nafnvirði á árinu 1999 en
það svarar til um 8,2% aukningar að raungildi frá árinu á
undan miðað við breytingu á vísitölu neysluverðs. Samkvæmt
bráðabirgðatölum nam hagvöxturinn 4,4% á árinu 1999.
Með lögum nr. 66/1995 um grunnskóla var starfsemi
þeirra og rekstur flutt frá ríki til sveitarfélaga frá 1. ágúst
1996.1 tengslum við þann tilflutning var lögum um tekjustofna
sveitarfélaga breytt í því skyni að afla þeim tekna til að mæta
kostnaði af rekstri grunnskólans, lög nr. 79/1996 og lög nr.
122/1996. Vegið meðaltal af útsvari sveitarfélaga í stað-
greiðslu hækkaði úr 8,79% árið 1996 í 11,57% árið 1997 og
11,61% árið 1998. Á árinu 1999 hækkaði hlutfallið enn
frekar og nam það 11,93%.
Tekjur sveitarfélaga hafa aukist töluvert á undanfömum
árum, einkum eftir mikinn hagvöxt frá 1996 og með auknum
tekjustofnum samhliða tilflutningi á verkefnum frá ríki til
sveitarfélaga. Á árinu 1996 jukust tekjumar um 14% að
raungildi frá árinu á undan. Skýrist það meðal annars af 5,2%
hagvexti á mælikvarða landframleiðslunnar það ár og af
greiðslum ríkissjóðs til sveitarfélaga vegna yfirtöku þeirra á
rekstri grunnskóla frá l.ágúst 1996. Árið 1997jukusttekjur
sveitarfélaga um 13% að raungildi, bæði vegna 4,8%
hagvaxtar og gildistöku laga í byrjun þess árs um hækkun á
útsvari til að mæta útgjöldum sveitarfélaga af rekstri
grunnskólans. Árið 1998 jukust tekjur sveitarfélaga um
10,8% að raungildi frá árinu á undan, hagvöxturinn á árinu
nam 4,5%.
Skatttekjur voru sem fyrr meginuppistaðan í tekjum
sveitarfélaganna eða um tveir þriðju hlutar þeirra. Er það
nokkxu lægra hlutfall en hjá ríkissjóði. Beinir skattar vega
mun þyngra í tekjum sveitarfélaga en ríkissjóðs. Fram til
ársins 1994 námu beinir skattar sveitarfélaga um 60% af
skatttekjum þeirra, en síðustu ár hefur þetta hlutfall verið um
75%. Hækkunin skýrist af niðurfellingu aðstöðugjalds
sveitarfélaga í ársbyrjun 1994 en það flokkaðist meðal
óbeinna skatta. Á móti hækkaði útsvar sveitarfélaga í
staðgreiðslu. Árin 1997, 1998 og 1999 hefur hlutfall beinna
skatta numið tæpum 79% af skatttekjum sveitarfélaganna og
skýrist hækkunin af breytingu úts varsins til að mæta útgj öldum
sveitarfélaganna af rekstri grunnskólans. Tekjur sveitarfélaga
einskorðast ekki við skatttekjur heldur hafa þau einnig tekjur
af veittri þjónustu. Ennfremur fá þau framlög frá öðrum til
rekstrar og fjárfestingar, einkum frá ríkissjóði vegna hlut-
deildar í kostnaði af sameiginlegri starfsemi. Tekjur sveitar-
félaganna og skipting þeirra er sýnd í 4. yfirliti.
Hlutfallsleg samsetning tekna sveitarfélaga á árinu 1999
var nánast óbreytt frá árinu á undan. Tekjurnar skiptust
4. yfirlit. Tekjur sveitarfélaga 1998-1999
Summary 4. Local government revenue 1998-1999
Milljónir króna á verðlagi hvers árs Hlutfallstölur
Million ISK at current prices Breakdown %
1998 1999 1998 1999
Heildartekjur 63.543 71.075 100,0 100,0 Total revenue
Skatttekjur 43.655 49.154 68,7 69,2 Tax revenue
Beinir skattar 34.435 38.778 54,2 54,6 Direct taxes
Utsvör 34.435 38.778 54,2 54,6 Municipal income tax
Obeinir skattar 9.220 10.376 14,5 14,6 Indirect taxes
Fasteignagjöld 6.150 6.513 9,7 9,2 Real estate tax
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga 2.832 3.756 4,5 5,3 Municipal Equalization Fund
Aðrir óbeinir skattar 239 106 0,4 0,1 Other
Þjónustutekjur 14.006 15.252 22,0 21,5 Service revenue
Vaxtatekjur 626 891 1,0 1,3 Interest
Tekjur til fjárfestingar 5.256 5.777 8,3 8,1 Capital transfers received